Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1934, Side 86

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1934, Side 86
68 Tímarit Þjóðræknisfélags íslendinga kringlu, en fjör og flug eru í frá- sögninni thjá Carlyle, mörg leiftur hans lifandi ritsnildar. 1 þessu sambandi má nefna. tvö yngri samtíðarskáld Carlyle ’s, amerísk, þá Henry Wadsworth Longfellow og James Russell Lowell, sem báðir tóku sér vrkis- efni úr íslenzkum fornritum. Um Long-fellow má bæta því við, að það var fyrnefnd Heimskringiu- þýðing Laing’s, sem kom skáldinu til að leita. sér viðfangsefna í forn- ritum vorum; er þar fyrst að telja kvæði Longfellow’s “The Challenge of Thor” (Þórseggjan), norrænt mjög að bragarliætti og anda, inngangskvæðið að kvæða- floltki hans um Ólaf konung Tryggvason (“The Musician’s Tale”) í ritinu “The Tale.s of a Wayside Inn (1863); en þó margt sé þar snjallra lýsinga og frá- sagna, nær skáldið hvergi nærri eins vel forn-íslenzkum anda og stílþrótti og hann gerði í “Þórs- eggjan” sinni. Ekki er þó að efa það, að þessi kvæðaflokkur Long- fellow’s varð til þess að draga at- hygli fjölda nýrra lesenda að ís- lenzkum fornsögum. Lowell orkti eitt merkiskvæði um íslenzkt efni “The Voy- age to Vínland” (Vínlandsferðin, 1868), og er það miklu norrænna að blæ og anda heldur en kvæða- flokkur Longfellow’s um Ólaf Tryggvason. Víða annarsstaðar í kvæðum Low-ells bregður fyrir samlílringum • úr íslenzkum forn- ritum og tilvitnunum úr þeim, og' er því bersýnilegt, að hann hefir verið harla kunnugur fomsögum vorum og fornkvæðum. Um Vínlandsferðirnar — Ame- ríkufund Islendinga-—hafa ýmsir aðrir enskir og amerískir rithöf- undar samið skáldrit, og er lítt að kynja, þó afreksverk þetta í sigl- ingum og landafundum hafi heill- að hugi sögu- og ljóðskálda. Robert M. Ballantyne, skozkur rithöfundur reið þar fyrstur á vað- ið með skáldsögunni “Norsemen in the West” (Norrænir menn vestra, 1872), en lélega er þar á sögulegu efni haldið, frásögnin dregin á langinn og því leiðinleg. Þó var bók þessi prentuð sex sinnum á átta árum í Lundúnum, og hefir f'ólk af þeim viðtökum að dæma g'irnst að lesa um ferðir þessar, en litlum [vinsældum átti hún hins- vegar að fagna í Vesturheimi. Miklu betur sögð og skemtilegri er skálds’agan “The Thrall of Leif the Lucky” (Þræll Leifs heppna, 3902), eftir Ameríkukonuna Ot- tilie Adeline Liljencrantz, enda heldur liún sér stórum fastar við jörðina og söguleg sannindi held- ur en margir þeir, sem ritað hafa um þessi efni og fylt óspart í eyð- urnar með taumlausri ímyndun sinni. Önnur amerísk skáldkona, Genevra Snedden, gaf út fvrir ekki mörgum árum síðan (1924) prýðisvel sagða, fjöruga og fróð- Jega unglingasögu um svipað efni, “Leif and Thorkel” (Leifur og" Þorkell), og fléttar inn í frásögn- ina glöggar lýsingar á siðum ogv lífi norrænna manna. Skáldsaga Maurice Hewlett’s um Guðríði konu Þorfinns Karlsefnis verður tekin til athugunar með öðrum skáldritum þess höfundar lít af efni úr íslenzkum fornsögum. Ýmsir hafa því ráðist í, að færa í skáldsögubúning atburðaríka æfi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.