Skólablaðið - 01.05.1993, Page 39
þess hve matur er af skomum
skammti í Litháen þurftum við að
panta þrjá aðalrétti fyrir hvern. Lithá-
ar eru mjög siðað fólk og kom það
bersýnilega í ljós hjá dömunum þegar
þeim var boðin máltíð sem tæki mán-
uð fyrir þær að vinna sér inn fyrir og
vildu ekki þiggja það í fyrstu.
í janúarmánuði árið 1991 vörðust
Litháar árásum rússneska hersins í
sjálfstæðisbaráttu sinni sem féll því
miður í skugga Persaflóastríðsins og
beið þá fjöldi fólks bana. Þar á meðal
vom nemendur úr skóla mokkrum
sem okkur var boðið að heimsækja.
Skólastjórinn tók okkur tali og lýsti
atburðunum og þakkaði sérstaklega
fyrir það að Islendingar höfðu fyrstir
allra þjóða viðurkennt sjálfstæði Lit-
háen. Þar næstskýrði hann vel og
lengi frá því hvernig væri að breyta
skólanum í lýðræðislegan skóla.
Hann lýsti því yfir að hann gæti brátt
talist frumkvöðull í því að laga skól-
ann að þörfum nemenda.
Við opnunarathöfn keppninnar hélt
litháenskur háskólaprófessor mikla
hátíðarræðu. Greindi hann frá ástæðu
þess að Islandi var boðin þátttaka í
stærðfræðikeppni Eystrasaltsland-
anna. Hann fór mörgum lofsamlegum
orðum um það hvemig Island hefði
staðið að viðurkenningu sjálfstæðis
Litháen og klappaði samkundan okk-
ur oft upp fyrir það. Bað hann for-
svarsmenn hinna liðanna um að bjóða
okkur framvegis í þessa keppni vegna
þessara afreka.
Næturlífið í Vilnius má teljast með
betra móti þó með einni undantekn-
ingu sem ég mun nú greina frá. Fyrsta
kvöldið vorum við staddir á bar þar
sem skemmtanagildið var farið að
stefna á hið óendanlega. Við buðum
gestum staðarinsins upp á fría drykki
á meðan við smökkuðum á hinum
ýmsu drykkjartegundum. Við eyddum
í hvívetna og höfðum hreinlega lagt
undir okkur staðinn. En á miðnætti
átti allt í einu að loka honum. Starfs-
mennimir sögðust ekki fá hærri laun
þótt þeir hefðu opið lengur. Þeir ætl-
uðu því að loka þótt velta staðarins
væri nú margfalt meiri en á venjulegu
kvöldi. Við ætluðum okkur ekki að
láta þarna staðar numið og hugðumst
finna almennilegan skemmtistað sem
væri opinn lengur. Stelpumar sögðust
vita um einn stað sem mjög dýrt væri
að komast inn á en þegar var komið
reyndist það kosta aðeins 50 krónur.
Upphófst nú mikil gleði og skemmtan
þar sem ekkert var til sparað. Ekki
leið á löngu þar tið kabarettsýning
hóst og voru sýnd ýmis dansatriði.
Við óttumst hafa fundið þungamiðju
skemmtanalífsins í Vilnius og sóttum
þennan stað fast næstu kvöld á eftir.
Við létum hin keppnisliðin vita af
þessum stað en fáir sýndu því áhuga
og þóttust ýmist vera uppteknir við
lærdóm eða þurfa að fá sinn gáfna-
svefn. Nokkrir Danir voru þó til í
tuskið og tóku þátt í gleðskapnum.
Það hefur óneitanlega sýnt sig að
kynnist ekki við að leysa stærðfræði-
Srelpurnar sögðusr
vira um einn srað
sem mjög dýrr
væri að komasr
inn ð en þegar
þangað var komið
reyndisr það kosra
aðeins 50 krónur.
í örkinni hans Nóa
eru fjögur búr og í
þau þarf að serja ö
dýraregundir. í Ijós
kemur að sérhver
regund ð í mesra
lagi 3 óvinareg-
undir, sem ekki
gera vprið með
henni í búri.
dæmi heldur við glaum og gleði.
Þessi stærðfræðikeppni var sveita-
keppni þar sem keppendur innan
hvers liðs hjálpast að og er þess eðlis
að þeir þurfa að vera samhentir. Við
bygðum upp mjög góðan keppnisanda
á kvöldstundum sem fyrr var getið
enda skilaði það sér í árangri liðsins í
keppninni. Þess má svo geta að við
vorum landi okkar ávallt til sóma og
það var einhlítt álit stelpnanna að Is-
lendingar væru skemmtilegasta fólk
sem fyrir finndist.
Oftar en ekki hefur verið rætt um
niðurskurð í ríkisbatteríinu hér á landi
og hefur löggjæslan þótt ýkja dýr. I
Litháen hefur sjálfsbjargarviðleitnin
hins vegar komið til hjálpar því þar
sinnir lögreglan leigubílaakstri með
með lögreglustörfunum. Það vakti
nefnilega athygli okkar að á kvöldin
taka margir Litháar ókunnugt fólk af
götunni og keyra það á laun og ekki
gefur lögreglan samborgurum sínum
eftir þegar dollarar eru í veði.
I keppninni voru 20 dæmi og nem-
endum til fróðleiks birti ég hér eitt
þeirra...„I örkinni hans Nóa eru fjögur
búr og í þau þarf að setja 8 dýrateg-
undir. I ljós kemur að sérhver tegund
á í mesta lagi 3 óvinategundir, sem
ekki geta verið með henni í búri.
Sannið að hægt sé að skipa dýrunum í
búr þannig að sérhver tegund deili
búri með vinum sínum.“ Hér sést
augljóslega hve nytsamleg stærðfræð-
in getur verið.
Við vorum mjög ánægðir með ár-
angur okkar þó alltaf megi gera betur.
Við urðum í fimmta sæti af átta og
fengum 55 stig á meðan Danir unnu
keppnina með 80 stig. Það eitt að vera
fyrir ofan Svía í keppninni gaf okkur
sérstakt tilefni til að fara sérlega glað-
ir út á á lífið. Lettland og Litháen
voru einnig fyrir neðan okkur.
SKÓLADLAÐID