Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1943, Page 103
Theódór Arnbjörnsson. Páll Zóphóníasson.
þessum tókst að bjarga í land árangrinum af fram-
kvæmd jarðræktarlaganna fram um 1930. En þá skall
á verðhrun mikið, sem kunnugt er, og kreppti fast
að landbúnaðinum. Á árunum 1933—1935 var reynt að
jafna yfir áföllin, sem orðin voru, með allverulegri
kreppuhjálp. 1934 voru svo afurðasölulögin sett, er
miða að því að bæta og jafna söluverð landbúnaðar-
vara. Loks má hér nefna lögin um varnir gegn mæði-
veikinni frá 1937, en sauðfjárpest þessi er nú eitt af
mestu meinum landbúnaðarins, og vandséð, hversu
úr muni rætast, en þess er þó að vænta, að heppnast
muni að vinna bug á mæðiveikinni, eigi siður en fjár-
ldáðanum. Bændur landsins ættu ekki að standa verr
að vígi um slíkt nú en fyrir 80—90 árum síðan. Hér
að framan er stuttlega vikið að þeirri baráttu og af-
hroði því, sem landbúnaðurinn galt þá, við langtum
örðugri kjör í flestum greinum og litla sem enga fjár-
hagslega aðstoð af hálfu þings og landsstjórnar.
Enn er ótalin merkileg nýjung í ræktunarmálum
landsmanna, garðyrkjuskólinn, er stofnaður var með
lögum 1937 og tók til starfa að Reykjum í Ölfusi 1939.
(101) 5’