Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.05.1993, Síða 45

Skólablaðið - 01.05.1993, Síða 45
PqII Hilmorsson, 3.-C: lotning rottu We’re gonna steal your mail by the pail moonlight We better not get caught We’ll be dumped in institutions Where we’ll be drugged and shocked ‘till we come out bom-again christ- ians.... (J. Biafra) Sumir munu kalla mig óþverra. Sumir munu kalla mig geðveikan. Sjálfur kýs ég að kalla mig áhuga- mann um innviði samfélagsins. Eg stel pósti. Skotmörk mín eru aðallega stigagangar fjölbýlishúsa eða að- gengilegar bréfalúgur. Bestu veiði- svæðin, samkvæmt áralangri reynslu, eru: Hverfisgata, Eiðisgrandi, Öldu- grandi og gamli Vesturbærinn. Hvers vegna? Jú, ég á margt sameiginlegt með rottunum. Þessum yndislegu mjúku meindýrum sem nærast á hirðuleysi mannanna. Það er lygilegt hversu opinskátt fólk getur verið í einkabréfum sínum. Innileg bónorð, hatursfull uppsagnarbréf eða bara fal- legar fjölskyldumyndir. Öllu þessu smeygir fólk í umslög sannfært um að þetta komist í réttar hendur. Vissulega vorkenni ég fórnarlömbum mínum og skammast mín fyrir að leggja líf þeirra í rúst, en ef ég stæli ekki þess- um bréfum mundi bara einhver annar gera það. Verknaðurinn sjálfur er furðueinfaldur og venst býsna fljótt. Nauðsynlegustu hjálpartæki eru: frí- merkjatöng, kúbein, höfuðlykill að póstkössum (sem útvega má gegnum erlenda póstlista) og ef um mjög við- kvæm málefni er að ræða getur hjálp- að að búa yfir “bréfaloku”. En póst- þjófnaður er áhugamál sem krefst þol- inmæði. 99,9% fengsins samanstendur af auglýsingum, bankayfirlitum eða gjaldföllnum gíróseðlum, en inn á milli eru hreinustu perlur. Tökum sem dæmi tyrkneska innflytjandans sem sendi vinkonu sinni „Erlu“bréf þar sem hann lýsti tilfinningum sínum í garð hinnar ungu stúlku. Grípum nið- ur á góðum stað. „Know I’ve raelly know that i've found the girl that i love with a big L. She is not miss Iceland exactly but she has something verry verry beutiful inside I don’t know how to discribe it for you. The only thing that I knowfor shore is that this lady is the one I gonna do everything for. If I ever gonna have any children and get Að stela annarra manna pósri er ekki bora spenn- andi, heldur er það alveg ótrú- lega fræðandi og óhugavekjandi. merried with. Than I going to give this lady and ouer children one thing I never had have from my parents or enyone ells that is a real love not a life with a keychildren in my famély that isfor shore. “ Undir lok bréfsins kemur svo í ljós að þessi yndislega stúlka var í raun hinn fyrirhugaði viðtakandi. Öllu skemmtilegra var þó bréf norskrar stúlku til íslensks föður síns, þar sem hún reyndi að koma á sáttum milli þeirra og tilkynnti honum að hann væri orðinn afi. Er hægt að hugsa sér meiri örvæntingu en þetta: „Hvis du og mamma ikke er venner ná, sá kan vel vi opprette gjensidig kontakt. Mamma vil ikke höre snakk om deg, men dette har ikke hun noe med. Den 153.1992 ble du bestefar til en liten gutt som jeter Oyvind. Du kan vel i det minste sende oss et kort sá vi fár vite om vi skal forsette me á pröve áfá kontakt med deg. Tenker du aldripá meg????“ Með þessu bréfi fylgdi ljósmynd af yndislegu barni að sjúga brjóst móður sinnar. Þessi mynd prýðir nú korktöfl- una í eldhúsinu heima hjá mér og heilsar mér glaðlega á hverjum morgni. Það er nefnilega svo gefandi að taka virkan þátt í persónulegu lífi fólks. Að stela annarra manna pósti er ekki bara spennandi, heldur er það al- veg ótrúlega fræðandi og áhugavekj- andi. Þið getið kallað mig rottu og jafnvel líka geðveikan óþverra. En það sögðu þeir líka um Eichman. SKOLADLADIÐ

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.