Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.05.1993, Síða 32

Skólablaðið - 01.05.1993, Síða 32
SKÓLADLAÐID sem mér fannst nauðsynlegur vegna ævintýrisins. Leikarahópurinn stóð sig í heild með prýði þó menn hafi passað mis- vel inn í hlutverkin sín, einstaka menn fipast í línum sínum og einhverjir misst leikmuni út úr höndunum. Að öðrum ólöstuðum vil ég þó minnast Elínar Lilju Jónasdóttur sem mér fannst eiga frábæran leik sem Elsa. Framsögn hennar var skýr og túlkun sannfærandi. Markús Þór Andrésson var góður sem Lancelot og Hrannar Már Sigurðarson var sannfærandi sem hinn tækifærissinnaði Hinrik. Olafur Darri Olafsson átti einnig góða takta sem hinn geðbilaði borgarstjóri. I heildina litið tel ég uppfærsluna hafa heppnast vel og aðstandendur mega vera nokkuð stoltir af enda hef- ur mikið af hæfileikaríku fólki komið þar við sögu og á ég þá bæði við leik- ara, tónlistarfólk og aðra sem með sýninguna höfðu að gera. Ég átti góða kvöldstund í leikhúsinu. 32 Lovísq Leifsdóttir, 5.Z Á Herranótt 1993 Ár hvert þegar sól er farin að hækka aftur á lofti og snjóa jafnvel tekið að leysa hefjast sýningar á Herranótt. Að þessu sinni varð fyrir valinu Drekinn eftir Uzbekistanska rithöfundinn Jewegeni Schwarz. Verkið er háðsk ádeila á hið einræðis- lega stjómarfar sem ríkti í Sovétríkj- unum og var skrifað árið 1942 á valdatíma Stalíns. Verkið var að sjálfsögðu bannað á sínum tíma enda þarf ekki að kafa mjög djúpt til þess að verða ádeilunnar var þó verkið sé á formi ævintýris. I stuttu máli fjallar leikritið um það þegar riddarinn Lancelot kemur til borgarinnar sem hefur verið undir ægistjóm dreka nokkurs í fjöldamörg ár. Hann tekur óbeðinn að sér það hlutverk að frelsa borgina úr klóm drekans í óþökk flestra borgarbúa sem annað hvort hafa sætt sig við kúgun- ina eða telja sig geta haft gott af drek- anum. Og auðvitað er hann að bjarga fallegri stúlku í leiðinni. Sýningin heppnaðist vel að mér fannst. Leikmyndin var alveg sér- staklega skemmtileg, sú besta sem ég hef séð á sýningum í Tjamarbíói. Einnig fannst mér öll tæknivinna hafa tekist vel svo sem öll hljóð og ljós. Tónlistin sem mér skilst að hafi verið frumsamin fyrir þessa uppsetningu var bæði fallega leikin og hæfði sýn- ingunni vel. Búningar voru líka skrautlegri og fallegri en oft áður og settu skemmtilegan svip á sýninguna

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.