Skólablaðið - 01.05.1993, Page 7
staðan innan dyra var betri en á fyrri
árshátiðinni (Djúpt í hugarheimi).
Komið hafði verið fyrir nýju reif-gólfi
í einum af hliðarsölunum þar sem
Ulfur Eldjám, sem var reyndar talinn
vera með áfengiskrampa, reifaði af
krafti. í sjálfum Súlnasalnum gerði
sálubróðir Úlfs, sjálfur Stebbi P., ít-
rekaðar tilraunir til að fella Erlu
Skúladóttur á dansgólfinu milli þess
sem hann „gekk“ um og fræddi gesti
og gangandi um hver væri bestur í
fjórða bekk. Það verður að teljast
ólíklegt að nokkrum hafi tekist að slá
þessa tvo út, nema ef skyldu vera þeir
sem læstu sig inni á salernum og dóu.
Þeir sem komust klakklaust í gegnum
kvöldið skemmtu sér að því er best
var séð vel. Eftir flutning árshátíðar-
lagsins var fátt eftir (nema fyrir þau
fáu partýdýr sem ku hafa haldið áfram
að skemmta sér á öðrum stöðum) ann-
að en að ná í yfirhafnir og leigubíl og
fara heim að lúlla.
Árshatíðarpiatan
Var ekki með hefðbundnu sniði (átt
við ferningslag plötunnar). Arshátíð-
arlagið Bombaldi Togga baróns var
ferskt og skemmtilegt og flutningur
þeirra Margrétar og Kristbjargar frá-
bær. (Auk þess fær myndbandið +).
Viltu dansa? var því miður ekki jafn-
gott, minnti á Glám og Skrám leikna
aftur á bak. Handhafi Elíasarorðunn-
ar á þó greinilega framtíðina fyrir sér í
textagerð.
SKÓLADLAÐID