Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1962, Page 114
96
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA
sem varða menningu íslendinga austan
hafs og vestan og enskar þýðingar á ís-
lenzkum úrvalsritum.“
2. Þingið felur væntanlegri stjórnar-
nefnd að ráða ritstjóra og auglýsinga-
safnanda.
3. Þingið tekur undir með forseta að
þakka öllum starfsmönnum Tímaritsins
vel unnið starf á síðast liðnu ári.
4. Þingið lætur í ljósi ánægju sína
yfir útgáfu bókarinnar „Vesturíslenzkar
Æviskrár“ og hvetur alla íslendinga til
að veita útgefendum alla hjálp og að-
stoð við áframhaldandi útgáfur.
5. Þingið hvetur menn til áframhald-
andi stuðnings við útgáfu Lögbergs-
Heimskringlu og skorar á sem flesta að
gerast áskrifendur blaðsins og að fá aðra
til þess sama.
Undirritað af:
P. M. Pélursson
Björgvin Hólm
Hrund Skúlason.
Samkvæmt tillögu flutningsmanns var
hver liður ræddur sérstaklega. Allir lið-
ir hlutu samþykki, svo og nefndarálitið
í heild sinni.
Ásgrímur M. Ásgrímsson flutti þing-
heimi sköruglegt ávarp og var máli hans
frábærilega tekið.
Jakob F. Kristjánsson flutti viðbót yið
nefndarálit allsherjamefndar, og hljóð-
aði sú viðbót þannig:
1. Að Þjóðræknisfélagið lýsi ánægju
sinni yfir því verki, sem unnið hefir
verið með útgáfu æviskráa Vestur-ís-
lendinga og yfir því, að Árni Bjarnar-
son og Gísli Ólafsson eru væntanlegir
til Vesturheims til frekari starfs við á-
framhald verksins.
2. Að þingið skori á forseta og stjórn-
arnefndir deilda að veita þá aðstoð, sem
mögulegt er, við söfnun æviskránna.
3. Að ritara verði falið að tilkynna
forsetum deilda og sambandsfélaga efni
þessa nefndarálits.
4. Að ritara sé falið að senda Árna
Bjarnarsyni afrit af þessu nefndaráliti
og með því nöfn og heimilisföng allra
deilda og sambandsfélaga.
Á þjóðræknisþingi í Winnipeg 21.
febrúar 1962.
J. F. Krisijánsson
S. E. Björnson
T. Böðvarsson.
Sjölii fundur
hófst kl. 2.30 e.h. miðvikudgainn 21.
febrúar 1962. Lesin var fundargjörð síð-
asta fundar og hún samþykkt.
Þá var fyrir næsta mál á dagskrá, sem
var kosning í stjórnarnefnd Þjóðræknis-
félagsins. Eftirtaldir menn hlutu kosn-
ingu: Dr. Richard Beck forseti, séra
Philip M. Pétursson varaforseti, próf.
Haraldur Bessason ritari, W. J. Lindal
dómari vararitari, Grettir L. Johannson
féhirðir, Hólmfríður Danielson varafé-
hirðir, Guðmann Levy fjármálaritari,
Ólfaur Hallson varafjármálaritari og
Jakob F. Kristjánsson skjalavörður.
Endurskoðendur reikninga voru kjöm-
ir: Davíð Björnsson og J. Th. Beck.
Undir liðnum Ný mál flutti frú Ingi-
björg Jónsson ritstjóri eftirfarandi til-
lögu:
1. Að þingið feli stjórnarnefndinni að
afla upplýsinga um möguleika á því
að gera bronzplötu, sem að gefnu leyfi
Manitobastjórnar mætti festa á vegg í
þinghúsi Manitobafylkis í minningu um
íslenzka landnámsmenn í Manitoba og
fyrsta leiðtoga þeirra, Sigtrygg Jónas-
son.
2. Að þingið heimili stjórnarnefndinni,
ef hún telur, að unnt verði að gera slíka
plötu sómasamlega, að safna fé frá þeim
mönnum, sem áhuga sýna í þessu máli.
til að hrinda verkinu í framkvæmd á
þessu ári, þannig að afhjúpa megi minn-
isplötuna í sambandi við væntanleg há-
tíðahöld á hundrað og fimmtíu ára af-
mæli landnáms í Manitoba.
Tillaga frú Ingibjargar var studd af
mörgum og síðan rædd allrækilega, að
því búnu var hún samþykkt samhljóða.
Sjöundi fundur
fór fram í Sambandskirkjunni á
Banningstræti miðvikudagskvöldið 21.
febrúar kl. 8 e.h. við upphaf lokasam-
komu þingsins. Grettir L. Johannson
gerði tillögu þess efnis, að eftirtaldir
menn yrðu kjörnir heiðursfélagar Þjóð-
ræknisfélags fslendinga í Vesturheimi:
Herra John G. Diefenbaker forsætisráð-
herra Kanada, herra Guðmundur í. Guð-
mundsson utanríkisráðherra íslands og
herra Dufferin Roblin forsætisráðherra
Manitobafylkis.
Ritari studdi tillögurnar og voru þ®r
samþykktar samhljóða.
Að því búnu sleit forseti, dr. Richard
Beck, hinu fertugasta og þriðja ársþingj
Þjóðræknisfélagsins með sköruglegn
ræðu.
Richard Beck, forseti.
Haraldur Bessason, ritari.