Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.05.1993, Page 9

Skólablaðið - 01.05.1993, Page 9
Donfríður SkarphéðinsdótTir: Þonkor um órshótíð / slendingar hafa frá upphafi búsetu sinnar hér á landi fundið sér ýmis tilefni til að halda hátíðir og veislur sér til dægradvalar og skemmtunar. I lífsspeki Hávamála er lögð áhersla á nauðsyn mannlegra samskipta og vináttu. Þar er að finna hina gullvægu setningu „Maður er manns gaman“ sem við vitnum gjarnan til enn þann dag í dag. Sá sem kemur nýr til starfa við Menntaskólann í Reykjavík verður þess fljótt áskynja að skólastarfið hvílir á rótgrónum hefðum. A þetta eflaust bæði við um nemendur og annað starfsfólk skólans. Enginn skóli á Islandi getur rakið sögu sína svo langt aftur sem Menntaskólinn í Reykjavík. Hefðimar eru því fastar í sessi og eðlilegt er að nemendur og starfsfólk vilji halda þær í heiðri. Hefðimar eiga sinn þátt í að skapa á- kveðna festu í skólastarfinu og stuðla án efa einnig að því að með nemend- um og kennurum myndast samhugur og samvinna sem skiptir miklu máli. A öskudaginn, 24. febrúar síðast- liðinn, var haldin glæsileg árshátíð Framtíðarinnar. Nemendur höfðu að vanda unnið af kappi við undirbún- ing. Arangurinn birtist ekki aðeins í fjölbreytilegum frumsömdum atrið- um, heldur einnig í góðum anda og gleði sem alls staðar lá í loftinu dag- ana fyrir árshátíðina og á árshátíðar- daginn. Við tækifæri sem þetta kemur fram í dagsljósið skapandi kraftur nemenda og ýmsir hæfileikar sem ekki eru alltaf sýnilegir í dagsins önn. Vikuna fyrir árshátíð hljómaði tón- list frá íþróttahúsinu þar sem flestir nemendur skólans stigu dansinn af mikilli gleði. Á skemmtuninni á Hótel Islandi síðdegis sýndu nemendur hæfileika sína á sviði hefðbundinna lista eins og leiklistar, tónlistar og danslistar en jafnframt frábæra skipu- lagshæfileika, hugmyndaflug og tækniþekkingu. Þar sannaðist svo ekki verður um villst að sé vel að und- irbúningi staðið verður uppskeran í samræmi við það. Er ástæða til að hafa í huga alla daga ársins hve mikil áhrif við getum sjálf haft á hvemig tekst til með þau verkefni sem við tökum okkur fyrir hendur. Það skiptir sköpum bæði í vinnu og námi hvernig við sjálf undirbúum okkur fyrir loka- atriðið. Undirbúningur fyrir svo veglega samkomu sem árshátíð krefst þátttöku margra en mikilvægast er að með þeim takist góð samvinna. Slíkar samkomur eiga sinn þátt í að þjappa nemendum saman og kenna þeim að vinna saman í stórum og smáuni hóp- um. Sú reynsla sem þannig hlýst er gott veganesti út í lífið. Hið hefðbundna skólastarf er að sjálfsögðu það sem starf nemenda og kennara snýst um frá einum degi til Undirbúningur fyrir svo veglega sam- komu sem ðrshóríð krefst þámöku margra en mikilvægasf er að með þeim rakisr góð samvinna. annars. Ekki má þó vanmeta þá stað- reynd að bestu minningamar frá skólaárunum tengjast oft þátttöku í fé- lagslífi. Oft myndast sterkustu vin- áttuböndin í félagsstarfinu. Loks má ekki gleyma því að öll höfum við þörf fyrir tilbreytingu í daglega lífinu, ekki síst á vetuma þegar dagamir eru stutt- ir og oft strangir. Tilbreytingin gefur okkur oft nýja sýn á verkefni líðandi stundar. Hæfileg blanda af vinnu, skemmtun og slökun er hverjum manni nauðsynleg. Undirrituð naut gestrisni 5.-Z árs- hátíðarkvöldið. Þar komu fram leynd- ir hæfileikar m.a. í karokee-keppni og fótmennt. Vil ég enn og aftur þakka fyrir ánægjulega kvöldstund. Það er von mín að árshátíðin nú á vormisseri svo og aðrir þættir félags- lífsins hafi gefið ykkur, ágætu nem- endur, þann innblástur sem þið þurfið til að leysa með góðum árangri þau verkefni sem blasa við á síðustu starfsdögum skólans. Nú er vert að horfa til þess sem vel hefur tekist í fé- lagslífinu hjá ykkur einmitt vegna þess hve vel var að því staðið að ykk- ar hálfu. Á sama hátt getið þið lagt drög að góðri uppskeru starfs ykkar hér í skólanum í vetur. L SKÓLADLADID

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.