Freyr

Årgang

Freyr - 15.01.1982, Side 26

Freyr - 15.01.1982, Side 26
Laxaseiði merkt með örmerkjum í Laxeldisstöðinni í Kollafirði. (Ljósm. Jón Kristjánsson.) mjög tímafrekt, og tekur allt starfsfólk þátt í því að meiru eða minna leyti. Veiðimálastofnuninni berast óskir um leiðbeiningar og upplýsingar á öllum sviðum veiði- mála, og eru beiðendur veiði- eigendur, veiðimenn, fisk- eldismenn, matsmenn, stjórnvöld og erlendir aðilar. Helstu mála- flokkar eru eignarréttarmál, fisk- ræktarmál, fiskeldismál, veiði- leigumál og veiðieftirlitsmál. Fé- lagsmál hafa verið og eru um- fangsmikil. { landinu eru nú starf- andi 146 veiðifélög og fjöldi stangarveiðifélaga. Um félags- málastörfin fjallar Einar Hannes- son, fulltrúi, sérstaklega í annari grein, og skal að öðru leyti vísað til hennar um þau mál. Nátengd leiðbeiningastarfinu er upplýsingaþjónusta, m. a. við sömu aðila og að ofan voru nefndir. Leiðbeiningar og upplýs- ingar eru ýmist veittar í símtölum, á fundum, í fjölmiðlum eða í ritum. Fjöldi greina um veiðimál hafa verið birtar í blöðum, tímaritum og bókum, auk þess sem gefin hafa verið út 32 Fjölrit Veiðimála- stofnunar. Þá hefur ýmsum hlut- aðeigandi aðilum verið sendar álitsgerðir, umsagnir og skýrslur um athuganir og rannsóknir, sem framkvæmdar hafa verið og ekki hafa komið á prenti. Rannsóknir vatnafiska og veiði- vatna Fram til ársins 1969 var starfslið fámennt eins og áður greinir og því takmarkaður tími til að sinna rannsóknum með öðrum störfum. Á þeim árum var safnað hreistri af laxi og silungi til aldurs- greiningar og vaxtamælinga. Unnið var sömuleiðis að merkingu á laxi og silungi og þær auknar verulega eftir að gönguseiða- merkingar í Laxeldisstöðinni í Kollafirði hófust 1963. í Úlfarsá í Mosfellssveit voru veidd í mörg ár lax seiði af göngustærð á leið þeirra til sjávar og þau merkt. Þá fóru og fram kannanir á hrygningu laxins í Úlfarsá í sex haust. Enn- fremur var vatnasilungur merktur í Meðalfellsvatni og Þingvallavatni og sjógengin bleikja í Víðidalsá. Þá voru gerðar tilraunir með fiskræktaraðferðir og fiskeldi. Tilraunir með fiskfóður voru m. a. gerðar í samvinnu við Rannsókn- arstofnun sjávarútvegsins og Raf- magnsveitu Reykjavíkur. Haf- beitartilraunir voru m. a. gerðar í samvinnu við Rannsóknarstofnun sjávarútvegsins og Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Hafbeitartilraunir voru hafnar í Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði og fiskhaldstilraunir gerðar með laxaseiði í Bessa- staðatjörn á árunum 1953—60 í samvinnu við Erik Mogensen stöðvarstjóra við eldisstöð Raf- magnsveitu Reykjavíkur við Elliðaár. Á umræddu tímabili fór einnig fram skoðun á ám og vötn- um víðsvegar um landið. Á árunum eftir 1970 jókst starfsliðið eins og áður segir og þá jafnframt verkefnavalið og aukin verkaskipting var tekin upp. Unnið var áfram að verkefnum fyrri ára. Tiiraunir og rannsóknir með fiskeldi, seiðasleppingar og 66 — FREYR

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.