Skólablaðið - 01.05.1993, Page 33
K*I«N*N
Spurt 09
svarað ó
frumsýn-
ingu
Hvernig fannst þér sýning
Herranœtur á verkinu Drekinn?
Margrét Sigurðardóttir, nemi.
Mér fannst þetta mjög skemmtileg
og vel gerð sýning eins og Herranætur
er von og vísa.
Hallmar Sigurðsson, leikstjóri.
Guðbergur Bergsson rithöfundur
sagði eitt sinn að listamaður óttaðist
gagnrýnandann á svipaðan hátt og
geðsjúklingur geðlækni. Því er aldrei
hægt að spyrja þátttakanda í ævintýri
um það meðan það stendur enn.
Magnús Geir, Inspector.
Það var mjög gaman á þessari leik-
sýningu. Leikritið var bráðskemmti-
legt og ofsalega fallegt sjónrænt og
mikil skemmtun. Tónlist gerði einnig
stóra hluti.
Pétur Ingi, tónlistarmaður.
Þetta var mjög öflugt, ég er drullu
ánægður nteð þetta.
Egill Arnars, leikari.
Þetta tóks mun betur en ég átti von
á og undirtektir voru mjög góðar, sal-
urinn gerði mikið eins og hann í
rauninni gerir alltaf.
SKÓLADLAÐ IÐ