Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1966, Blaðsíða 43

Freyr - 15.04.1966, Blaðsíða 43
FREYR 221 M j ólkur stöðin á Hvammstanga Árið 1959 tók til starfa mjólkurstöð a Hvammstanga. Mjólkurstöðin er eign mjólkursamlags Kaupfélaganna á Hvamms- tanga og Borðeyrar. Mjólkurinnleggjendur eru úr Vestur Húnavatnssýslu og Stranda- sýslu allt norður í Steingrímsfjörð. Mjólk- urstöðin var byggð árið 1959 og er vönduð í alla staði. Allar vélar eru nýjar. Á Hvammstanga eru 330 manns búandi og er þar af leiðandi um lítinn heimamarkað að ræða fyrir stöðina. Ekkert mjólkursam- lag á landinu býr við jafn óhagstæð skilyrði til neyslumjólkursölu. Mjólkurstöðin er því nær eingöngu vinnslustöð. Aðal framleiðsla samlagsins er ostur, 30% og 45% brauðost- ur, auk þess er þar framleitt smjör, kasein, skyr og rjómi. Árið 1965 var innvegið mjólk- Brynjólfur Sveinbergsson stöðvarstjóri urmagn stöðvarinnar 3.161.677 kg og þar af var selt sem neyslumjólk 98.145 ltr. Mjólkurstöðvastjóri hefur verið frá byrj- un Brynjólfur Sveinbergsson, mjólkurfræð- ingur. Mjólkurstöðin í Ólafsfirði Á Ólafsfirði var sett á stofn mjólkurstöð ár- ið 1959. Að stöðinni stendur mjólkursamlag Kaupfélags Ólafsfjarðar og frá byrjun hef- ur kaupfélagið séð um rekstur stöðvarinn- ar. Stöðin er til húsa í verslunarbyggingu kaupfélagsins. Þar eru vélar til gerilsneyð- ingar á nýmjólk og tilheyrandi átöppunar- vélar. Aðstaða er þarna einnig til þess að framleiða skyr og smjör. Þar sem aðeins eru um það bil 25 mjólkurinnleggjendur í stöðinni, gera þeir varla betur en að full- nægja Ólafsfirði með nýmjólk allt árið, en yfir sumartímann er um lítilsháttar smjör- framleiðslu að ræða. Árið 1965 varð mjólk- urinnlegg 395.241 kg og þar af var selt sem neyslumjólk 261.706 ltr. Norsk Hydro hefur tilkynnt viðskiptaaðiljum sínum, að frá og með árinu 1967 verði félaginu auðveldara að verða við óskum þeirra, en verið hefur í fyrra og í ár. Blandaður áburður er notaður í vaxandi mæli og Norsk Hydro hefur skort hráefni I hann til þess að geta sinnt sívaxandi eftirspurn, verksmiðjan í Glomfirði fékk ekki nærri nóg hráefni. En nú er verið að reisa verksmiðju á Herey, hún á að verða fullgerð árið 1967 og geta framleitt 400.000 lestir áburðar um árið, og það munar um minna. Til þess að gera sér hugmynd um hve þetta er mikið magn má hafa verksmiðjuna í Gufunesi sem mælikvarða, en hún framleiðir rúmlega 20 þúsund tonn á ári og hefur samtals framleitt 212 þúsund lestir síðan hún tók til starfa fyrir 12 árum, en það er að þyngd um það bil helmingur þess, sem umrædd verksmiðja Norsk Hydro skal framleiða árlega. Svo stórkost- leg er áburðarframleiðslan og aukning áburðarnotk- unar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.