Heimilisritið - 01.08.1955, Page 63
þreyjufullur á herragarðinum
eftir endurkomu hennar. Hallar-
salimir voru svo tómlegir og
kaldir án hennar.
Hann tók það til bragðs að
vera sem mest utan húss, og einn
daginn reið hann fram hjá Carn-
forth-húsinu. Af tilviljun tók
hann eftir því, að túnhliðið stóð
opið, svo að hann reið að því og
lokaði hliðinu. í sama bili kom
hestasveininn þar að.
„Þakka yður fyrir,“ sagði
hann. „Maurice hefði orðið reið-
ur, ef hann hefði séð hliðið opið,
en sem betur fer er hann ekki
heima.“
„Jæja. Er hann í löngu ferða-
lagi?“ spurði Bruce.
„Já, hann er í Glasgow,“ svar-
aði hestasveininn.
19. kapítuli
ÞÆR Linda og Agnes bjuggu
á einhverju dýrasta hóteli Glas-
gowborgar, og gamla bamfóstr-
an, sem aldrei hafði verið í stór-
borg áður, var ákaflega hrifin af
öllu, sem fyrir augun bar. Ef
tími hefði verið til þess, hefði
Linda tekið hana með sér og
sýnt henni það fáséðasta og
markverðasta, en nú gat ekki
orðið úr því!
Þegar þær voru að fara út frá
hótelinu einhvem síðasta dag-
inn, sem þær dvöldu þar, veitti
Linda athygli litlum, svörtum
bíl, sem lagt hafði verið við inn-
ganginn. Það var eitthvað kunn-
uglegt við manninn við stýrið,
og þegar hún athugaði betur, sá
hún að það var Maurice.
„Maurice, ert þetta þú?“
„Er það sem ég sé? Linda!“
sagði hann og lét sem hann væri
alveg undrandi. „Þetta var sann-
arlega óvænt ánægja. Sæl, Agn-
es.“
Agnes heilsaði honum kunn-
uglega, því hún kunni ekki við
að snúa upp á sig, þótt hún hefði
ógeð á honum. Hann brosti út í
annað munnvikið og sneri sér
að Lindu.
„Ef þið eruð að fara út í búð-
ir, er velkomið að ég keyri ykk-
ur,“ sagði hann. „Ég hef ekkert
annað að gera, og það lítur út
fyrir rigningu. Hvert eruð þið
að fara?“
Linda þakkaði honum gott
boð og tilgreindi eitthvert
stærsta vömhús borgarinnar.
„Við ætlum að skoða, hvað
fæst þar,“ sagði hún.
„Nú. það var heppni, að ég
skyldi rekast á ykkur,“ sagði
Maurice. „Ég var einmitt í vand-
ræðum með, hvað ég ætti að
gera af mér.“
„Verðurðu hérna lengi?“
spurði Linda.
„Bara nokkra daga,“ flýtti
ÁGÚST, 1955
61