Heimilisritið - 01.08.1955, Síða 64
hann sér að segja. „Ég býst við
að fara heim á mánudag. Hvað
ætlarðu að kaupa í dag?“
„Ég ætla að máta ballkjól og
dragt.“
Lindu þótti reglulega vænt um
að hafa hitt Maurice. Hún hafði
tekið hann alveg í sátt, og þau
gátu rabbað saman eins og áður
fyrr sem góðir félagar. Hann
hafði líka reynt eftir beztu getu
að sættast við Bruce, og hún von-
aði að þeir gætu orðið kunningj-
ar.
Þegar þau óku upp að dyrum
vöruhússins, opnaði Maurice
dyrnar fyrir þeim og sagði: „Ég
kem eftir örlitla stund. Ég ætla
bara að leggja bílnum héma í
hliðargötunni.“
„En — þú skalt ekki bíða eftir
okkur,“ andmælti Linda. „Við
verðum áreiðanlega lengi.“
„Ég ætla ekki að bíða,“ sagði
hann brosandi. „Ég kem með
inn.“
„Nei, það máttu ekki,“ ságði
hún.
„Af hverju ekki?“
„Það er ekki passandi að ó-
kunnugur maður aðstoði Lindu
við að máta og kaupa kjóla,“
sagði Agnes hvatlega.
„En ég á sjálfur erindi hérna
inn, Agnes. Mamma lét mig hafa
lista yfir ýmislegt smávegis, og
ég er að vona að þú munir að-
stoða mig við innkaupin. Hérna
eru fimm pund og innkaupa-
listinn, og svo hittumst við hérna
við aðaldyrnar á eftir.“
Hann tók undir armlegg Lindu
ög leiddi hana að lyftudyrunum,
en Agnes horfði tortryggnislega
á eftir þeim.
„Ég get áreiðanlega gefið þér
einhver góð ráð,“ sagði hann, „og
get vonandi orðið þér að liði. Ég
hef sæmilegan smekk, skal ég
segja þér, og ég veit hvað klæð-
ir þig “
Hann var svo unglingslegur í
framkomu, að það lá við að Linda
færi að hlæja. Meðan hún skoð-
aði kjólana, sat hann reykjandi
í hægindastól, og að síðustu kom
hún til hans með hvítan silki-
kjól á handleggnum.
„Er hann ekki óviðjafnanleg-
ur?“ spurði hún. „Sjáðu bara, ég
ætla að máta hann.“
Hún skrapp í annað herbergi,
og hann einblíndi á eftir henni
með löngunarfullu augnaráði.
Hingað til hafði alt gengið að
óskum, og hann ætlaði ábyggi-
lega að sjá um, að ekkert yrði
úr brúðkaupi Lindu og Bruce.
Klukkan var langt gengi tvö,
þegar Linda hafði lokið við það
sem hún þurfti að gera; og bless-
aður maðurinn fylgdi henni nið-
ur.
62
HEIMILISRITIÐ