Freyr - 15.01.1982, Blaðsíða 31
Grímstunguheiði, Höfðavatn í
Skagafirði, Mývatn, vötn á Skaft-
ártunguafrétti, vötn á Land-
mannaafrétti, vötn á Holtamanna-
afrétti, Hvítárvatn, Úlfljótsvatn og
Þingvallavatn.
Heimastjórn.
Veiðifélag er ábyrgur aðili veiði-
eigenda á ákveðnu svæði, eins-
konar heimastjórn þessara mála.
Þar eru málin rædd sameiginlega
og þó að skoðanir séu skiptar og
málin viðkvæm, komast menn að
niðurstöðu um ráðstöfun veiði og
fiskrækt, en það eru verkefni
veiðifélagsins, eins og kunnugt er.
Skipuritið.
Grein þessari fylgir skipurit er sýn-
ir flesta grundvallar- og starfsþætti
veiðifélags. Samþykkt og arðskrá
félagsins eru kjölfestan. Að öðru
leyti skýrir skipuritið sig sjálft. Þó
má nefna nokkur atriði til viðbótar
því sem þar stendur og eru mikil-
væg í starfsemi veiðifélags. Petta
eru veiðihús, kort af veiðisvæðinu,
loftmynd af félagssvæðinu ásamt
upplýsingum um landlengd
hverrar jarðar og vegagerð, til að
greiða fyrir för að veiðistöðum.
Með hinni félagslegu stjórnun
hefur margt áunnist til umbóta og
viðhalds á veiði og verðmæti veið-
innar vaxið. Krefst þetta mikils
þegnskapar af veiðieigendum, sem
verða allir að hverfa að einu ráði
sem meirihlutinn ákveður. í um-
ræðu um eign á veiðirétti og nýt-
ingu virðist oft gæta ókunnugleika
á þessu miklvæga fyrirkomulagi,
sem tryggir m. a. almennari og
opnari nýtingu veiði og þar með
stangveiði fyrir þá fjölmörgu, sem
veiðiskpa vilja stunda. Er vandséð
að annað fyrirkomulag henti
betur.
Veiðifélag er einskonar atvinnu-
tæki, sem stuðlar að blómlegri
byggð í sveitum og leggur sitt af
mörkum í þjóðarbúið bæði beint
og óbeint.
Starfið framundan hjá okkur
sem störfum að þessum málum
snýst um það að vera þeim fé-
lögum, sem þegar eru starfandi, til
aðstoðar og leiðbeiningar, eftir því
sem aðstaða er til, og hvetja til og
hjálpa við undirbúning að stofnun
nýrra veiðifélaga. Áætlun sem við
höfum gert á Veiðimálastofnun
bendir til þess að það þurfi að
stofna um 60 félög til viðbótar
þeim tæplega 150 sem þegar eru
komin, til þess að sæmilega sé full-
nægt því ákvæði laga, er lögbindur
veiðifélag við allar ár og vötn í
landinu.
Altalað á kaffistofunni
Hér á eftir fara tvær vísur um laxveiðar. Hin fyrri er eftir prófessor
Skúla Guðjónsson, sem lengst starfaði í Árósum:
Hin er eftir Egil Jónasson á Húsavík:
Tognar lína stælist stöng,
strengir fínir titra.
Hjólin hvína lotulöng
laxar skína og glitra.
Ég hcyrði veiðisögu og henni treysta má.
Af harðneskju var barist og niikið tekið á.
Ég skildi þá af öllu að skepnan var ei smá.
Skúli setti í laxinn, en Heimir sagði frá.
FREYR — 71