Heimilisritið - 15.06.1952, Síða 24

Heimilisritið - 15.06.1952, Síða 24
væri afbrýðisöm, en hann stillti sig. Stúlka, seni var til fara eins og fjósamaður, og myndi sjálf- sagt verða svipuð íjósamanni í baðfötum, myndi bara móðgast ef hann léti sér slíkt um munn fara. Hann vildi ekki særa hana. „Þér eruð á þeim aldrinum, þegar menn eru sérlega lirif- næmir", sagði Nancy. „Nei, alls ekki“, mótmælti Jerry. „En það er sjálfsagt eng- in synd, þótt manni þyki gam- an að sjá laglega stúlku í snotr- um baðfötum. Það eru margar stúlkur, sem......“ „Þessi athugasemd er alveg óþörf“, tók hún fram í fyrir lion- um. „Eg veit vel, að þær stúlk- ur eru til, sem eru eins og fugla- hræður í baðfötum, en þar fyrir er engin ástæða til að hafa í frammi brigzlyrði um fólk“. „Eg hafði yður hreint ekki í huga“, flýtti Jerry sér að segja. „Nei, það hvarflaði heldur ekki að mér“, svaraði hún. „En nú er víst skárst að byrja til- sögnina“. FJÓRUM klukkustundum síðar skreiddist Jerry af baki. Fæturnir á honum voru dofnir; hann var helaumur í bakinu og sitjandinn á honum var alveg tilfinningalaus. Nancy stökk léttilega af baki og spretti af hestinum. ðfeð nokkrum erfiðismunuiTi tókst Jerry líka að „klæða hestinn sinn úr“, og þau hengdu reið- týgin inn í hesthús og fengu hestana í hendur hestasveinin- um. „Hvar get ég komizt í heitt steypibað?“ spurði Jerry. „Við gætum ekið til veitinga- hússins. Þar er bæði steypibað og gufubað. Og svo getum við synt í lauginni á eftir“. „Já, við skulum fyrir alla muni fara strax“, stundi hann. Hann stóð lengi undir volgri bununni, og það var sem eymsl- in og stirðleikinn í bakinu hyrfu. Sér til mikillar undrunar fann hann, að hann myndi verða sára- lítið eftir sig, svo að hann fór í sundskýluna sína og hélt til laugarinnar. Það sat allmargt fólk undir eikunum og át og drakk. I öðr- um enda laugarinnar léku sér nokkur börn. A brettinu við hinn endann stóð grönn stúlka, fagurlega vaxin. Hún var spengi- leg og straumlínulöguð eins og þrýstiloftsflugvél. Hún var í rauðum baðfötum og húð henn- ar var á litinn eins og’ gamall koparskildingur. Jerry rak upp stór augu og blístraði, og honum gramdist að hann skyldi nú þurfa að hafa 22 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.