Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Page 40

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Page 40
38 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA ur þeirra lagt blátt bann. Og ekki áttu þeir sök á því, þó knötturinn viltist úr leiknum og staðnæmdist við fætur Alecs, sem greip hann samstundis og kastaði honum rösk- lega inn á leikvöllinn. En þar kom hann öllum á óvart, og hitti í höfuð eins drengsins, sem meiddist ekki minstu ögn, en varð ævareiður, þeg- ar félagar hans hlóu að honum fyr- ir að handfesta ekki skeytið. Piltur- inn áttaði sig brátt, og þegar hann kom auga á þá Alec og Ming, sem stóðu agndofa á gangstéttinni, sá hann hvernig í óhappi hans lá. „Hel. villidýrin!“ hrópaði hann og þaut í átt til þeirra. Nú tóku þeir Alec og Ming til fót- anna, heim til sín, og báðar leik- sveitirnar á eftir þeim, æpandi smánar- og óþverraorð til flótta- manna. Svo vildi til, að ég var úti við, og hraðaði ég mér í áttina til uppþots- ins; en varð of seinn til. Þegar ég kom á vettvang voru hvítliðar bún- ir að ná þeim mislitu, og var orustan þegar hafin. Og þó liðsmunur væri yfirgnæfandi, sá ég ekki betur en þeir Alec og Ming verðust vask- lega. Ég kallaði hastarlega til drengj- anna. En það var um seinan, því í þessari andránni var knatttré sleg- ið í höfuð Mings litla. Hvítliðar flúðu, er þeir sáu mig koma, og tvístruðust í allar áttir; en Alec kraup grátandi við hlið leikbróður síns, sem lá í roti og var auðsjáan- lega mikið meiddur. Ég bar Ming inn til móður hans og gerði síðan allar nauðsynlegar ráðstafanir fyrir að hann kæmist á sjúkrahúsið eins fljótt og föng væru á. í tvo sólarhringa lá drengurinn milli heims og helju. Eftir það rakn- aði hann við smátt og smátt. Og ætla ég mér ekki að lýsa þeirri gleði, sem fréttin af bata hans vakti í nágrenn- inu. Enginn smali hefir glaðst meir við fund hins hundraðasta sauðar, en granni minn og vörður hins hvíta kynflokks. Þegar fullvíst varð að Ming litli væri úr allri hættu, og líkur til að með tíð og tíma, næði hann fullri heilsu. Að líkindum hef- ir áhugi granna míns, að einhverju leyti stafað af því, að sonur hans hafði orðið til að veita Ming áverk- ann. Og missti hann nú allan vilja til að halda hverfi okkar hreinhvítu, eða fást um hvaða lit skaparinn veldi börnum sínum. Hjúkrunarkona Mings hafði orð á því við mig, að aldrei hefði hún haft meiri ánægju af að stunda sjúkling. Það beinlínis hreif hana, að hlusta á drenginn og lesa í svip hans þá undrun og gleði, sem gagn- tók hann, eftir að hann áttaði sig á, hversu allir vildu vera honum góðir. Fyrst í stað, gerði hann sér ekki grein fyrir hvað blómin, ald- inin og leikföngin þýddu. Lengi trúði hann ekki að þetta væru gjafir frá öllu þessu fólki, sem kom að spyrja eftir líðan hans, en leit á þennan fjársjóð sem venjulegan þátt í vistarveru á sjúkrahúsi. Þó Ming þætti vænt um að sjá foreldra sína, virtist hann gleðj- ast meira við komu Alecs. Og það liðu vikur, áður en honum varð ljóst, að hinir, sem vitjuðu hans vildu honum vel og voru vinir hans. En eftir að hann sannfærðist um þetta varð Ming eins og annað barn. í stað þess að segja aldrei orð, nema
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.