Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Side 43

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Side 43
FRÁ ÝMSUM ÁTTUM sónu hans, tökum við fram yfir alt annað“, sagði ég. „Meðal okkar er ætlast til, að hver og einn efli vit sitt og vilja til framkvæmda. Aftur á móti hýmið þið hér eystra aðgerð- arlausir í böndum blindrar forlaga- trúar“. „Trúna á einstaklingseðlið og forlögin hlutum við allir í vöggu- gjöf, jafnt þið og við“, sagði Gungh. „En á ævintýraflækingi ykkar, um Norður- og Vesturálfurnar, hafið þið misst sjónar á verðmæti þeirrar gjafar. „Ekki verður feigum forðað, né ófeigum í hel komið“, eru sann- indi sem þið hafið lítinn gaum gef- ið á síðastliðnum þúsund árum. Þetta höfðu forfeður ykkar fyrir satt, og munu þeir þó hafa trúað á mátt sinn og megin, ekki síður en afkomendur þeirra. En þeir höfðu þegar tapað sjónar á aðalgildi trúar- innar á einstaklingseðlið, eða per- sónuleik mannsins. Ef til vill kann- ast þú við sögu Grikkja og Norð- manna, um stríð guðanna við hina tröllauknu Títani. Upprunalega var sú saga sameign okkar allra, en að- eins á Austurlöndum hefir hún geymst án þess að breytast eða bjag- ast. Kannist þú við hinar ýmsu út- gáfur þessarar goðasagnar, getur þú sjálfur dæmt um, hvort gildi henn- ar hefir aukist í meðferðinni, hjá ykkur á Vesturlöndum“. Ég sagði Gungh, að mér væri sag- an kunn, en vissi ekki til, að hún ætti uppruna sinn í Austurlöndum. „Þar eiga allar goðasögur hvítra ínanna uppruna sinn“, sagði Gungh. Eftir nokkra þögn, mæltist ég til að hann segði mér söguna eftir útgáfu Hindúa. „Hinar tvær andvígu sveitir trölla 41 og guða áttu í eilífu stríði um völd- in. Lengi veitti guðunum betur í þeirri sennu. Þó kom að því, að tröll- in höfðu yfirhöndina, og dæmdu guðina til jarðvistar. Eftir langa og ítarlega ráðagerð, kvaðst einn guðanna hafa hugsað ráð til að sigrast á tröllunum. Skyldu guðirnir smíða kólf svo mikinn og magnaðan, að engin tröll stæðust, væri honum skotið 1 fylking þeirra. En nú var eftir að finna hæfilegt efni í kólfinn. Eftir langa ráðstefnu, komu guðirnir sér saman um, að hér gæti aðeins eitt efni komið til greina. En það var rif úr manni svo óeigingjörnum, að hann hefði gleymt sjálfum sér, meðvitund hans orðið þáttur í vitund alvaldsins. Og maðurinn fannst, eftir langa leit. Guðirnir fóru fram á, að hann léti þeim eftir rif hans, og kvað hann það sjálfsagt og guðvelkomið. Hann vissi ekki til, að rif hans, fremur en annað væri séreign sín. Tóku nú guðirnir rifin, gerðu úr hverju þeirra kólf og skutu í fylking tröll- anna, sem biðu algerðan ósigur“. Ég sagði Gungh, að sagan sannaði einmitt mál mitt. Hún lýsti aðdáun austrænna manna á mannleysu, sem týnt hafði einstaklingseðli sínu, framtaki og sjálfsvirðing. En Gungh var nú ekki alveg á því. „Ég bjóst ekki við, að þú skildir söguna, vin- ur minn“, sagði Gungh og brosti. „En getur þú hugsað þér meiri trú á gildi einstaklingsins og virðing fyrir eðli hans en þá, að treysta á einn vesælan mann til að leysa guð- ina af hólmi?“ Það var árangurslaust, að rök- ræða nokkurt mál við Gungh. Við vorum bestu vinir, og skildum hver
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.