Heimilisritið - 01.01.1956, Qupperneq 37

Heimilisritið - 01.01.1956, Qupperneq 37
vorhimininn yfir þeim. Nú var öll stríðnin horfin úr augum hennar og hann sá ekki annað en vin- semd og áhuga. Hún var hrífandi kvenleg og það var ómögulegt annað en að verða hrifinn af henni. „Jú," sagði hann, „við skulum bara segja þú." Um leið rétti hún honum hönd- ina og greip í hendi hans. Hon- hitnaði um hjartarætur og fann að hjarta hans sló hraðar. „Jæja, heilsaðu þá vel nýju kaupakonunni í Gullhaga. Ég heiti Jenny," sagði hún og hló <glaðlega. „Já, ég heiti Jenny Hansen, hvort sem þú trúir því eða ekki." Hann brosti og var enn vand- ræðalegur. „Ég heiti Hinrik, Hin- rik Munk." HÁDEGISVERÐINUM var lok- ið og þeir höfðu farið inn í sitt herbergi. Páll lá í rúminu með hendurnar undir höfðinu og horfði upp í loftið. Hinrik sat við borðið og blaðaði eirðarlaus í vikublaði. „Hún er hreint ekki svo slæm, þessi nýja kaupakona," sagði Páll og andaði djúpt. „Kannske ætti ég að sleppa Guðrúnu á Sandbakka og gera mínar hosur grænar fyrir þessari." Hinrik þaut á fætur. „Hvað áttu við? Áttu við þessa stúlku, JANÚAR, 1956 sem var að koma, kaupakon- una?" Páll brosti. „Já, hún er mjög aðlaðandi. Finnst þér það ekki? Gætirðu ekki hugsað þér að kreista hana svolítið?" Hinrik var með hugann í upp- námi. Hann andaði djúpt að sér og stóð upp. „Þú ættir að skammast þín fyrir að tala svona," hvæsti hann. „Og þú skalt ekki voga þér að snerta hana. Ég veit það vel, að þú ert búinn að daðra við margar stúlk- ur, en þú skalt ekki fá að snerta hana ..." „Guð minn góður!” Pátt lyfti sér upp á olnbogann og starði á Hinrik. „Hvað er eiginlega að þér, maður? Maður skyldi halda að fjandinn væri hlaupinn í þig. Þú ætlar þó ekki að segja mér, að þú sért orðinn skotinn í henni strax?" „Láttu hana í friði!" Augu Hin- riks skutu gneistum, en æsingur hans var í rénum og hann var mildari í rómnum, þegar hann sagði: „Þú hefur Guðrúnu, Páll. Þið eruð trúlofið, það heíurðu sagt mér, og þá er það ekki rétt af þér .. ." „Þú ert sá mesti bjálfi, sem ég hef nokkru sinni kynnzt. Að vísu er Guðrún unnustan mín, en þar með er ekki sagt, að ég hafi ekki leyfi til þess að dufla svolítið við 35
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.