Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1935, Page 3
Ctmant
Þjóðræknisfélags Islendinga
XVII. Árgangur
Tilgangur félagsins er:
.i. Að stuðla að því af fremsta megni að íslendingar
megi verða sem beztir borgarar í hérlendu þjóðlífi.
2. Að styðja og styrkja islenzka tungu og bókvísi í
Vesturheimi.
3. Að efla samúð og samvinnu meðal íslendinga austan
hafs 0g vestan.
Þetta er sá félagsskapur meðal íslendinga í Vesturheimi,
er aðallega byggir á þjóðernislegum grundvelli og hvetja vill
þá til framsóknar og virðingar til jafns við þá þjóðflokka
aðra er þetta land byggja.
Hver einasti íslendingur í þessu landi ætti að vera í fé-
laginu. Ársgjald fyrir fullorðna er $1.00, unglinga frá 10
til 18 ára, 25 cent, börn innan 10 ára aldurs, 10 cent. Hver
skilvís félagsmaður, er greiðir $r.oo tilíag, fær tímarit fé-
lagsins ókeypis.
Markmið félagsins er, að vinna að framförum og sam-
heldni meðal íslendinga hér i álfu, og hjálpa til þess, að
unglingum gefist kostur á að læra íslenzku, eftir því sem
ástæður foreldranna kunna að leyfa.
Aðrar upplýsingar um félagið veitir “Félagsstjórnin,”
og rná skrifa til hennar. Inngangseyrir og ársgjöld sendist
“Fjármálaritara,” en áskriftargjald að Tímaritinu “Skjala-
verði.”
Þjóðræknisfélag íslendinga í Vesturheimi
Winnipeg, Manitoba.
fíreiðið úr vandanum með eftirmatinn, skamtið
PALM ÍSRJÓMA
Búinn til úr nýjum úrvalsrjóma og beztu aldinum. Fæst f sérstökum gerðurn
sem búðingur. Pie. Logs. o. s. frv.. er hagar fyrir hvaða tækifæri sem er.
Pantið hann hjá næsta Palm ísrjómasala eða símið beint á verkstæðið.
PALM DAIRIES LIMITED
LOGAN og BRIGHTON SÍMAR: 25 838 — 25 839
“RJÓMINN ALLRA RJÓMA"