Freyr - 15.04.1966, Blaðsíða 58
236
FREYR
Fyrirmæli
um litamerkingap á sauöfé vorið 1966
1. gr.
Sauðfé og geitfé skal merkja, áður en því er sleppt
frá húsi í vor, samkvæmt fyrirmælum þessum.
Merkja skal greinilega, þannig að mála hornin bæði
að aftan og framan, en forðast þó að mála yfir
brennimörk. Kollótt fé skal merkja í hnakka, hægri
eða vinstri kjamma eftir því sem við á. Þess skal
gætt að endurmerkja fé við rúning eftir því, sem
þörf krefur.
2. gr.
í Mýrdal skal merkja féð með krómgulum lit á bæði
horn.
3. gr.
Féð í Rangárvallasýslu, austan Ytri-Rangárgirðing-
ar, skal vera ómerkt.
4. gr.
Á svæðinu milli Ytri-Rangárgirðingar og Þjórsár,
skal merkja féð með rauðum lit á hæði horn.
5. gr.
Á svæðinu milli Þjórsár og Hvítár—Ölfusár skal
merkja féð með bláum lit á bæði horn.
6. gr.
í Biskupstungum skal merkja féð með grænum lit
á hægra horn.
7. gr.
í Grímsnesi, Laugardal og Þingvallasveit austan
Þingvallavatns og Þjóðgarðsins, skal merkja féð
með grænum lit á bæði horn.
8. gr.
í Þingvallasveit, vestan Þingvallavatns og Þjóð-
garðsins, Kjós, Kjalarnesi og Mosfellssveit, skal
merkja féð með rauðum lit á bæði horn. Fé, sem
haft kann að vera í einangrun á Tilraunastöðinni
á Keldum, skal merkja með dökkbláum lit á bæði
horn. Annað fé, vestan Ölfusár og á Reykjanes-
skaga, skal vera ómerkt.
9. gr.
í Borgarfjarðarsýslu, sunnan Skorradalsgirðingar og
í Akraneskaupstað, skal merkja féð í Borgarfjarðar-
sýslu og Hvítársíðu ofan varnargirðingar skal vera
ómerkt, nema á bæjum þar sem garnaveiki hefur
verið staðfest; þar skal merkja féð með dökkbláum
lit á hæði horn.
10. gr.
í Mýrasýslu, vestan Hvítársíðugirðingar og austan
Langár, skalmerkja féð með rauðum lit á bæði horn.
11. gr.
í Mýrasýslu, vestan Langár, í Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu, austan Snæfellsnesgirðingar, skal
merkja féð með hvítum lit á bæði horn.
12. gr.
í Miklaholtshreppi, Helgafellssveit og Stykkishólms-
hreppi skal merkja féð með bláum lit á bæði horn.
Annað fé á Snæfellsnesi skal vera ómerkt.
13. gr.
í Dalasýslu, sunnan Hvammsfjarðargirðingar, skal
merkja féð með grænum lit á bæði horn. í Dala-
hólfinu milli Hvammsfjarðar—Hrútafjarðargirðingar
og Gilsfjarðar—Bitrufjarðargirðingar skal merkja
féð með krómgulum lit á bæði horn.
14. gr.
í hólfinu frá Gilsfjarðar—Bitrufjarðargirðingu að
Berufjarðar—Steingrímsfjarðargirðingu skal merkja
féð með bláum lit á bæði horn.
Féð í Reykhólahreppi, milli Berufjarðar- og
Þorskafjarðargirðingar, skal merkja með hvítum lit
á bæði hom.
í Gufudalssveit og Nauteyrarhreppi skal merkja
féð með rauðum lit á bæði hom.
Allt fé á Vestfjörðum, þar norðan við, skal vera
ómerkt. Einnig skal ómerkt allt fé á svæðinu frá
Hrútafjarðargirðingu að Miðfjarðargirðingu.
15. gr.
Á svæðinu frá Miðfjarðargirðingu að Blöndu, skal
merkja féð með hvítum lit á bæði horn. Milli Blöndu
og Héraðsvatna skal féð vera ómerkt.
16. gr.
í Akrahreppi skal merkja féð krómgulum lit á bæði
horn. í Viðvíkursveit, Hóla-, Hofs- og Hofsóshreppi
skal merkja féð með rauðum lit á bæði horn. Á