Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1962, Blaðsíða 98
80
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
riti unnið ötullega að félags- og menn-
ingarmálum vorum. Síðastliðið vor
undirbjó hann, ásamt Sveini Skorra
Höskuldssyni, samfellda dagskrá ís-
lenzks efnis fyrir þjóðræknisdeildina
,,Frón“, en Haraldur prófessor er forseti
hennar. Ennfremur flutti hann í haust
aðalræðuna á landnemahátíð að Gimli,
sagði ferðasögu úr íslendsferð sinni á
„Fróns“-fundi, og flutti ávarp á 40 ára
afmælishátíð þjóðræknisdeildarinnar „fs-
lands“ í Morden. Hann hefir einnig ritað
um íslenzk efni í blöð og tímarit beggja
megin hafsins og einkum lagt mikinn
skerf og góðan til vikublaðs vors.
Vararitari, Walter J. Lindal dómari,
hefir flutt ávörp á samkomum og ritað
margt um félagsmál vor og menningar-
erfðir, einkum í The Icelandic Canadian;
einnig gegndi hann störfum ritara í
fjarveru hans, og er ennfremur forseti
stofnunarinnar „Canada-Iceland Found-
ation“, sem vinnur, eins og nafnið bend-
ir til, að menningarlegum samskiptum
milli þeirra landa yfir hafið.
Féhirðir, Grettir L. Jóhannson ræðis-
maður, hefir, eins og að undanförnu,
flutt ávörp um íslenzk efni á samkom-
um. Auk þess sem hann gegndi hinu
umsvifamikla formannsstarfi í undirbún-
ingsnefnd heimsóknar forsetahjónanna,
fylgdi hann þeim frá Winnipeg til Vest-
urstrandarinnar bæði í embættisnafni
og sem fulltrúi félags vors.
Varaféhirðir, frú Hólmfríður F. Daníel-
son, hefir átt samvinnu um það við hér-
lent fólk, að fsland kæmi við sögu í
nokkrum þjóðernislegum sýningum, og
ritað margar greinar um íslenzkt fólk
og málefni bæði á íslenzku og ensku.
Fjármálaritari, Guðmann Levy, hefir,
auk bréfaskrifa til deilda og einstaklinga
í sambandi við embæti sitt, átt sæti í
ýmsum nefndum, og einnig, eins og síð-
ar mun vikið að, átt drjúgan þátt í
söfnun auglýsinga fyrir Tímarit vort. f
félagsins nafni óska ég honum til ham-
ingju með nýafstaðið sextugs afmæli
hans og þakka hans mörgu störf í þágu
félagsins.
Jafnframt því og hann er forseti
heimadeildar sinnar að Lundar, hefir
varaf jármálaritari, ó 1 a f u r Hallsson,
starfað í ýmsum nefndum af hálfu
stjórnarnefndar.
Ágætur liðsmaður bættist oss einnig
í nefndina, þar sem er hinn nýi skjala-
vörður, Jakob F. Kristjánsson, en hann
var ritari undirbúningsnefndar heim-
sóknar forsetahjónanna í fjarveru Har-
alds prófessors; hefir starfað á árinu í
öðrum nefndum og lagt vikublaði voru
lið með ýmsum hætti.
Forseti flutti aðalræðuna á sumar-
mála- og 50 ára afmælissamkomu Lestr-
arfélagsins að Gimli, og samdægurs
erindi um ísland á barnaskólunum að
Mountain og Garðar í N. Dakota, og
stuttu síðar erindi um íslendingasögur
á fundi Tungumálafélagsin „The Ling-
uistic Circle of Manitoba and N.-Dakota“,
er haldinn var á Ríkisháskólanum í N.
Dakota. Einnig var hann aðalræðumað-
ur á Lýðveldishátíð íslendingafélagsins
í Norður-Kaliforníu 17. júní í Oakland,
Kalif.; flutti kveðju frá félagi voru á
íslendingadeginum að Gimli, ávörp af
þess hálfu í sambandi við Winnipeg-
heimsókn forsetahjónanna íslenzku, enn-
fremur aðalræðuna á 40 ára afmælis-
hátíð deildarinnar „fslands“ í Morden.
Síðan þau hjónin komu heim úr íslands-
ferð sinni í haust hefir forseti flutt þrjár
ræður um ísland og Háskólahátíðina á
samkomum í Grand Forks. Hann hefir
einnig á liðnu ári ritað fjölda greina og
ritróma um íslenzk efni í blöð, tímarit
og safnrit, beggja megin hafsins.
Tengsl vor og samvinnumál við ísland
Stærsti og merkasti viðburður í sam-
skiptum íslendinga yfir hafið á liðnu
ári, og einstæður að sama skapi, var
vitanlega heimsókn íslenzku forseta-
hjónanna, sem rætt var um í byrjun
þessa máls. En fleira frásagnar- og
þakkarvert hefir gerzt á árinu á því
sviði starfsmála félagsins. Ber þar sér-
staklega að nefna útgáfuna af fyrsta
bindi af Veslur-íslenzkum æviskrám. Er
þar, eins og vitað var fyrirfram, um
hið gagnmerkasta rit að ræða, og að því
hinn mesti fengur bæði frá sögulegu og
mannfræðilegu sjónarmiði. Jafnframt er
útgáfa þess mikill og varanlegur skerfur
til brúarbyggingar gagnkvæmra kynna
og menningarlegra samskipta milli ís-
lendinga heima og hérlendis. f nafni
Þjóðræknisfélagsins votta ég innilega
þökk öllum þeim, sem þar eiga hlut að
þörfu og mikilvægu starfi. Fæ ég eigi
nógsamlega hvatt fslendinga vestan
hafs til þess að bregðast svo vel við
málaleitun hlutaðeigenda útgáfu þessa
merkisrits, að hún geti haldið áfram og
náð tilgangi sínum í sem fyllstum mæli-
Með öðrum hætti hafa oss einnig verið
réttar bróðurhendur austan um haf a
liðnu ári. Eins og skýrt var frá á sínum
tími í Lögbergi-Heimskringlu, tilkynnti
herra Birgir Thorlacíus, ráðuneytis-
stjóri Menntamálaráðuneytis íslands
stjórnarnefnd félagsins, að ráðuneytio
hefði ákveðið að veita stúdent eða
kandidat af íslenzkum ættum búsettum
í Kanada styrk til náms í íslenzkum
fræðum í heimspekideild Háskóla ís-
lands frá 1. okt, 1961 til 1. maí 1962.
Nemur styrkur þessi 20,000 íslenzkra