Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1943, Page 99
Þórhallur Bjarnarson. Guðjón Guðlaugsson.
um veita gegn sýslu- eða hreppsábyrgð, og- var nokk-
ur bót að því.
Á öndverðu ári 1904 var skipuð milliþinganefnd til
að gera tillögur um landbúnaðarmál. í þeirri nefnd
áttu sæti Þórhallur Bjarnarson, síðar biskup, Pétur
Jónsson á Gautlöndum og Hermann Jónasson, fyrr-
um skólastjóri á Hólum. Nefndin lagði síðan fyrir
Alþingi 1905 tólf frv. um búnaðarmál, þar á meðal
frv. um sölu opinberra fasteigna, forkaupsrétt leigu-
liða á fasteign einstakra manna og Ræktunarsjóð ís-
iands. Höfuðatriði þessara iaga, er þingið samþykkti,
var að stuðla að því, að bændur gætu eignazt ábýli
sín með hjálp Ræktunarsjóðs. Þar með liafði Rækt-
unarsjóður að mestu skipt um hlutverk og var nú
iitlu nær en áður um lánsfé til ræktunarframkvæmda.
Þingið 1905 mun liafa litið svo á, að með stofnun Ts-
iandsbanka, sem þá var nýlega tekinn til starfa,
mundi nógu vel séð fyrir lánsfé til atvinnuveganna i
bili, en það fór allt á annan veg, sem kunnugt er.
Varð og engin veruleg breyting á um ræktunarfram-
kvæmdir í sveitum landsins, og lágu til þess ýmsar
(97) 5