Freyr - 15.01.1982, Blaðsíða 43
n
1980
r- n-.-
18 20 22 24 26 28 30 32 34 36 38 40 42 44 46 48 60 52
Lengd i sm.
Lengdardreifing bleikju í Hólmavatni við lok hvers vaxtartímabils árin 1971 til
1980 að undanskildum árunum 1974 og 1976.
næstum eingöngu veiddur í net en
veiðin hafði farið minnkandi.
Fyrstu árin eftir 1970 veiddist
mikið af stórum fiski bæði bleikju
ogurriða. Uppúr 1975 virðist stóri
fiskurinn horfinn og efir það hefur
aflinn aðallega verið smár fiskur.
Tilraunaveiðar frá árinu 1971
sýna þetta vel. Á mynd 2 sést
lengdardreifing bleikjunnar úr
tilraunaveiðum 1971—1980.
(Ekki má gera samanburð á fjölda
fiska hvert ár því tilviljun ein
ræður oft aflamagni hvert sinn).
Eins og sést af mynd 2 er varla til
fiskur sem er minni en 30 cm. árið
1971, og eru flestir um 35 cm.
langir og u. þ. b. 1.5 pund á þyngd.
Aldursgreiningar sýna að fisk-
urinn er þá 6—9 ára og ef til vill
eldri. Ef við köllum þessa 35 cm.
>,topp“ í lengdardreifingunni sést
að fram til 1973 hreyfist „toppur-
>nn“ til hægri, þ. e. fiskurinn ^o
stækkar, en engin nýliðun á sér :0
stað. ' 'ú?
Árið 1975 er ,,toppurinn“
horfinn og smáfiskur orðinn alls-
ráðandi í fyrsta sinn. Árið 1977
veiðist í netin næstum eingöngu
smáfiskur með 20—23 cm.
>,topp“. Mest ber á fiski klöktum
árið 1973. Tvö næstu árin á eftir
faerist ,,toppurinn“ til hægri, en
1979 er fiskurinn orðinn sex ára og
nokkur hluti hans kynþroska, þá
um það bil 26—28 cm. langur.
Aldursgreiningar á aflanum
1980 sýna að 1973 árgangurinn,
sem var allsráðandi í vatninu árin
1977—1979, hefur minnkað
mikið, og árið 1980 er mestur hluti
aflans á lengdarbilinu 26—33 cm.
Fiskurinn er klakinn 1973—1976,
en mest ber á 1974 árgangi. Eng-
'nn af aldursgreindum fiski úr
þeim árgangi var kynþroska, þótt
eins árs eldri systkini þeirra væru
það árið áður.
Vöxtur.
Samanburður á lengd bleikju úr
rannsóknarveiðum í Hólmavatni
sýnir að vöxtur hennar hefur
minnkað á síðustu árum. Áberandi
er hve árgangurinn 1973 hefur
vaxið lítið. Petta má útskýra á
þann veg að þegar hinn sterki ár-
freyr — 83