Freyr

Årgang

Freyr - 15.01.1982, Side 56

Freyr - 15.01.1982, Side 56
Frá rádstefnunni. Á myndinni máþekkja, talið frá vinstri: Bjarna Arason, héraðsráðunaut, Jóhannes Guðmundsson, bónda Ánabrekku, Hauk Jörundarson skrifstofustjóra Landbúnaðarráðuneytisins, Ara Teitsson héraðsráðunaut, Dagbjart Sigurðs- son bónda íÁlflargerði, ÁrnaJónasson, erindreka, GuðmundJ. Kristjánsson Reykjavík, ogÁrna G. Pétursson hlunnindaráð- unaut. skap. í stað þeirra þátta sem þannig hafa horfið sem krefjandi til sóknar í veiðivötnin hefur nán- ast ekkert komið til mótvægis. Markaður fyrir silung hefur yfir- leitt verið lítill, stopull og lélegur þannig að hagnaðarvon af veiðum til sölu hefur með örfáum undan- tekningum verið hverfandi og ný veiðitækni sem aukið hefur veru- legt veiðimagn á tímaeiningu hefur ekki komið fram á sjónarsviðið. Sportveiði í stöðuvötnum hefur heldur varla náð þeirri viður- kenningu að verða verulega eftir- sótt tómstundaiðja. I’ar kemur meðal annars til að í fæstum tilfell- um verður veitt nægilega mikið í stöðuvatni með stangveiði einni saman til þess að halda fiskistofni vatnsins innan hæfilegra marka, eða það gisnum að verulegur hluti fiska nái eftirsóttri stærð. Enn hefur ýtt undir þessa van- nýtingu vatnanna sú útbreidda skoðun að friðun væri til bóta fyrir vötnin ogsú besta ræktunaraðferð. Þannig hafa margir veiðiréttareig- endur borið ugg í brjósti, ef rennt var fyrir fisk í vötn þeirra, og óttast að þar færi síðasti fiskurinn. Það er fyrst nú á allra síðustu árum að þessi villutrú er að þoka fyrir auk- inni þekkingu. Ekki er vafi á því að í veiðivötn- um okkar liggja rnikil verðmæti illa nýtt. Mér verður í því sambandi hugsað til þess að ég var fyrir nokkrum árum á ferð í Noregi í fjalllendi á efstu mörkum birki- skógarins, á landsvæði sem var í sameign bænda þar í sókninni. Þar var töluvert af litlum veiðivötnum sem leigð voru út til sportveiði. Þarna var verið að búa til ný veiði- vötn með ærnum kostnaði með því að stífla upp í mýrasund, þar sem aðstaða var til að mynda dálítið lón, hvert um sig aðeins nokkur hundruð m2 að stærð. Nú er ástæða til að íhuga á hvern hátt við getum nýtt vötn okkar á hagkvæmastan hátt. Þar kemur þá helst til greina fiskveiði. Þrjár leiðir koma þar til greina: 1 fyrsta lagi að veiða vegna þess afla- verðmætis sem kernur á land. í öðru lagi að leigja vötnin til sportveiði og í þriðja lagi að ástunda blöndu af sportveiði og neta- og gildruveiði. Til þess að hagkvæmt sé að stunda veiði í vötnum aflaverð- mætisins vegna og þá sem fastan lið í búrekstri viðkomandi jarðar, þarf ýmsum skilyrðum að vera fullnægt. Markaður þarf að vera fyrir hendi annað tveggja fyrir fiskinn nýjan eða verkaðan á þann hátt að hann þoli geymslu frystur eða reyktur. Sé um síðari kostinn að ræða, það er verkun til geymslu, þarf að vera aðstaða til að verka aflann. Ljóst er að veiðitæki til að veiða umtalsvert magn fiskjar á hverja tímaeiningu. 96 — FREYR

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.