Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1943, Page 105
Bjarni Ásgeirsson. Steingrimur Steinþórsson.
hirðing áburðar mjög ábótavant viðast. Er nú svo
talið, að safnþrær og áburðarhús séu til fyi’ir allt að
% þess húsdýraáburðar, sem til fellst árlega. Er þetta
mikilvæg framför, sem sjá má af því, að siðan menn
fói'u að nota erlendan áburð til muna, eftir ^1923^
hefur kostnaður af þeim lið numið stórfé sum ái’in,J
stundum yfir 700 þús. kr., en úr þeim kostnaði verð-
ur helzt dregið með betri hagnýtingu húsdýraáburð-
arins. I sumum verstöðum er nú farið að nota fiski-
úrgang til áburðar, og gefst það mjög vel. Steinsteypt
hlöðurúm er nú fyrir % af árlegum töðufeng bænd-
anna. Skýrslur vantar um búpeningshús.
Hér skal nú að lokum reynt að gera stuttlega grein
fyrir þvi, sem á hefur unnizt i ýmsum greinum bún-
aðar hér á landi á þessari öld, og verður um þetta
einkum stuðzt við skýrslur og línurit samkvæmt bók
Sigurðar Sigurðssonar um búnaðarhagi i afmælisriti
Búnaðarfélags íslands 1937. Tölur ná hér yfirleitt ekki
Iengra fram en til 1934—30, en siðan hafa engar stór-
breytingar orðið, sem kunnugt er.
(103)