Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1966, Blaðsíða 56

Freyr - 15.04.1966, Blaðsíða 56
234 FREYR útu hættir kýrin að selja um stund, en byrjar á fjórðu mínútu að selja mjólkinni aftur — tvíselur — og því tekur það sjö mín- útur að fullmjólka kúna. Á sjóngleri mjalta- sjárinnar sjást sveiflurnar, sem verða á mjólkurrennslinu við mjaltir, og eru þær þá jafnframt bending um, að það hefði átt að búa kúna betur undir mjaltir, með því að hreinsa og strjúka júgrið með klút, undnum upp úr volgri dauðhreinsiupplausn, og mjólka fyrstu mjólkurbogana úr hverjum spena í sýniskönnu um einni mínútu áður en spenahylkin voru sett á júgrið. Það á ekki að setja spenahylkin á, fyrr en mjólkin er fallin til júgursins. Mynd 4 sýnir, hvernig mjaltir verða, þeg- ar kýrin hefur tilhneigingu til að tvíselja og er lengi að selja mjólkinni. Sumar kýr tvíselja, þegar byrjað er að vélhreyta, eins og á sér stað á fimmtu mínútunni í því dæmi, sem hér er sýnt. Stafar þetta af því, að þær örvast við snertinguna, sem verður, þegar byrjað er að hreyta, og selja því aftur. Forð- ast verður að láta kýr tvíselja, og það er hægt með því að búa þær vel undir mjaltir á þann hátt, sem áður er skýrt frá, og örva sem mest mjólkurrennslið með því að strjúka júgrið vel og lengi. Þessar tvær síð- ustu myndir sýna greinilega, hvaða tafir verða á mjöltum, ef ekki er rétt unnið að mjaltastarfinu, auk þess þær skemmdir, sem orðið geta á júgri af völdum mjólkurvélar vegna rangrar mjaltaaðferðar. Mjaltasjáin hefur gefizt vel hvarvetna, þar sem hún hefur verið reynd og notuð, og sýna skýringarmyndirnar hér að ofan glöggt, hvert gagn má hafa af henni við að fylgjast með gagni mjalta og hvernig kýrn- ar mjólkast og mjaltir eru framkvæmdar. ^^#\#\#\##\#\#\#\#\##\##'#N#\r'#\#\r#'#\#\#^'#\#\#\#\#N#'#N#\*#\#'#\#\#\#\r'# M.jólkursamsalan í Stokkhólmi hélt aðalfund sinn í byrjun febrúar. Kom þar margt fróðlegt fram m. a. það, að hún er nú fimmtug. Á því tímabili hafa 322 mjólkurbú hennar verið lögð niður og starfa nú aðeins 28. í allri Svíþjóð eru nú 291 mjólkurbú. Á miólkursamsölusvæðinu eru nú 3500 bændur, sem hafa mjólkurtank og 800 þeirra eru með við- tengdan kælibúnað. Átta ár eru síðan fyrstu heim- ilistankarnir voru teknir í notkun, en nú fjölgar þeim mjög ört enda telja menn sig komna yfir til- raunastigið. Einnig í öðrum landshlutum fjölgar heimilistönkum ört. Finnski sauðfjárstofninn er sérlega þekktur fyrir mikla frjósemi og er þess- vegna úr ýmsum áttum sótzt eftir kynbótaskepnum þaðan. Landmannabladet segir frá því, að 12 hrútar og 64 ær hafi verið seldar til Essex í Englandi á síðasta ári 4 hrútar og 15 ær til Vestur-Þýzkalands, enn- fremur var selt til Danmerkur, Svíþjóðar og Irlands. Fyrirspurnir og beiðnir um finnskt sauðfé til kyn- bóta hafa borizt frá Suður-Afríku, Kanada og Ástralíu, og á komandi sumri kemur franskur leið- angur til Finnlands til þess að kaupa þar kynbóta- fé. Nils Inkovaara, landsráðunautur í sauðfjárrækt í Finnlandi. telur, að í 50 ár hafi Finnar ræktað féð til frjósemi og árangurinn sé ágætur af því starfi. Rýgresi Rýgresi Síðastliðið ár keyptu bændur um 5 tonn af fræi af einæru .og fjölæru rýgresi. Flestir eru mjög ánægðir með árangur- inn af þeirri ræktun. enda á rýgresi að geta gefið góða uppskeru sáningar árið, ef því er sáð snemma og vel borið á það. Þetta einæra rýgresi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.