Heimilisritið - 01.08.1955, Side 29
í London árið 1925, væri ekki
aðeins af „nútíma“-tegund í
meginatriðum, en stafaði jafn-
framt frá tímabili, sem var eldra
en Neanderthal-maðurinn, eða
a. m. k. jafngamalt elztu þekkt-
um leifum þeirrar tegimdar.
Sterkar líkur voru þannig
komnar fram fyrir þeim rökum,
að ættbálkur „nútíma“-manns-
ins væri eins gamall, og jafnvel
eldri, en Neanderthal-maðurinn.
Fyrirrennarar Evrópumannsins
NÝLEGIR fornleifafundir í
Palestínu hafa sannað þá stað-
hæfingu, svo að ekki verður um
deilt, að ættbálkur „nútíma“-
mannsins sé ævafom. í bráða-
birgðaskýrslu um beinagrindur,
sem fundust í hellum í Carmel-
fjalli árið 1933, hafa þeir Sir
Arthur Keith og Mr. T. McCown,
af þessum gögnum, fært sönnur
að tilvist tveggja ólíkra kyn-
flokka.
Kynflokkar þessir voru uppi
samtímis. Annar þeirra er af
Neanderthal-tegund, mjög líkur
en þó ekki alveg eins og Ne-
anderthal-maður Vestur-Evrópu,
en hinn, sem er mjög sundurleit-
ur kynflokkur, er raunverulega
hinn sami og Cro-Magnon-stofn-
inn í Evrópu — en hann er af
tegund „nútíma“-mannsins. Þeir
eru hávaxnir, hafa hauskúpu af
Cro-Magnon-tegund, og hjá þeim
kemur hakan fram. Má í raun
og veru telja þá fyrirrenn&ra
Evrópumannsins. Hafa þeir tek-
ið gagngerðum framförum og
þroska í áttina til þeirrar teg-
undar, sem nútímat-kynflokkar
Evrópu kunna að vera sprottnir
af.
Þessir tveir kynflokkar eru
jafnframt eldri eða voru uppi
samtímis elztu tegundum Nean-
derthal-mannsins, eins og sjá má
af því, að dýrasteingervingar
þeir, sem þeir finnast ásamt, í
hellnaniðurburðunum eru frá
tímabili því, sem fór næst á und-
an síðasta mikla jökulruðningn-
um í Evrópu, blómaskeiði Ne-
anderthal-mannsins.
Eins og þegar hefur verið tek-
ið fram, þá er þessi annar og
„nútíma“-kynflokkur mjög sund-
urleitur. Sum sýnishornin sýna
svip Neanderthal-mannsins. Það
er því augljóst, að hann er á
þroskabraut. Það má í raun og
veru segja, að við sjáum hér
fyrir okkur þróun eins af elztu
kynflokkum Evrópu, sannarlega
ekki frá Neanderthal-tegund,
heldur frá sameiginlegri for-
feðrategund.
Sönnunargögn frá Palestínu
Mikilvægi þessara sönnunar-
ÁGÚST, 1955
27