Fréttatíminn - 13.12.2013, Blaðsíða 40
- Hrein snilld -
Í ELDAMENNSKUNA
Gerðu máltíðina enn betri með teningunum frá Bong
því þeir laða fram það besta úr góðu hráefni.
EKKERT MSG
ENGIN TRANSFITA
ENGIN LITAREFNI
Sígaunaspilin eru
einfaldari en hefð-
bundin tarotspil
og þessi eru sér-
staklega hönnuð til
að ná til ungs fólks.
Dægurmál Vinkonur til ellefu ára gefa saman út bók og spáspil
Sígaunaspilin segja til um framtíðina
Hafdís Heiðarsdóttir og
Vilborg Aldís Ragnars-
dóttir áttu báðar sígauna-
spil sem unglingar og nota
þau enn. Hafdís segir erfitt
að nálgast góð sígauna-
spil og eftir að þeirra eigin
unglingar fóru að stelast
í spilin þeirra ákváðu þær
að hanna sín eigin spil. Við
hönnun spilanna fæddist
söguþráður að bók um
stelpu sem fær
sígaunaspil í
kistli frá ömmu
sinni í Rúmeníu
og úr varð bókin
Galdra þulan.
V ið höfum báðar átt spáspil frá því við vorum unglingar og það er skondin tilviljun
að við byrjuðum báðar að læra á
sígaunaspil því þessi spil eru ekki
mikið notuð hér á landi og erfitt
að nálgast góð sígaunaspil,“ segir
Hafdís Heiðarsdóttir sem ásamt
Vilborgu Aldísi Ragnarsdóttur,
samstarfskonu sinni og vinkonu
til ellefu ára, var að gefa út ung-
lingabókina Galdraþulan en með
bókinni fylgja sígaunaspil. Þær
Hafdís og Vilborg hafa síðustu ár
rekið saman fyrirtækið Arca design
sem sérhæfir sig í
íslenskri hönnun á
vörum úr plexigleri
og áli, og ákváðu að
færa út kvíarnar með
útgáfu bókarinnar og
spilanna.
Bryndís segir að
sígaunaspilin séu
spáspil en heldur ein-
faldari en hefðbundin
tarotspil. „Við eigum
báðar unglinga sem
eru alltaf að stelast í spilin
okkar og við ákváðum
að búa til okkar útgáfu
af spilunum. Þegar við
vorum að hanna spilin þá
eiginlega bara kom bókin til
okkar. Ég veit að það hljómar eins
og klisja en þannig var það,“ segir
Hafdís hlæjandi. Spilin fylgja með
bókinni og leika sígaunaspil þar
stórt hlutverk. „Sagan fjallar um
Kæju sem er ósköp venjuleg íslensk
stelpa en á 15 ára afmælisdaginn
fær hún sendan ævafornan kistil frá
ömmu sinni í Rúmeníu. Inni í kistl-
inum finnur hún gömul sígaunaspil
og þegar hún leggur þau í fyrsta
skipti kemur í ljós galdraþula. Það
sem Kæja vissi ekki er að þulan var
bannfærð af ungri norn sem hafði
gengið í lið með hinu illa og eftir að
Kæja fór með þuluna fór ýmislegt
að gerast. Hún breyttist í útliti og
komst að því að hún getur galdrað.
Kæja kynnist síðan strák sem er í
nornareglu á Íslandi. Galdraþulan
er í þremur hlutum og þegar Kæja
fór með fyrsta hluta hennar opnaði
hún fyrir gáttir í Rúmeníu þar sem
nornaþingið vill ekki að hún fari
með seinni hlutana tvo og reyna
allt til að eyða yfirvofandi ógninni,“
segir Hafdís en til stendur að gefa
út tvær aðrar bækur í framhaldi af
Galdraþulunni.
Þær fengu grafíska hönnuðinn
Ólöfu Erlu Einarsdóttur, sem þekkt
er fyrir að skapa magnaða töfraver-
öld með myndum sínum, til að gera
forsíðukápuna en fyrirsætan á káp-
unni er dóttir Hafdísar, Birta. Haf-
dís segir vinnuna við bókina gengið
mjög vel en erfiðara hafi verið að
prenta spilin. „Það var erfitt að láta
gera þau einmitt eins og við vildum
hafa þau. Til stóð að bókin og spilin
kæmu til landsins í síðasta lagi í
byrjun nóvember en því seinkaði
um mánuð. En við erum ánægðar
með útkomuna þannig að biðin var
þess virði.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Hafdís Heiðarsdóttir og
Vilborg Aldís Ragnars-
dóttir eru höfundar
bókarinnar, en þær reka
saman hönnunarfyrir-
tækið Arca design.
Ljósmynd/Hari
Grafíski hönnuður-
inn Ólöf Erla Einars-
dóttir hannaði
bókarkápuna
og fyrir-
sætan á
kápunni
er dóttir
annars
höfundarins.
40 viðtal Helgin 13.-15. desember 2013