Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.12.2013, Blaðsíða 80

Fréttatíminn - 13.12.2013, Blaðsíða 80
80 heilsa Helgin 13.-15. desember 2013  Jól Góð ráð um Jólin Hollari jólabakstur um jólin með Gleðilega hátíð Þú finnur girnilegar jólauppskriftir á .is H E L G A R B L A Ð Ó K E Y P I S H E L G A R B L A Ð Ó K E Y P I S H E L G A R B L A Ð H E L G A R B L A Ð H E L G A R B L A Ð Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S ÓKEYPIS ÓKEYPI S Heilsan á nýju ári Fréttatíminn gefur út sérblað um HEILSU föstudaginn 3.janúar 2014. Ef þú hefur áhuga á að kynna starfsemi þína eða kaupa auglýsingu í þessu spennandi blaði hafðu þá samband við auglýsingadeild Fréttatímans auglysingar@frettatiminn.is eða í síma 531-3310. Fimm ráð til að lifa jólin af Jólin geta verið mjög erfitt tímabil fyrir marga því fólk væntir þess að allt verði fullkomið. Ekkert er til sem er fullkomið en það er hægt að nota skynsemina fyrir jólin og koma í veg fyrir algeng vandamál eins og streitu, áhyggjur, óhóflega drykkju, þyngdaraukningu og erfið samskipti. Streita Hvers vegna eru jólin svona mikill streituvaldur? Það eru margar ástæður sem koma saman eins og áhyggjur af fjármálum, of mikið að gera í félagslífinu og uppsafnaður kvíði vegna óuppgerðra einkamála. Það er hægt að komast hjá óþarfa stressi á þessum tíma ef menn skipuleggja sig tímanlega. Gerðu lista yfir það sem er nauðsynlegt að kaupa og slepptu því sem er það ekki. Vertu líka dugleg/ur að leyfa öðrum sem hafa tíma að hjálpa þér. Fjölskyldu- deilur Þegar ósætti er á meðal vina eða fjölskyldumeð- lima getur það dregið úr ánægju jólanna. Ef dæmi er um slíkt hjá þér skaltu ekki gera ráð fyrir kraftaverkum því að líkurnar eru á því að þið munið ekki sættast bara vegna þess að jólin eru komin. Sumir leita til aukinnar áfengisdrykkju til þess að takast á við erfið samskipti en það mun bara auka vandann enn frekar. Reyndu að þekkja þær að- stæður hjá sjálfum þér sem koma neikvæðum tilfinn- ingum og reiði af stað og hugsaðu um það jákvæða í þínu lífi í staðinn. Þyngdar- aukning Algengt er að fólk þyngist um 0,8 til 1,5 kíló yfir há- tíðirnar og það er í raun ekki skrítið miðað við þær kræs- ingar og þá óhollustu sem eru á boðstólum í desember. Til þess að reyna að koma í veg fyrir þyngdaraukningu skaltu borða aðeins hollan mat þegar þú ert heima hjá þér og ef þú kemst ekki í ræktina skaltu gera það að venju að fara í göngutúra með fjölskyldunni eftir mat. Áfengisneysla Það eru samkomur, jólahlaðborð eða partí annað hvert kvöld í desember. Og mjög oft er boðið upp á girnilega drykki og þá er ekki gaman að segja nei við slíkum boðum (nema auðvitað þú drekkir ekki). Ef þú ætlar að passa þína drykkju getur þú einfaldlega hellt sódavatni í fallegt vínglas. Nú ef þú kýst að drekka áfengi þá skaltu drekka vatnsglas inn á milli til þess að koma í veg fyrir of mikla drykkju og óþarfa höfuðverk daginn eftir. Peningar Of mikil eyðsla yfir hátíðirnar er því miður mjög algengt vandamál og getur haft mjög leiðinlegar afleiðingar á nýju ári. Til þess að koma í veg fyrir peningaáhyggjur er auðvitað best að plana fjármálin fyrir allt árið. Ef þú átt stóra fjöl- skyldu og stóran vinahóp þarftu að takmarka þig við ákveðna upphæð fyrir hverja gjöf eða jafnvel fækka þeim fjölda gjafa sem þú gefur venjulega. Jólin eiga að vera ánægjuleg og þess vegna er mjög mikil- vægt að hver og einn geri ráðstafanir til að koma í veg fyrir möguleg vandamál sem tengjast streitu, peningum, óhóflegri áfengisneyslu, óþarfa þyngdaraukningu og samskiptavandamálum við fjölskyldu og vini. Hér eru nokkur ráð sem mætti hafa til umhugsunar til þess að tryggja að allir njóti jólanna eins mikið og þeir vilja. #$%= &%$ $&% %=#$
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.