Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1943, Page 77
Tryggvi Gunnarsson. Sveinn Sveinsson.
menn, og' upp frá því tók félagið um nokkurt órabil
að liafa á hendi útvegun nauðsynlegra handverkfæra
fyrir bændur. Þá höfðu nýlega tiðindi gerzt, er mikla
athygli vöktu. Undir 1870, er árferði tók að batna á
ný, varð hreyfing nokkur á um samtök til þess að
bæta úr verzlunarliögum bænda. Einnig þar stóð Jón
Sigurðsson að verki. Hann studdi Pétur Friðriksson
Eggerz og bændur nyrðra til þess að koma á fót
Verziunarfélaginu við Húnaflóa 1870, en það félag
bætti mjög verzlun á Norðvesturlandi á sínum tíma,
náði góðum viðskiptasamböndum við Noreg, en þvi
miður varð það fyrir óhöppum og lagðist bráðlega
niður (1876). Þá má nefna Gránufélagið, er Tryggvi
Gunnarsson stofnaði 1869 og starfaði mest á Norð-
austurlandi og stóð með góðum blóma þó nokkra
stund. Þessi félög glæddu mjög á sínum tima fram-
íarahug landsmanna og trúna á það, að með samtök-
um mætti miklu góðu til vegar koma um almenna
bagi. Höfuðþýðing samtaka þessara var þó sú, að þau
ruddu brautina fyrir samvinnuhreyfingunni (Kaup-
félag Þingeyinga (1881—82)). Sá árangur, er þegar
hafði náðst um endurbætur á verzlunarhögunum, og
(75)