Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.05.1993, Síða 17

Skólablaðið - 01.05.1993, Síða 17
MR-MA Að kvöldi 19. dags febrúarmán- uðar þessa árs þyrptust MR-ingar í VÍ-höllina í Kringluhverfi. Astæð- an var sú að þá skyldi fara fram undanúrslitakeppni í MORFÍS á milli Menntaskólans í Reykjavík og einu verðugu andstæðinga hans, dótturskólans á Akureyri. Hann er einmitt kenndur annars vegar við bæinn sem hann er stað- settur í og hins vegar við skólann okkar. Ástæða þess að Menntaskólinn heldur keppnina í húsi VÍ er flestum kunn, skólinn hefur nefnilega ekki aðstöðu til að taka á móti öllum þeim fjölda fólks sem mætir á at- burð sem þennan, enda er MR ekki einkaskóli og skipar því ekki sérstakan sess hjá yfirvöldum. Það er reyndar annað mál og ekki til umræðu hér. Sem fyrr segir var mikill fjöldi fólks saman kominn til að fylgjast með keppninni og „stemmningin“ býsna góð. Enda var í salnum, auk MR-inganna, allstór hópur Norðanmanna sem reyndi hvað hann gat að halda í við róðrafélagið. Fundarstjóri, Gauti B.E., setti fundinn og kynnti tímaverðina sem að vanda voru tveir, einn úr hvorum skóla. Fulltrúi okk- ar var að sjálfsögðu Öm Ulfar Sævarsson, tímavörð- ur scholae og áhugamaður um ættfræði. Fyrir MA mældi stúlka með bláa derhúfu tímann. Þegar tímaverðir höfðu komið sér fyrir gengu liðin inn á sviðið við fögnuð áhorf- enda, fyrst Akureyringarnir en í kjölfar þeirra fylgdu okk- ar menn - Sveinn Guðmarsson liðsstjóri, Ingvi Hrafn Ósk- arsson frummæl- andi, Úlfur Eldjárn meðmælandi og Stefán Pálsson stuðningsmaður. Að kynningarræðum liðsstjóra loknum tók Ingvi Hrafn til máls og hélt með ágætistilþrifum fram málstað okkar, að maðurinn sé góð- ur í eðli sínu. Því andmæltu MA- menn sem vera ber og beittu einna helst þeim rökum að rétt- ast væri að draga ályktun út frá hegðun manna áður en samfélagið næði að móta þá, þ.e.a.s. í bamæsku eða fornöld, þeir vildu meina að þannig mætti komast að raun um að maðurinn væri ekki góður í eðli sínu. Ræður MA-inga voru nokkuð keimlíkar, aftur á móti skiptust ræður okkar manna í öruggar og rök- fastar ræður frummælandans og fjörugar ræður stuðnings- manna sem hlæðu jafnt gestina sem okkur heimamenn, enda hafa þeir Stefán og Úlfur verið skilgreindir sem blanda af ræðumönnum og „stand-up comidians“. I hlénu milli umferða stréymdu áhorfendur í sælgætis- búðir, en að lokinni keppni sátu menn hins vegar í sætum sínum og biðu úrslitanna. Var það mál manna að keppnin hefði verið nokkuð jöfn og að úrslitin myndu ráðast af því hvernig dómarar tækju gamansemi Úlfs og Stefáns. Á meðan á biðinni stóð steig glottandi drengur í pontu, pilt- urinn reyndist vera formaður málfundafélags Verslunar- skólans og var erindi hans að ávíta róðrafélagsmenn fyrir að stunda svall í einni af fyrirtækjastofum skólans. Þetta var allneyðarlegt og ekki var laust við að verslingurinn hefði ánægju af því er hann hótaði að svipta okkur af- notum af húsnæðinu í fram- tíðinni. Hann ætti þó kannski að líta aðeins í eigin barm, því stuttbuxnalið Verslunarskólans angar æv- inlega af áfengi. Þá fóru fram gjafaskipti milli lið- anna og í kjölfarið reyndi hr. tímavörður að vingast við ungfrú tímavörð með því að gefa hanni árshátíðarplötu Framtíðarinnar, sú viðleitni bar ekki árangur. Vegna nýs tölvuforrits sem dómarar nota við útreikninga sína fengust úrslit svo fljótt að ekki gafst tími til að sýna hreyfimynd frá Framtíðinni. Þrátt fyrir að mikil spenna og eftirvænting hafi ríkt eftir úrslitum jókst hún um helming þegar oddadómari til- kynnti að munur á stigafjölda efsta og neðsta ræðumanns væri aðeins 27 stig og munur á liðun- um 14 stig. Titillinn „ræðumaður kvöldsins“ féll stuðningsmanni MA-liðsins í skaut en sigurinn var MR-inga. Sigmundur D. Gunnlaugsson, 4.U. Ræður MA-ingo voru nokkuð keimlíkor, oftur ð móri skiptust ræður okkor monno í öruggor og rökfostor ræður frummæl- ondons og fjörugor ræður stuðningsmonno L SKÓLADLADID

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.