Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1962, Page 104

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1962, Page 104
86 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA taka slíka mynd nema utanhúss í fullu dagsljósi, en hún vekur þó hjá okkur ilinilegar tilfinningar og hjartfólgnar endurminningar. Þarna bregður fyrir þúsundum Vestur-íslendinga, forustu- mönnum Kanadaþjóðarinnar og merk- um stöðum. Hátíðlegar athafnir, þegar heilsazt er og kvaðzt á viðkvæmri stund, njóta sín einna bezt. Af þessari kvikmynd er ekki til nema eitt eintak, og verð ég því að óska þess, að hún verði endursend mér hið fyrsta, því hætt er við skemmdum, ef hún væri sýnd oft, og þá ekki hægt úr að bæta. En við höfum í hyggju, að láta gera annað eintak af kvikmyndinni, sem þá yrði sent Þjóðræknisfélaginu til eignar og sýninga í íslendingabyggðum. í þá mynd mundum við láta skjóta inn text- um, sem ekki hefir unnizt tími til ennþá. Þá var og tekinn fjöldi venjulegra ljósmynda, og hafa nokkrar þeirra þegar verið sendar einstaka mönnum, og munu fleiri fylgja á eftir, þegar þær eru til- búnar. Og eitt heildareintak af mynd- unum öllum munum við senda Þjóð- ræknisfélaginu til eignar og umráða. Þar hygg ég að sé um að ræða eitt stærsta og bezta heildar myndasafn af Vestur-íslendingum, sem enn hefir verið gert. En slík söfn eru því meira virði, sem lengra frá líður. Kemur mér í hug í því sambandi, að það er mikils um vert að safna öllu því, sem enn geymist og ekki er gleymt úr landnámssögu Vestur-íslendinga, ekki sízt mannamyndum. Um söguna er allvel séð, og bætist við nýtt efni á hverju ári. En komandi kynslóðir verða þakklátar fyrir hverja frásögn og mynd, sem geymist, og undir slíkri geymd á vestur- íslenzk menning framtíð sína að miklu leyti. Það bezta í sögu, bókmenntum og listum kemur á daginn hjá komandi kynslóðum, þegar gefst betri heildarsýn og blámi fjarlægðarinnar varpar sínum blæ á fortíðina. Förin um þvert Kanada og endilangt verður okkur ógleymanleg. Ég hafði hugsað mér, að minnast á einstaka at- burði og athafnir, en þegar til kemur, treystist ég ekki til að velja úr svo fjölbreyttu efni í stuttu ávarpi, enda hefir ferðasagan þegar verið myndar- lega skráð og af hlýjum hug í ykkar vestur-íslenzku ritum. Ég treystist því síður til, að nefna einstök nöfn af öllum þeim fjölda Vest- ur-íslendinga, sem við hittum, eða velja úr móttökunefndum eða ræðumönnum, heimilum, sem við komum á og hátíð- legum athöfnum, sem við vorum við- stödd. Þetta var allt ein þjóðræknis- messa! Eini söknuðurinn að koma ekki nógu víða, og standa sumstaðar of stutt við, þiggja góðgerðir og taka í hlýjar hendur til að heilsa og kveðja, fyrir og eftir hátíðlega athöfn. Það var gott að vera íslendingur í ykkar hóp, máske góður íslendingur og þá áreiðanlega batnandi í þessu andrúmslofti. Viðmót- ið, frændræknin, og hin sterku ættjarð- arbönd í framandi landi, — þetta allt markar óafmáanleg spor á okkar fram- tíðarvegi. Okkur er það vel ljóst, að hinar glæsilegu móttökur, sem okkur voru búnar af Kanadastjórn og fylkisstjórn- um, var endurspeglun af þeim orðstír, sem þið hafið aflað íslenzkum kynstofni, og að sú hlýja og gleði, sem lá í loftinu yfir þessum endurfundum, var endur- skin af ykkar eigin íslenzka arfi og þjóðrækni. Við hjónin og okkar fylgd- arlið vorum fulltrúar íslenzkrar þjóð- menningar, sem sjálf á heiðurinn og vegsemdina. Ég sé fyrir mínum hugskotssjónum Skjaldarmerkið yfir forsetastól Þjóð- ræknisþingsins, og bið þess, að Guð og allar góðar vættir fylgi ykkur, og okkur öllum, austan hafs og vestan. Dr. Beck þakkaði kveðju forseta ís- lands, en þinggestir risu úr sætum í virðingarskyni við þjóðhöfðingjann. Að því búnu flutti dr. Beck kveðjur frá eftirtöldum: John G. Diefenbaker forsætisráðherra Kanada, Guðmundi f- Guðmundssyni utanríkisráðherra ís- lands, herra Sigurbirni Einarssyni biskupi íslands, Ásmundi Guðmunds- syni fyrrv. biskupi. Ármanni Snævarr rektor Háskóla fslands, Karlakór Reykja- víkur, Árna Bjarnarsyni bókaútgefanda og forseta „Bárunnar“ á Mountain í N.D., Guðmundi Jónassyni. Grettir L. Johannson flutti og kveðjur frá Þjóð- ræknisfélagi fslendinga í Reykjavík og frú Margréti og Hallgrími F. Hallgríms- son, ræðismanni Kanada í Reykjavík. Að því búnu kynnti Grettir nýjan ævi- félaga Þjóðræknisfélagsins, Einar E. Stevenson frá Alberta og frú hans. Dr; V. J. Eylands kynnti og frú Margréti Beck, konu dr. Richard Beck. Þessu næst flutti Guðmann Levy skýrslu kjörbréfanefndar. Skýrsla kjörbréfanefndar Fulltrúar deilda á þingi Þjóðræknis- félagsins 19.-21. febrúar 1962. Atkvæði Deildin „Brúin" Selkirk, Man. Mrs. Jafeta Skagjörð .......... 13 Einar Thorvaldson ............. 12 Deildin „Aldan" Blaine, Wash. Mrs. Marja Björnson............ 10
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.