Heimilisritið - 01.07.1947, Síða 17
Frásaga um sanna
atburSi, ejtir
ALAN HYND
JACK LÍKSKERI
Hann myrti 20
stúlkur og það
komst aldrei
upp hver hann
var
WHITE CHAPEL-HVERFIÐ í
London var á síðustu árum
nítjándu aldar alræmt óþrifabæli.
Það var ennfremur eittlhvert mesta
lastabæli á yfiíborði jarðar. Illræð-
ismenn, sem sólin skein aldrei á,
læddust um í næturþokunni gegn-
um krókótt stræti, sótuga garða og
óþverraleg húsasund, þar sem ve-
sælustu fátæklingar Lundúnaborg-
ar áttu heima.
Nóttina eftir páskadag, árið
1888, birtist á þessu leiksviði, of-
urmenni úr heimi glæpanna. Eng-
in lifandi sála, að honum sjálfum
undaskildum, komst nokkru sinni
að naifni hans, eða hvaðan hann
kom, hvað honum gekk til að gera
það sem hann gerði, eða í hvaða
forgarði helvítis hann hafnaði eftir
að hafa unnið sér frægðarsess í
vistarverum glæpanna.
Hann varð þekktur undir nafn-
inu Jack líkskeri, pennanafn, sem
hann, þótt undarlegt sé, tók sér
sjálfur. í meira en 'hálfa öld hefur
hann verið efni í margsögðum sög-
um, sumum sönnum, öðrum byggð-
um á ímyndun, svo að hann varð
óhugnanlegt samband af sannleika
og hugarburði. Hann hefur einnig
öðlast sess í heimi bókmenntanna,
því það var Jack líkskeri, sem varð
söguhetjan í hinni hálfklassisku
skelfingarsögu eftir Marie Belloc-
Lourder, Leigjandinn, sem filmuð
hefur verið oftar en einu sinni, m.
a. með Laird Cregar í aðalhlut-
verkinu.
Þessa örlagaríku nótt, fyrir fimm-
tíu og níu árum, var vagnstjóri í
Whitechapel á heimleið seint um
kvöl<J, þegar hann tók eftir lim-
lestri og deyjandi konu úti fyrir
vöruskemmu í Osbornestræti.
Þetta var skuggaleg gata á þeim
HEIMILISRITIÐ
15