Freyr

Volume

Freyr - 15.01.1982, Page 19

Freyr - 15.01.1982, Page 19
Erlent fagefni um þessi mál Iiggur ekki á lausu fyrir þessa menn og jafnvel þó að það fengist, er tæpast hægt að ætlast til að fag- mál þess skiljist þó menn séu sæmilega læsir á almennt mál sömu tungu. Leiðbeiningaþjónusta við veiðifélögin er því miður allt of takmörkuð og verður vart við- unandi fyrr en a. m. k. er kominn veiðiráðunautur í einhverri mynd í hvert kjördæmi. Niðurstaðan verður því sú, að stjórnarmenn veiðifélaganna snúa sér oft einkum í útleigu veiðiaðstöðu, en fiskræktin situr víða á hakanum enda þótt hún sé nánast undirstaða aukinna tekna í flestum tilfellum. Aðrir aðilar sem þurfa að taka ákvarðanir varðandi veiði og fiskræktarmál eru auk Veiðimálastofnunar einkum Veiðimálanefnd og nú síðustu ár Framleiðnisjóður. Mér er raunar til efs að þeirra aðstaða tii ákvarðanatöku sé nokkru auðveldari en stjórna veiðifélaganna. Að vísu hafa þessir aðilar greiðari aðgang að fag- mönnum, en á móti kemur, að staðarþekkingu skortir oft og erfitt að afla hennar vegna mismunandi skoðana heimamanna. Nýafstaðið Búnaðarþing lagði til að efldar yrðu rannsóknir á ýmsum þáttum varðandi mögu- leika í veiði og fiskræktarmálum. Er það ekki ef til vill það sem brýnast er í dag, en jafnframt verði þess gætt að upplýsingastreymi til veiðifélaga sé mjög ört jafnóðum og nýjar niðurstöður fást. Eins og fram hefur komið eru líkur á mikilli aukningu tekna af veiði á næstu árurn og örrar þróun- ar að vænta. Ég get þó ekki látið hjá líða að lokum að benda á þann draug sem mér virðist líklegastur til að spilla þessu máli í framtíðinni, en það er ósamkomulag innan veiðifélaga og raunar víðast hvar þar sem um veiðimál er fjallað. Virðist þetta ósamkomulag jafnvel geta átt eftir að magnast á næstu árum, því að hætt er við að, ef hagsmunir veiðibænda og stangveiðimanna skiljast að frekar en orðið er, leiði það til þess að stangveiðimenn viljandi eða óviljandi auki á sundrungu veiðibænda. Ég læt þá spjalli þessu lokið og þakka áheyrnina. Frá Bændaskólanum á Hvanneyri: Námskeið í búfræði Að Hvanneyri verða haldin þrjú námskeið fyrir bændur og bændaefni í febrúar og mars n. k. 1. Bændaskólinn á Hvanneyri og Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins halda námskeið í bútækni. Námskeiðið hefst mánudaginn 22. febrúar kl. 1300 og lýkur föstudag- inn 26. febrúar. 2. Bændaskólinn á Hvanneyri heldur námskeið í fóðurrækt, heyverkun og fóðrun. Nám- skeiðið hefst mánudaginn 1. mars kl. 1300 og lýkur föstudaginn 5. mars. 3. Bændaskólinn á Hvanneyri og Stéttarsamband bænda halda námskeið í framleiðslustjórn- un. Námskeiðið hefst mánudaginn 8. mars kl. 1300 og lýkur föstudaginn 12. mars. Kostnaður vegna dvalar þátttakenda að Hvanneyri er áætlaður kr. 500 fyrir hvert nám- skeið. Þar að auki þurfa þátttakendur að greiða námsgögn og ferðir, sem farið verður í. Væntanlegir þátttakendur gefi sig fram í síma 93-7000. Frestur til að tilkynna þátttöku er sjö dögum fyrir hvert námskeið. Skólastjóri. freyr — 59

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.