Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1962, Síða 60
42
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
Olson, um undanfarin ár „Deaconess“
við Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg,
á íslandi á vegum biskups íslands, dr.
Sigurbjörns Einarssonar, og íslenzku
þjóðkirkjunnar. Hafði Sister Laufey
fengið styrk til þeirrar námsdvalar frá
Alþjóðasambandi lútersku kirkjunnar
(Lutheran World Federation) í Genf í
Sviss.
Ágúst — í þeim mánuði ferðaðist 40
manna hópur frá íslandi víðsvegar um
byggðir íslendinga í Canada og Banda-
ríkjunum frá hafi til hafs. Fararstjórar
voru þeir séra Bragi Friðriksson og
Guðni Þórðarson blaðamaður.
6. ágúst — Sjötugasti og þriðji íslend-
ingadagur haldinn að Gimli, Man.
Ágúst — Frú Ingibjörg Jónsson, rit-
stjóri Lögbergs-Heimskringlu, dvaldi
þann mánuð á fslandi 1 boði Vestmanna-
eyja, en Þjóðræknisfélagið á fslandi átti
einnig hlut að heimboðinu. Flutti frú
Ingibjörg ræðu á hinni kunnu og fjöl-
sóttu þjóðhátíð Vestmannaeyinga í
ágústbyrjun og ferðaðist síðan austur og
norður um land. í för með henni var
systir hennar, frú Thórunn Valgardsson
frá Moose Jaw, Sask.
Ágúst — Björn Jónasson, sveitar-
stjóri Siglunesbyggðar í Manitoba, heiðr-
aður með fjölmennu og sérstaklega
virðulegu samsæti í Ashern, Man., er
hann lét af störfum eftir meir enn 40
ár í sveitarstjóra sessinum. Margir for-
ystumenn fylkisins fluttu ræður og
vottuðu heiðursgestinum virðingu sína
og þakklæti. Landbúnaðarráðherra fylk-
isins ávarpaði hann fyrir hönd Dufferins
Roblin forsætisráðherra og afhenti hon-
um heiðursmerki fyrir frábæra þjónustu.
Hið sama gerði forseti sambands sveit-
arfélava fyrir hönd síns félagsskapar, og
var Björn jafnframt kosinn heiðursfélagi
þeirra samtaka. Hann er fæddur í Mý-
vatnssveit í Suður-Þingeyjarsýslu 20.
okt. 1884 og kom vestur um haf til
Kanada 1893 með foreldrum sínum,
Þorláki Jónassyni frá Grænavatni og
Kristrúnu Pétursdóttur frá Reykjahlíð.
16. ágúst — Vann séra Jóhann Frið-
riksson, Erickson, Manitoba, það afrek
að synda fram og aftur yfir Clear Lake,
Man., en það er 19 enskra mílna vega-
lengd. Mikill fjöldi áhorfenda á landi og
í bátum á vatninu fylgdist með sundinu,
og þótti það vel af sér vikið af manni
rúmlega sextugum að aldri, enda vakti
þetta afrek séra Jóhanns víðtæka at-
hygli í blöðum og útvarpi.
21. ágúst — Forseti íslands, herra Ás-
geir Ásgeirsson, afhenti á Rafnseyri
málverk af Jóni Sigurðssyni, en mál-
verkið er gjöf frá Páli bónda Guðmunds-
syni í Leslie, Sask., sem áður hefir sýnt
mikla ræktarsemi sína til fslands með
stórgjöf til skógræktar og með öðrum
merkisgjöfum. Málverkið er gert af
Halldóri Péturssyni eftir ljósmynd af
Jóni Sigurðssyni. Páll er frá Rjúpna-
felli í Vopnafirði og flutti vestur um haf
1911; hann hefir verið maður mjög á-
hugasamur um vestur-íslenzk þjóðrækn-
is- og menningarmál.
31. ágúst — 3. sept. — Ársþing „The
Western Canada Unitarian Conference“
haldið í Banff, Alberta. Séra Philip M.
Pétursson, Winnipeg, var endurkosinn
útbreiðslustjóri.
9. sept. — Minningarguðsþjónusta um
dr. Vilhjálm Stefánsson haldin í Víkur-
kirkju að Mountain, en hinn víðfrægi
landkönnuður og rithöfundur ólst upp
þar í byggð. Séra Kolbeinn Sæmundsson,
sem þá þjónaði Mountain prestakalli um
stundarsakir, stjórnaði minningarathöfn-
inni, en dr. Richard Beck flutti minn-
ingarræðuna.
14.—16. sept. — Þrítugasta og áttunda
ársþing Bandalags lúterskra kvenna
(The Lutheran Women’s League of Mani-
toba) haldið í Riverton, Man. Mrs. Ingi-
björg Bjarnason Goodridge var endur-
kosin forseti.
27. sept. — Þjóðræknisfélag íslendinga
í Vesturheimi tók þátt í skrúðsýningu,
sem fram fór undir umsjón Wjnnipeg
Y.M.C.A. í sambandi við tuttugasta árs-
þing aðalfélagsins (National Council of
Y.M.C.A.). Frú Hólmfríður Daníelsson,
varaféhirðir Þjóðræknisfélagsins, sá um
þátttöku íslendinga, samdi leikþáttinn
og umsögn þá, er lesin var samtímis því
og sýningin fór fram, en hún var tákn-
ræn lýsing á bókmenntahneigð og starfi
íslendinga og heimilislífi þeirra. Nokkrar
íslenzkar konur, klæddar íslenzkum
þjóðbúningum, tóku einnig þátt í sýn-
ingunni, sem þótti mjög vel takast, og
sungu íslenzk þjóðlög.
Okt. — Dr. Kjartan I. Johnson, læknir
í Pine Falls, Man., kjörinn forseti Lækna-
félagsins í Manitoba (Manitoba Medical
Association) á ársþingi þess í Winnipeg-
Hann er fæddur að Lundar, Man., 1910,
sonur landnámshjónanna Einars (Þ°J"
kelssonar) Johnson, ættaður úr Svarfað-
ardal, og Oddfríðar Þórðardóttur, sem
fædd var í Borgarhreppi í Mýrasýslu.
18. okt. -— Átti hinn mikli fróðleiks-
maður Árni Myrdal, að Point Roberts,
Wash., níræðisafmæli. Hann er sérstæð-
ur maður og fjölhæfur snillingur, og
víðkunnur meðal íslendinga fyrir frum-
samdar og þýddar ritgerðir sínar í vest-
ur-íslenzku vikublöðunum.