Heimilisritið - 15.06.1952, Side 10

Heimilisritið - 15.06.1952, Side 10
vill hefði hún laumazt í land hér á eynni, og kerlingin var ákveð- in í, að henni skyldi refsað, ef svo væri. Þetta var opinber kæra, svo ég varð að fara af stað og rannsaka málið.“ „Þú getur verið yiss um, að falleg stúlka hefði ekki getað dvalið hér á þessum litla bletti vikum saman, án þess ég yrði þess var. En það er líka satt. Ég hafði næstum gleymt einu, sem ef til vill gæti orðið til skýr- ingar.“ Hann gekk inn í svefnherberg- ið og sótti töskuna. „Þetta rak hér á land. Hún var læst og ég hef geymt hana eins og hún var, þar til ég gæti fengið þér hana. Þú sérð, að það stendur „Orin- oco“ á nafnmiðanum.“ Brownhill hafði mikinn áhuga á töskunni. Hann tók hníf og stakk upp lásinn. Heilmikið af gimsteinum og seðlabunki komu í ljós. Brownhill hrukkaði ennið, og Luke lézt verða mjög hissa. „Kerlingin er heppin,“ sagði Brownhill. „Allt, sem telpan tók, liggur hér og verður komið til skila. Þú hefur ekki séð neitt annað reka á land? Stúlkuna til dæmis?“ „Nei, guði sé lof,“ sagði Luke með hrolli. „Vesalings stúlkan! Jæja, ég verð víst að fara, því ég þarf að komast til Tuka fyrir kvöld- ið. Ég hef á mínum snærum morðingja, sem fær að dingla fyrir minna en það, sem kerl- ingin hefur gert af sér.“ Hann lokaði töskunni og stóð upp. „Nei, þú þarft ekki að fylgja mér, Luke, og nú þarf ég ekki að hafa áhyggjur út af þér í langan tíma.“ „Vertu blessaður, Bill!“ Luke langaði til að losna yið hann sem fyrst. Allt í einu stanzaði Brownhill. „Nei, sei, sei,“ sagði hann. „þið einbúarnir finnið upp á ýmsu skrítnu. Ég vissi ekki, að þú hefðir svona mikinn áhuga á fegrunarsnyrtingu.11 Hann tók upp púðurkvasta og lét hann detta aftur. Hann depl- aði öðru auganu eins og hani. Hægt og virðulega gekk hann síðan niður þrepin og blístraði f jörugt lag fyrir munni sér. * * ÞEIR SÖGÐU UM SKÖLA OG KENNSLU: Fólki skyldi kennt svo sem ckki vxri verið að kenna því! — (Pope). • Frxðsla almennings ætti að vera fyrsta skylda ríkisstjórnarinnar. — (Napoleon) * Enginn getur kennt aðdáanlega nema hann elski atvinnu sína. — (Alcott). 3 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.