Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1943, Page 91
Halldór Kr. Friðriksson. Páll Briem.
Draflastöðum 1919—23, Guðjón Guðlaugsson frá
I.júfustöðum 1923—25, Tryggvi Þórhallsson 1925—35,
Magnús Þorláksson á Blikastöðum 1935—37, Bjarni
Ásgeirsson á Reykjum síðan 1937. Síðan 1923 hefur
| félagið haft sérstakan framkvæmdarstjóra, búnaðar-
málastjóra. Fyrsti búnaðarmálastjórinn var Sigurður
Sigurðsson, 1923—35. Metúsalem Stefánsson gegndi þá
um nokkur ár störfum sem annar búnaðarmálastjóri.
Búnaðarmálastjóri er nú Steingrímur Steinþórsson,
fyrrum skólastjóri á Hólum, siðan 1935.
Búnaðarfélag íslands tóli frá byrjun upp líka
starfshætti og Búnaðarfélag Suðuramtsins hafði fylgt
hin síðustu ár sín. Það hefur jafnan haft í þjónustu
sinni sérfræðinga i ýmsum greinum búnaðar, til leið-
beiningar bændum, hvern á sínu sviði, við tilrauna-
starfsemi og undirbúning jarðræktarframkvæmda,
* búpeningsrækt o. fl. Fram um 1920 voru ráðunaut-
arnir oftast 3, en síðan var þeim fjölgað, fullkomnari
verkaskiptingu á komið milli þeirra og bætt við nýj-
um starfsgreinum. Þá hefur félagið liaft trúnaðar-
menn úti um land í sýslu hverri, síðan jarðræktar-
t (89)