Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Blaðsíða 104
102
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
hennar og sigurför á sviöi listar sinnar.
2. ÞingiS vottar íslenska kvenfélaginu I
Elfros Sask., þakklæti sitt fyrir fcrgöngu
þess og ágætt starf í sambandi viö að
láta reisa skáldinu J. M. Bjarnason viröu-
legan minnisvaröa. Ennfremur þakkar
þingiö öllum þeim, sem þar áttu hlut aö
máli, meÖ fjárframlögum eöa öörum
hætti.
Á þjóðræknisþingi 22. febrúar 1949
Steina Kristjánsson,
Kristín Johnson,
Trausti ísfeld.
Nefndarálitiö samþykkt, samkvæmt til-
lögu frá G. J. Oleson, sem var studd af
Trausta ísfeld.
Dr. Richard Beck lagöi til að forseta og
ritara sé faiið aÖ svara kveðjum frá ís-
landi og Svíþjóö símleiðis, en kveðjum, sem
þinginu bárust úr þessari álfu bréflega
var tillagan studd af G. J. Jónassyni og
samþykkt.
Jón M. ólason lagði til, að þar sem mál-
ið um breytingu á þingtíma hefði ekki
verið tekið á dagskrá þingsins, þá væri
þvi bætt á hana og þriggja manna nefnd
sett í það. Þorsteinn Ólafsson studdi til-
löguna og var hún samþyklct. 1 nefndina
setti forseti:
Ólaf Þorsteinsson,
Magnús Gislason,
Eiínu Hall.
l>ar sem engin nefndarálit vcru fyrir
hendi gat forseti þess, að ef einhver hefði
ný mál fram að bera, þá væri nú tækifæri
til þess, að afhenda þau þingnefndinni,
sem um þau fjallaði. Trausti Isfeld benti
á ungan mann, Lorne Stefánsson í Sel-
kirk, sem þegar heföi vakið eftirtekt fyr-
ir ágætar gáfur, en ætti ekki kost á að
þroska þær sökum þröngra fjárhagslegra
kringumstæðna.
Sveinn Sveinsson vakti athygli á erfið-
um fjárhagslegum kringumstæðum is-
lensku blaðanna. Báðum þessum málum
var vísað til nýmálanefndar þingsins,
samþykkt.
Þar sem engin þingnefndarálit voru til-
búin og komið nálægt hádegi lagði Dr.
Beck tii að fundi væri frestað til kl. 1.30
e. h. Elín Hall studdi og var það sam-
þykkt.
Pjórði fundur settur kl. 2 e. h. Fundar-
gjörð síðasta fundar lesin og samþykkt
samkvæmt uppástungu Sveins Sveinsson-
ar og G. J. Jónassonar.
Þingnel'iKlarálit fræðslumálanefndar.
Framsögn hafði Mrs. Ingibjörg Jónsson,
1. Þingið lýsir ánægju sinni yfir hinu
rausnarlega tillagi félagsins í sjóö íslensku
déildarinnar við Manitobaháskólann.
2. Þingið lætur I ljósi þakklæti til Mrs.
Hólmfríðar Danielson fyrir ágætt fræðslu
málastarf á liðnu ári.
3. Þingið felur stjórnarnefndinni að
stuðla að þvi, að sem flestar deildir fé-
lagsins starfræki íslensku skóla á kom-
andi ári.
4. pingið felur stjórnarnefndinni að
panta þegar sýnishorn af linguaphone ken-
sluplötum í ísiensku, og ef hún í samráði
við kennara álítur þær ákjósanlegar fyrir
íslensku skólana, að útvega þá áminstar
plötur til afnota í öllum skólunum, kenn-
urunum til aðstoðar á komandi ári.
Ingibjörg Jónsson,
G. J. Jónasson,
L. Sveinson,
Margrét Jósephson,
Jódis Sigurðson.
1. og 2. og 3. liður voru samþykktir um-
ræðulaust. Um fjórða liðinn urðu nokkrar
umræður. Mrs. Kristjánsson stakk upp á,
og Mrs. P. S. Pálsson studdi, að fjórða liö
álitsins sé vísað aftur til nefndarinnar,
samþykkt.
Byggingannál.
Forseti las þrjú bréf I sambandi við það
mál frá Icelandic Canadian Club, Jóns
Sigurðssonar Chapter I. O. D. E. og frá
íslensku Good Templara-félögunum.
February 22 1949
The Icelandic National League,
c/o Mr. J. J. Bíldfell
Winnipeg.
Dear Sir:
We have your letter of enquiry regard-
ing financial assistance for the erection
of a place of recreation. While \ve are
heartily in sympathy with the idea, we
are also mindful of the sacrifices that
members of our organization have made
on behalf of our own Hall, and the cost
of maintenance has to be seriously con-
sidered.
For these reasons we can not under-
take to promise any worthwhile finan-
cial assistance at this stage.
When tangible plans have been made,
we will be pleased to give the matter our
serious consideration.
Respectfully,
The Icelandic Good Templars of Winnipeg
J. T. Beck, Pres.