Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.05.1993, Page 46

Skólablaðið - 01.05.1993, Page 46
SKÓLADLAÐID Margrét Sigurðordórtir, ó.-M: Söngkeppni jyiennloskólons í Reykjovík 27. janúar síðasliðinn fór fram Söng- keppni Menntaskólans í Reykjavík að Hótel íslandi. Þátttaka hefur aldrei verið meiri en 22 at- riði kepptu um farandsleirkrukkuna og mat fyrir tvo á veitingastaðnum Við tjörnina. Innan hvers atriðis voru svo ýmist einn eða fleiri sem hófu upp raust sína. Kynnar kvöldsins voru Jakobína Zoega og Jónas næturgali en hann opnaði einmitt keppnina með stórsöng sínum. Það voru fáir MR- ingar sem létu sig vanta á íslandið þetta kvöld og kom það sér einkar vel að háttvirtur inspector, Magnús Geir, hafði komið fyrir miklum lím- bandsvef frá sviðinu að áhorfendum svo tryggt væri að trylltur lýðurinn héldi sig í hæfilegri fjarlægð frá söngstimum. Sumir gátu þó ekki haldið aftur af sér og æddu í gildruna. Máttu þeir sitja þar fastir það sem eft- ir var kvöldsins enda vefurinn þéttur og límið sterkt. Olli þetta litlum trufl- unum og keppnin fór fram með mikl- um glæsibrag. Þama var auðséð að MR-ingar búa yfir fjölda prýðilegra söngvara og tel ég fullvíst að a.m.k. átta þeirra hefðu getað farið í aðal- keppnina, Söngkepnni Framhalds- skólanna, sem mjög frambærilegir fulltrúar Menntaskólans. Ef keppend- ur hins vegar bjuggu ekki yfir grunn- tækni í söng bættu þeir það upp með stórskemmtilegri framkomu. Útkom- an varð mjög fjölbreytt og skemmti- leg keppni sem ýmist kitlaði heyrna-, sjón- eða hláturtaugar. (Hér vill þó undirrituð benda á að þama var ekki verið að keppa um lag eða texta held- ur FLYTJANDA). Hljómsveit skipuð mektarfólki inn- an skólans að mestu stóð sig ágætlega þetta kvöld þótt hins vegar hafi hljóð- blöndun verið hörmuleg þannig að stundum yfirgnæfðu einstök hljóðfæri söngvana. Þetta olli þó engum alvar- legum skaða í þetta skipti. Stórtón- listarmennimir Guðmundur Pétursson Hljómsveif skipuð mektorfólki innon skólons qó mesfu sfóö sig ágæflego þeffo kvöld þóff hins vegor hofi hljóðblöndun verið hörmuleg þonnig qó sfundum yfirgnæfðu einsfök hljóðfæri söngvanQ. og Karl Olgeirsson veittu aðstoð sína í lögum Lindu og Kristbjargar og var sú aðstoð mjög skemmtileg áheymar. Þegar keppninni lauk héldu hótel- gestir á skemmtistaðinn Berlín, nema þeir sem voru fastir í límbandsvefn- um. Flestir sneru þó aftur til gisti- hússins góða þar sem úrslit vom til- kynnt. Skemmst er frá að segja að í 3. sæti var ung snót úr 3. bekk ; Helga Magnúsdóttir. í öðru sæti varð ung stúlka sem oft hefur skemmt söng- elskum Menntaskólanemum og nú síðast allri þjóðinni í þættinum hans Hemma vinar okkar allra; Krisbjörg Kari Sólmundardóttir. Sigurvegari keppninnar í ár var eins og flestum er kunnugt önnur þriðjubekkjarsnót Þór- anna Jónbjömsdóttir sem söng lagið Dimmar rósir. Eg efast um að áður hafi Menntaskólinn búið yfir annarri eins fjöld ágætra söngvara og þótt stór hluti þeirra hverfi á næsta ári úr skól- anum finnst mér ekki úr vegi að benda komandi Herranæturstjóm á að velja það verk sem fært verður upp á næsta ári með tilliti til þeirra miklu sönghæfileika sem Mennskælingar búa yfir..

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.