Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1966, Blaðsíða 36

Freyr - 15.04.1966, Blaðsíða 36
214 FREYR sótt er mjólk. Bílstjóri á heldur ekki að ganga gegnum fjósið til þess að komast inn í mjólkurhúsið. Mjólkurtankbíllinn þarf að geta ekið beint að mjólkurhús- inu, og fjarlægð bílsins frá mjólkur- tanknum má ekki vera meiri heldur en 5 metrar. Til þess að geta komið tanknum inn í mjólkurhúsið, verða að vera nægilega stórar dyr (eða op), sem ekki má festa fullkomlega aftur, þar sem ef til vill þarf síðar meir að taka tankinn út til viðgerð- ar eða skipta. Dyraopið getur t.d. verið tvöföld hurð eða laus tréveggur. Breidd- in á dyraopi verður að vera minnst 135 cm. Þar kemst 600 1 tankur inn. b) Gólfið í mjólkurhúsi á að vera úr hörðu, sterku efni og með niðurfalli. Gólfið get- ur auðveldlega verið sléttpússað — úr sterkri sandsteypu. Gólfinu á að halla að niðurfalli. Veggir eiga að vera úr sléttu, hörðu efni í allt að 150 cm hæð frá gólfi. — Múraða veggi á að sléttpússa, en timb- urveggi á að klæða með plötum úr hörðu efni, sem þolir þvott, t. d. ýmsum gerðum af plastplötum eða þunnum álplötum. Ef mjólkurhús er búið til úr timbri, verður að steypa minnst 15 cm sökkul upp fyrir gólfhæð, til þess að hindra, að vatn og raki eyðileggi veggina. Veggi og loft á að mála í ljósum lit, með málningu, sem þolir þvott. Gluggar eiga að vera á hjörum og það stórir, að góð birta sé í húsinu. Þvottaborð á að vera í góðri birtu. c) Loftræstingu í mjólkurhúsi má ekki gleyma. Ef loftræsting er slæm í mjólkur- húsi, kemur fram mygla á veggjunum og í lofti. Loftrás fyrir kælivél á að vera sem næst kælivélinni. Til þess að fyrirbyggja raka á veggjum og í lofti, verður að ein- angra mjólkurhúsið vel. d) Rafljós í mjólkurhúsi á að vera þannig, að auðvelt sé að yfirlíta tankinn að innan, eins á að vera góð birta yfir þvottaborði. Ljósrör gefa bezta birtu. e) Þegar byggt er mjólkurhús, verður gólf- rýmið að vera það mikið, að gott rými sé fyrir mjólkurtank, athafnasvæði fyrir þvott og geymslu á mjaltaáhöldum. Tankurinn má ekki koma of nálægt vegg, ca. 50 cm bil á að vera milli veggjar og tanks. Hreinsun og viðhald er þá auðvelt að framkvæma umhverfis tankinn. 1 mjólkurhúsi á að vera þvottaborð og vatnshitari. ATHUGASEMD í greininni hér að framan er sagt að ca. 4000 býli í Svíþjóð hafi heimilismjólkurtanka. Þar sem þróun- in í þessu málum er hröð þar í landi er þetta ekki rétt mynd í dag. — í árslok 1965 voru liðlega 6500 sveitabæir í Svíþjóð sem höfðu heimilismjólkurtank. Það þýðir að ca. 4 % af mjólkurframleiðendum höfðu slíkan útbúnað. Heildarmjólkurmagn frá þess- um bæjum nam 450 millj. kg á árinu og er það um það bil 14% af heildarmjólkurmagni landsins. Sést á þessu að meðal mjólkurmagn á hvern heimilis- tank er ca. 70.000 kg á ári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.