Freyr - 15.04.1966, Blaðsíða 5
FREYR
183
FREYR
BÚNADARBLAD
Nr. 8—9 apríl-maí 1 966
62. órgangur
Útgefendur:
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
STÉTTARSAMBAND BÆNDA
Útgáfustjórn:
EINAR ÓLAFSSON
HALLDÓR PÁLSSON
PÁLMI EINARSSON
Ritstjórn:
AGNAR GUÐNASON
GÍSLI KRISTJÁNSSON
(ábyrgðarmaður)
Heimilisfang:
PÓSTHÓLF 390, REYKJAVÍK
BÆNDAHÖLLIN, REYKJAVÍK
Prentsmiðja Jóns Helgasonar
Reyk|avík - Slml 38740
Ritstlórn, innheimta, afgreiðsla og
auglýslngar:
Bœndahollinnl, Reykjavík — Slml 19200
EFNI:
MjólkurstöS
Samstaða í stað sundrungar
Smjör og œðasjúkdómar
Mjólk og mjólkurumbúðir
Mjólkurframleiðsla og júgurbólga
Mjólkurflutningar með nýju sniði
Þjóðsögur, œvintýri og list
Nýting undanrennu
Framleiðslu- og dreifingarkostnaSur
Heimilis-mjólkurtankar
Mjólkurstöðvarnar
Mjaltsjáin
Molar
Rýgresi
Hreinsun rörmjaltakerfa
M j ólkursamlag
Mjólkurbú
Mjólkurstöð
í upphafi aldarinnar voru rjómahúin stofnuð. Varla gátu
nafngiftir þeirra orðið á reiki, þau tóku á móti rjóma,
gerðu smjör af honum og sendu áfir heim aftur. Svo liðu
þau undir lok og ný fyrirtæki risu, er tóku á móti mjólk,
seldu sumt af henni sem mjólk til neyzlu í bœjum og þorp-
um en framleiddu svo skyr, smjör og osta, og síðar fleiri
iðnaðarvörur. Að þessum framkvæmdum stóð jafnan
félagsskapur framleiðenda mjólkurinnar. Þessar mót-
tökustöðvar hafa verið að skapazt og mótazt síðan 1928
og hafa hlotið ýmiss nöfn, svo sem mjólkurstöð, mjólkur-
samlag, mjólkurbú og í viðbót svo einkennisheiti þeirra
samtaka eða staða, sem standa.
Samlag er ágætt nafn, rétt eins og félag en það á bezt við
samtök, hópmyndun, eða hvað maður vill kalla það, sem
hópur manna sameinazt um til framkvœmda. Hinsvegar
hefur heitið samlag verið yfirfœrt á stofnanir þœr, er
veita mjólkinni viðtöku og vinna hana og dreifa afurðun-
um til neytendanna.
Hér er um að ræða óviðfeldna nafngift og naumast
rétta. Félagssamtökin, sem að verknaði standa, eiga og
mega heita samlög, bændurnir leggja sitt fram, hver sitt
framlag svo af verður samlag. En það sem þeir leggja af
mörkum — mjólkin — er allt flutt til ákveðins staðar, og
hvort sem mjólkin er aðeins gerilsneydd eða hún er gerð
að iðnvöru þá fer það fullt fram á staðnum, þar stanzar
mjólkin áður en hún fer í ýmsum myndum áleiðis til
neytenda, þetta er stöð á hennar leið og því ekki að hafa
eitt samheiti á öllum þeim stöðvum, sem þjóna þessum
tilgangi? Eigum við ekki héðan í frá að tala um MJÓLK-
URSTÖÐ, hvar svo á landinu sem staðsetningin er?
Samlagið er félagsskapur framleiðendanna.
Mjólkurstöðin er móttökustaður vörunnar og vinnslu-
staður og dreifingarstaður. G.