Freyr - 15.04.1966, Blaðsíða 59
FREYR
237
svæðinu milli Eyjafjarðargirðinga og Hörgár, inn að
Bægisá, skal merkja féð með hvítum lit á bæði
horn. I Saurbæjarhreppi og aðliggjandi bæjum sunn-
an og vestan Eyjafjarðargirðinga skal merkja með
bláum lit á bæði horn. Annað fé á svæðinu milli
Eyjafjarðargirðinga og Héraðsvatna skal vera ó-
merkt.
17. gr.
Á svæðinu milli Eyjafjarðargirðinga og Skjálfanda-
fljóts skal merkja féð með rauðum lit á bæði horn.
18. gr.
Á svæðinu milli Skjálfandafljóts og Jökulsár á Fjöll-
um, sunnan Gæsafjallagirðingar, skal merkja féð
með hvítum lit á hægra horn. Annað fé á þessu
svæði skal vera ómerkt.
19. gr.
Á Hólsfjöllum, Axarfirði og Núpasveit skal merkja
féð með grænum lit á hægra horn, nema á bæjum,
þar sem garnaveiki hefur orðið vart, þar skal merkja
féð með grænum lit á bæði horn.
20. gr.
í Presthólahreppi og Svalbarðshreppi norðan Sléttu-
girðingar, skal merkja féð með krómgulum lit á bæði
horn. Á Raufarhöfn skal merkja féð með rauðum lit
á bæði horn.
21. gr.
I Svalbarðshreppi, sunnan Sléttugirðingar, Sauða-
neshreppi, Múlasýslum báðum og í Austur-Skafta-
fellssýslu að Hornafjarðarfljóti skal merkja féð á
bæjum, þar sem garnaveiki hefur orðið vart, með
bláum lit á bæði horn.
22. gr.
Öllum fjáreigendum er stranglega bannað að lit-
merkja fé á hornum eða haus öðruvísi en að fram-
an greinir, nema að fengnu leyfi framkvæmdastjóra
sauðfjársjúkdómanefndar. Gamlar litamerkingar,
sem brjóta í bága við framanskráð fyrirmæli, skal
afmá.
23. gr.
Hreppstjórum er skylt að sjá um, að fyrirmælum
þessum verði framfylgt. Undanbrögð eða brot gegn
þeim varða sektum samkvæmt lögum nr. 23. 10.
marz 1956.
Reykjavík, 28.3 1966
Sauðfjársjúkdómanefnd.
Til athugunar íyrir
mjólkuríramleiðendur
Síðan notkun rörmjaltakerfa gerðist al-
menn hefur skort reglur varðandi hreinsun
kerfanna. Búast má við, að rörmjaltakerfi,
— hvort í mjaltabásum eða í venjulegum
básafjósum —, verði notuð í sívaxandi mæli
á komandi árum. Ljóst er að notkun rör-
mjaltakerfa krefst nákvæmari og vanda-
samari hreinsunar en mjólkurframleiðend-
ur hafa áður vanist og því eru eftirfarandi
leiðbeiningar settar fram.
Leiðbeiningar eru byggðar á tilraunum
um þetta efni, sem gerðar hafa verið í Dan-
mörku, Englandi og U.S.A. og reglurnar um
þvott á kerfunum byggðar á niðurstöðum
tilraunanna.
Leiðbeinendur í mjólkurframleiðslu í
þessum löndum mæla með og leggja áherzlu
á þessa hreinsunar aðferð. Reglurnar um
hreinsunina, sem eru settar fram hér, eru
miðaðar við Alfa-Laval og Gascoigne, þar
sem aðrar tegundir rörmjaltakerfa hafa
ekki verið seld hér á landi.
ALFA-LAVAL (plaströr)
1. Fjarlægið mjólkurdreggjar úr rörun-
um með 3—4 hreinum hreinsitöppum.
2. Skolið með volgu vatni, látið skolvatn-
ið sogast gegnum leiðslurnar unz það
verður tært. Skolið í 3—5 mín. Tæmið
kerfið, notið til þess hreinsitappa.
3. Þvoið leiðslur með 60—65° heitu vatni.
Notið þvottaefni, sem ekki jreiðir. •—
Vítisóti (NaOH) er eitt hentugast og
ódýrasta þvottaefni, sem völ er á. Hæfi-
legt magn af vítissóta í 60—65° heitu
vatn er 20 gr. í 10 1. af vatni. Þvotta-
upplausnin þarf að renna um kerfið í
minnst 10 mín. Tæmið kerfið.