Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Side 39

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Side 39
FRÁ ÝMSUM ÁTTUM 37 leiddist ekki, hvort ekki væri óyndi í drengnum hennar. — Nei. Þau undu sér vel. Voru vön við að vera út af fyrir sig. — En við höfðum aldrei séð drenginn hennar leika sér með öðrum börnum. — Alec litli var feiminn og kunni best við sig í garðinum. Hún brosti snöggvast. Annars var hún altaf jafn alvarleg. Eftir að við komum heim, töluð- um við um Indíána-fjölskylduna fram á nótt. — Hvað húsið var hreint og vel hirt. Hvað barnið var fallegt og móðirin háttprúð og Alec litli stiltur og greindarlegur. Hug- næmara umtalsefni hefði okkur ekki öðlast, við að hlusta á frægan fyrir- lesara, eða horfa á heimsfrægan sjónleik. Þegar ég var í þann veginn að festa svefninn varð ég þess var, að konan mín hristist af niðurbældum hlátri. Ætlaði hún sér að halda þannig vöku fyrir mér, fannst mér sanngjarnt, að hún léti mig vita hvert hlátursefnið var. „Við erum heimsins mestu brodd- borgarar“, stundi hún upp. „Við heimsækjum nýja nágranna, á heim- ili sem í engu er frábrugðið þúsund- um annara, um þvert og endilangt landið; og verðum frá okkur num- in, eins og ef við hefðum ratað í hið mesta ævintýri. Og öll þessi hrifning stafar af því, að hafa kynnst fjölskyldu, sem ekki er knúð til að ganga og liggja nakin, og sólbrenna rneira og minna, á hverju sumri, til að öðlast þann hörundslit sem tísk- an krefst. — Uppskafningar!“ Og nú hlógum við bæði. Eaginn eftir fann ég borgarstjór- ann að máli. Hann var kunningi rninn og lofaðist til að skella skolla- eyrunum við bænarskránni, og það þó mitt nafn væri þar meðal ann- ara. Granni minn bar sig illa yfir að- gerðarleysi bæjarráðsins, en hefði þó, að líkindum borið harm sinn í hljóði, ef örlögin hefðu ekki bætt gráu ofan á svart, með því að senda kínversk hjón í hús Indíánanna. Og áttu þau dreng, á aldur við Alec, sem Ming hét. Nú varð granni minn æfur og uppvægur, boðaði til almenns fund- ar og skoraði á okkur, að gera þá rögg á okkur sem hvítum mönnum sæmdi. Það væri annars glæsilegt, eða hitt þó heldur, að sjá gul og rauð afkvæmi villimanna meðal engil- hvítra barna! Eins og gefur að skilja, urðu hin engilhvítu snortin af vandfýsni for- eldra sinna, og hrópuðu ókvæðis- orð eftir þeim Alec og Ming, sem þau nefndu Rauð og Gul. Nú skyldi þó bæjarráðið fá að meðganga! Og er óvíst hvort það hefði staðið straum af rögg granna míns, hefðu örlögin ekki enn á ný tekið í strenginn. Á götuhorninu hérna fyrir vestan okkur, var stórt autt svæði, þar sem börnin úr nágrenninu léku sér dag- lega. Engum kom til hugar að Alec og Ming gengju þar í leik, þó þeir ættu bæði knött og knatttré, sem þeir léku með í bakgötunni. En það var dauf skemtun, í samanburði við knattleikinn við götuhornið. Og þeg- ar óp og fagnaðarlæti bárust til mis- litu drengjanna frá hvítu leiksveit- unum, stálust þeir oft fram á gang- stéttina til að horfa á leikinn. Ekki kom þeim þó til hugar, að stíga fæti inn á leikvöllinn. Við því höfðu mæð-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.