Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.05.1993, Side 43

Skólablaðið - 01.05.1993, Side 43
Sigurður Jökull og Eiríkur Slonley Kubrick Fáir kvikmyndaleikstjórar hafa markað jafn djúp spor í kvikmyndasögunni og Stanley Kubrick, en síðustu 40 ár hefur hann verið leiðandi í bresk-amerískri kvikmynda- gerð. Fjölbreytni og fullkomnun hafa leitt til þess að mynda hans hefur ætíð verið beðið með eftirvæntingu, en einnig hafa myndir hans sætt harðri gagnrýni enda eru þær flóknar og ádeilufullar. Stanley Kubrick fæddist í Bronx hverfinu í N.Y. Þann 26. júlí 1928. Á unga aldri dreymdi hann að verða djass trommu- leikari, en kvikmyndum kynnt- ist hann með reglulegum bíó- ferðum með mömmu gömlu. Það ásamt óbilandi áhuga á skák og ljósmyndun segir hann að hafi stuðlað að áhuga sínum á kvikmyndagerð. „Skákinn veitir manni þá þolinmæði og þann aga sem kvikmyndagerð þarfnast“ segir Kubrick og und- irstrikar það með því að byggja atriði í myndum sínum upp eins og taflleik. Skólaganga Kubricks einkenndist af agaleysi og fljótlega náði ljósmyndun tökum á honum og að lokum fékk hann vinnu sem ljósmyndari hjá tímaritinu Look. Á þeim 4 árum sem hann starfaði hjá Look óx kvikmynda- áhugi hans jafnt og þétt og birtist í stutt- um heimildarmynd- um. Það var svo árið 1953 að hann gerði sína fyrstu mynd og bar hún nafnið Fear and Desire. Fear and Desire var stríðsdrama sem þótti kvikmyndalega séð vel gerð en leikur og handrit Þótti Þeim mun síðra. Sömu vankanntar voru á annari mynd hans, Killers kiss, en hún fjallar um hnefaleika- kappa sem verður ástfanginn af stúlku ) sem hann síðan bjargar frá yfirmanni hennar. Myndin gerði honum samt sem áður kleift að fjár- magna næstu mynd sína The killing sem veitti honum í fyrsta skipti almenna við- urkenningu. Hópur manna skipuleggur rán á veðhlaupabraut en áætlunin fer úrskeiðis. Myndin var mjög góð af svo ungum leikstjóra og sagan var sögð á óvenjulegan hátt. Sem dæmi má nefna að hún hafði gríðarleg áhrif á Quentin Tarantino leikstjóra Reservoir dogs. Kubrick hafði alltaf langað til að gera kvikmynd eftir sögunni Paths of glory og árið 1957 rættist sá draumur. Það má sanni segja að þetta verkefni hafi farist hon- um vel úr hendi en myndin er enn þann dag í dag talin ein hans allra besta. Paths of glory var beinskeytt stríðsádeila, en hún fjallar um 3 franska her- menn sem skotnir eru fyrir heig- ulskap en voru þó valdir af handahófi. Myndin gerði mik- inn usla t.d. í Frakklandi þar sem hún var bönnuð í mörg ár. Nú voru Kubrick allir vegir fær- ir og stóru kvikmyndaverin kepptust um hann. Að lokum fengu þeir hjá Universal hann til að gera stórmyndina Spartakus sem fjallaði um þrælin sem leiddi þrælauppreisn á tímum Rómaveldis. Myndin var dæmigerð stórmynd á þessum timum og að mestu leyti laus við það sem einkennt hefur Kubrick allar götur síðan. Næsta verkefni hans var að kvikmynda hið um- deilda verk Nabokovs Lolita enda hafði Kubrick þann háttinn á að leita í umdeildar skáldsögur, en sögu- þráðurinn var á þá leið að miðaldra maður verður ástfanginn af fósturdóttur sinni, tán- ingsstúlku. Mjög um- deildir dómar hafa leitt til þess að mynd- in hefur fallið í skugg- ann af öðrum mynd- um hans enda telst hún smámynd á hans mælikvarða. Annað verður sagt um næstu rnynd hans Dr. Strangelove, háðska stríðsádeilu sem skart- aði stórleikurunum George C. Scott og Peter Sellers sem fór með þrjú hlutverk, sem voru breskur liðs- foringi, forseti Banda- ríkjanna og geðveikur vísindamaður (sieg Á ungo oldri dreymdi hann að verða djass rrommuleikari, en kvikmyndum kynnfist hann með reglulegum bíóferðum með mömmu gömlu. Frá vinstri Suzanne Christiane tilvonandi kona Kubrick. Stanley Kubrick og Kirk Douglas taka kaffihlé frá myndatöku. SKÓLADLAÐIÐ

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.