Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1962, Page 95

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1962, Page 95
Fertugasta og þriðja ársþing Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi Fertugasta og þriðja ársþing Þjóðræknisfélags íslendinga í Vestur- heimi var sett af forseta félagsins, dr. Richard Beck, kl. 10 f.h. mánud. 19. febrúar 1962 í Góðtemplarahúsinu við Sargentstræti. Dr. V. J. Eylands flutti bæn, og sungnir voru sálmarnir „Hve dýrðlegur er drottinn“ og „Faðir and- anna“. Gunnar Erlendsson lék undir á slaghörpu. Að því búnu flutti forseti Þjóðræknis- félagsins ársskýrslu sína, sem hér fer á eftir. Ársskýrsla forsela Kæru tilheyrendur. Háttvirtu fulltrúar og gestir! Árið, sem leið, var óvenjulega at- burðaríkt í sögu ættþjóðar vorrar; hver merkisatburðurinn fylgdi öðrum í spor: — Heimsókn Ólafs V. Noregskonungs, fyrsta norsks þjóðhöfðingja, er sótt hefir ísland heim; 150 ára afmæli Jóns Sig- urðssonar forseta; 175 ára afmæli Reykjavíkurbæjar; 50 ára afmæli Há- skóla íslands; og aldarafmæli Hannesar Hafstein skálds, fyrsta íslenzka ráð- herrans. Allir eru þeir merku atburðir tengdir mikilvægum tímamótum í sögu þjóðarinnar, og óminn af þessum at- bu.rðum hefir borið vestur yfir hafið til vor, enda hefir þeirra verið getið i fréttum og blaðagreinum. Óhætt mun þó mega segja, að 150 ára afmæli Jóns Sigurðssonar hafi vakið mesta athygli vor á meðal, Vestur-fs- lendinga,_og var að verðugu haidið há- tíðlegt víðs vegar á vorum slóðum, í borgum og sveitum. Hér gerist því engin þörf að ræða um ómetanlegt stjórnmála- og menningarstarf hans. Eitt er víst, að hann getur haldið áfram að vera oss íslendingum beggja megin hafsins tákn sameiningar um göfug mál og góð. En því hefi ^ ég minnt á ofannefnda merkisatburði í sögu ættþjóðar vorrar á liðnu ári, að saga hennar er oss runnin i merg og bein, samofin sálarlífi voru og innsta eðli. Jón skáld Magnússon fer eigi villur vegar, er hann segir í kvæði sínu „Land og þjóð“: Öll þín sorg og öll þín tár, öll þín kvöl í þúsund ár, öll þín frægð og gæfugengi grípur vora hjartastrengi, hver ein minning sæt og sár. Slungið harmi, barm frá barmi bergmál tímans varir lengi. Undir logar orka hljóð; allt, sem gerir menn að þjóð. Liðið ár var einnig óvenjulega sögu- ríkt fyrir oss Vestur-íslendinga. Með heimsókn íslenzku forsetahjónanna, herra Ásgeirs Ásgeirssonar og frú Dóru Þórhallsdóttur, var ofinn einstæður og glæsilegur þáttur í langa og litbrigða- ríka sögu íslendinga í Vesturheimi, og með réttu taldi ættþjóð vor þá heim- sókn einnig merkisviðburð í sögu sinni. Hefir hinni samfelldu sigurför þeirra frá hafi til hafs í Kanada verið lýst svo ít- arlega í Lögbergi-Heimskringlu, og ann- ars staðar í blöðum og tímaritum hér- lendis, að óþarft er með öllu að rekja þann frægðarferil þeirra hér. Hitt þykir mér ástæða til að leggja áherzlu á, hve mikill viðburður heim- sókn þeirra forsetahjónanna var í sögu Þjóðræknisfélagsins, viðburður, er jafn- an mun þar gullnu letri skráður; en samkvæmt ósk Ásgeirs forseta skipu- lagði stjórnamefnd félags vors, sem sér- stök undirbúningsnefnd, undir forustu Grettis L. Jóhannsson ræðismanns og féhirðis vors, ferðir forsetahjónanna og föruneytis þeirra um byggðir íslendinga í Kanada. Var Þjóðræknisfélaginu sýnd mikil viðurkenning og sambærilegt traust með þeirri ósk forsetans, og taldi sér hinn mesta sóma að því að verða við þeim tilmælum hans. „Ættgöfgi skuldbindur," segir víðfrægt orðtak; með því að færa út merkingu þess, í þeim skilningi, að hver virðingarauki eigi að glæða ábyrgðartilfinningu og vera eggjan til dáða, má heimfæra þetta kunna spakmæli upp á félag vort með tilliti til þess sæmdarríka en ábyrgðar- mikla hlutverks, sem því var á hendur falið í sambandi við heimsókn forseta- hjónanna. í prýðilegum ræðum sínum hér vestan hafs, þar sem saman fóru orðsnilld og auðlegð í hugsun, flutti Forseti fslands oss fslendingum hér í álfu eigi aðeins faguryrtar og hjartahlýjar kveðjur heiman um haf, en túlkaði jafnframt af glöggum skilningi og samúð hlutskipti vor íslendinga í Vesturheimi, afstöðu vora til þeirra þjóða, sem vér erum hluti af og eigum þegnskuld að gjalda, og baráttu vora til viðhalds þjóðerni voru,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.