Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.05.1993, Síða 37

Skólablaðið - 01.05.1993, Síða 37
MAMBÓ fyrir byrjendur Hvoð er þetta MAJVIDÓ? MAMBÓ er félagsskapur listamanna og listunnenda sem aðhyllast hina svo- kölluðu MAMBÓ-stefnu. Hlutverk MAMBÓ er að gefa ungu fólki kost á því að tjá sig í hinu gelda neyslusamfélagi hins steinsteypta nú- tíma og að fletta ofan af spillingunni og úrkynjun sem leynist undir hinu svipblíða en yfirborðskennda velferð- arþjóðfélagi sem við búum í. Gætirðu útskýrt hina svokölluðu MAMBO-stefnu í örfáum orðum? Já, alveg sjálfsagt. MAMBÓ gæti útlagst sem „hið yfimáttúrulega og guðdómlega í lífinu og listinni“. MAMBÓ er nokkurskonar samheiti yfir öll bestu einkenni listarinnar og stórkostlegustu fyrirbæri lífsins, það má segja að MAMBÓ sé rjómi rjómans, eða crém de la créme. Allir stefna að einhverju takmarki í lífinu sem þeir geta ekki útskýrt fullkom- lega fyrir sjálfum sér og geta þarafleiðandi aldrei náð því. MAMBÓ er þetta takmark sem allir stefna að og eina leiðin til að ná því er þarafleiðandi að gera allt samkvæmt MAMBÓ-stefnunni, að vera MAMBÓ-isti. MAMBÓ er sameigin- leg tíðni allra mannlegra tilfinninga og útvarp sálarinnar. Það er MAMBÓ hér á malbikinu í Reykjavík. Það er MAMBÓ á malarvegunum úti á landi. Það er MAMBÓ allsstaðar bara ef maður vill hafa það. MAMBÓ-istar reyna að rækta með sér hina doppóttu, skærlituðu fegurð andans. Hina flekk- óttu en jafnframt flekklausu sálarró geðsjúklingsins. Hina köflóttu hugsun hins tilfinningaríka stjómmálamanns. Að ná fullkomnu MAMBÓ-i er að geta tjáð tilfinningar sínar og vera til- finningalaus á sömu stundu. Að geta blekkt aðra og trúað blekkingunni sjálfur. MAMBÓ er allt það sem þig hefur dreymt um á nætumar en aldrei þorað að dreyma um á daginn. Fyrir þá sem vilja glöggva sig betur á MAMBÓ-stefnunni vil ég benda á eftirfarandi rit: „Lipstick Traces“ eftir Greil Marcus, „Sovétríkin" eftir Nikolaj N. Mikhaílov, „Skært lúðrar hljóma, saga íslenskra lúðrasveita“ sem gefin er út af sambandi íslenskra lúðrasveita, „Mánniskan, Naturen og Samhállet“ eftir Isling og Cullert, „Ein á forsetavakt“ eftir Steinunni Sigurðardóttur, „Útlendingurinn“ eftir Albert Camus, „Duran Duran“, „Vís- ur Æra Tobba“, „1984“ eftir George Orwell og „The Third Policeman“ eft- ir Flann OÆrien. Einnig vil ég benda á eftirfarandi hljómplötur eða geisla- diska: „Never Mind the Bullocks“ með Sex Pistols, „Angel Heart“ með Trevor Jones og Courtney Pine, „Are we a Warrior" með Ijahman, „Naked city“ og „Spillane“ með John Zorn, „Survival“ með Bob Marley and the Wailers, „Á bleikum náttkjól“ með Megasi og spilverki þjóðanna, og allt hljóðritað efni með Elvis Presley. Að AAAMBÓ er someiginleg fíðni allro monnlegro rilfinninga og útvarp solorinnQr. lokum langar mig að geta nokkurra kvikmynda sem ekki væri verra að berja augum: Hvítir Mávar, Konur á barmi taugaáfalls, Hiroshima Mon Amour, Angel Heart, Wild at Heart, The Magic Christian, allar Star-Wars myndimar að undanskildu bangsaat- riðinu í Star Wars III, Subway og Indiana-Jones myndirnar. Hvernig kemst ég í MAMBÓ? Einfalt, þú fyllir út umsóknareyðu- blað saem þú getur fengið hjá ein- hverjum af félögum hreyfingarinnar, og skilar því til ábyrgra aðila. Síðan verður vegið og metið af miðstjóm, skrifræðisdeild og ritskoðunamefnd hverjir komast inn og hverjir ekki, og hverjir þurfa að gangast undir inn- tökupróf. Hverjir stjórna MAMBÓ? Það er fimm manna miðstjóm skip- uð fjórum ræðismönnum og ritara. En auk miðstjómarinnar er skrifræðis- deild sem kemur í veg fyrir að mið- stjórn og aðrar nefndir misbeiti valdi sínu og leiðréttir hugmyndafræðilegar villur sem kunna að fyrirfinnast í framkvæmdum hreyfingarinnar. Rit- skoðunardeild rannsakar allt sem er skrifað og sagt innan hreyfingarinnar og sker af því ljótustu lýtin. Þjóð- ræknisdeild hefur það hlutverk að uppfræða unglinga á tölvuöld um landið, söguna, málið og skyldur þeirra. Þjóðvamardeild miðar að því að undirbúa landann til að grípa til vopna og verja land og þjóð ef öryggi og sjálfstæði þjóðarnnar er stefnt í hættu. MAMBÓ publishing house er útgáfufyrirfæki MAMBÓ-hreyfmgar- innar en það er einnig tengiliður MAMBÓ-hreyfingarinnar við ýmis félög annars staðar á hettinum. Innan MAMBÓ publishing house starfar sjálfstæð ritskoðunardeild og einnig samstarfshópur um að koma bákninu burt. Einnig er vert að minnast á ferðafélagið „Langi Mangi“, skylm- ingafélagið „Lunch“, kvenfélagið „Ung, gröð og rík“ og á nýstofnaða fótmenntadeild hinnar íslensku MAMBÓ-hreyfingar sem miðar að því að efla dans- og skautaiðkun. Á hvaða hátt tengist MAMBÓ Menntaskólanum í Reykjavík? Stór hluti MAMBÓ-hreyfingarinn- ar eru nemendur í M.R. og M.R hefur útskrifað marga helstu lærifeður MAMBÓ-ismans, t.d. Siggu nobody og Hannes Jón. En það má einnig geta þess að á myndlistarsýningu nemenda M.R. síðastliðinni voru verk í MAMBÓ-stíl meðal annars eftir Úlf Eldjárn og Ragnar Kjartansson, og flestir muna eftir leikritinu „Hvar er Valli“ sem sýnt var á árshátíð Fram- tíðarinnar, en að því stóð leiknefnd MAMBÓ „Infúsoría“. En það er ekki allt enn upptalið því á döfinni er að stofna sérstaka MAMBÓ-mennta- deild innan listafélags M.R. Afhverju ekki þú og ég? Já, afhverju ekki? Miðstjórn hinnar íslensku MAMBÓ-hreyfingar Úlfur Eldjárn Ragnar Kjartansson Þorlákur Einarsson Isar Logi Sigurþórsson Páll Hilmarsson, ritari SKÓLADLAÐIÐ

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.