Fréttatíminn - 13.12.2013, Blaðsíða 2
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
33
40
2
Sigtið hveiti, matarsóda, lyftiduft og
salt saman í skál og leggið til hliðar.
Setjið Ljóma og sykur í hrærivélaskál
og hrærið saman í um 5 mínútur eða
þar til blandan verður mjúk og
kremkennd.
Hrærið eggjunum einu og einu saman
við og hrærið vel á milli.
Bætið vanilludropum út í deigið.
Stillið hrærivélina á hægan hraða,
bætið þurrefnunum í deigið og hrærið
þar til hráefnin hafa blandast saman.
Passið að ofhræra ekki deigið. Það ætti
að duga að hræra það í 5–10 sekúndur.
Bætið súkkulaðibitunum varlega
í deigið.
Setjið deigið í plastfilmu og geymið
í ísskáp í 48 klst. eða að minnsta kosti
24 klst.
Deigið má geyma í allt að 72 klst.
Þegar það á að baka kökurnar er ofninn
hitaður í 175°. Setjið bökunarpappír á
bökunarplötu og mótið kúlur úr deiginu
á stærð við golfkúlu.
Setjið deigkúlurnar á bökunarplötuna
(passið að hafa gott bil á milli því þær
renna út) og stráið salti yfir.
Bakið kökurnar í 18–20 mínútur eða þar
til þær eru gylltar á lit en mjúkar. Látið
kökurnar kólna á grind í 10 mínútur.
NEW YORK TIMES
SÚKKULAÐIBITAKÖKUR
2 bollar mínus 2 msk. hveiti
1 1/3 bolli brauðhveiti (ef þú
átt það ekki notar þú
venjulegt hveiti)
1 1/4 tsk. matarsódi
1 1/2 tsk. lyftiduft
1 1/2 tsk. gróft salt
1 1/4 bolli Ljóma
1 1/4 bolli ljós púðursykur
1 bolli plús 2 msk sykur
2 egg
2 tsk. vanilludropar
560 g dökkir súkkulaðibitar
Sjávarsalt eða gróft salt til
að strá yfir kökurnar
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
..
.
.
.
.
Baráttusamtök utangarðsfólks stofnuð
Þorsteinn
Víglunds-
son, fram-
kvæmda-
stjóri
Samtaka
atvinnu-
lífsins.
Kjarasamningar Viðræður í uppnámi eftir að así sleit Viðræðum
Lægstu launin hindra
heildarsamninga
ASÍ vildi 11.000 króna hækkun lægstu launa um áramót sem SA hafnaði. Nú krefst Starfsgreina-
sambandið 20.000 króna hækkunar lægstu launa. SA óttast að tilraunir til að hækka lægstu launin
umfram önnur mistakist og hækkunin gangi upp allan launaskalann.
á greiningur um hversu mikið eigi að hækka lægstu launin umfram önnur laun er það sem strandar á í kjaravið-
ræðum Samtaka atvinnulífsins (SA) og verka-
lýðshreyfingarinnar.
Þegar viðræðurnar strönduðu krafðist Al-
þýðusambandið (ASÍ) 11.000 króna hækkunar
á lægstu laun og 3,25% hækkun launa yfir um
230.000-240.000 króna á mánuði. Gerður yrði
samningur sem gilti í mesta lagi í eitt ár en að
á grundvelli samningsins mætti í framhaldinu
gera nýjan samning til lengri tíma.
SA hefur lýst sig tilbúin til að hækka
lægstu laun umfram önnur, en ekki svo
mikið. SA segir að reynslan sýni að sérstakar
hækkanir lægstu launa verði fljótt að engu.
Prósentuhækkun lægstu launa gangi upp
allan launastigann og leiði því til mun meiri
kostnaðarauka fyrir fyrirtækin og verri áhrifa
á efnahagslífið en um er samið.
Þreifingar í gangi
Eftir að Alþýðusamband Íslands
sleit viðræðum við SA í síðustu
viku fara aðildarsambönd ASÍ
sjálf með samningsumboðið. Þau
sambönd þar sem láglaunafólk
er fjölmennast, Starfsgreinasam-
bandið, Flóabandalagið og Lands-
samband verslunarmanna hafa
vísað sínum málum til ríkis-
sáttasemjara og krefjast nú
20.000 króna hækkunar
lægstu launa.
Önnur sambönd eins og
Samiðn, Rafiðnaðarsam-
bandið að eigin kröfugerð
og undirbúa viðræður um
eigin kjarasamninga.
Þorsteinn Víglunds-
son, framkvæmdastjóri
SA, sagði við Fréttatím-
ann að lítið væri hægt að segja um stöðuna og
litlu hægt að spá um horfur. „Það eru þreif-
ingar í gangi og það er verið að fara yfir sviðið
með aðildarfélögum ASÍ,“ sagði Þorsteinn.
Væntanlega skýrist á næstunni hvort grund-
völlur sé fyrir samningum en lítið sé hægt að
segja um stöðuna nú.
Það þarf eitthvað til að hreyfa við
„Málið er í hnút og það þarf eitthvað til að
hreyfa við því,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, for-
seti ASÍ. Verkalýðshreyfingin telji að at-
vinnurekendur vilji leggja of lítið af mörkum.
Sveitarfélögin hafi sýnt vilja til að greiða fyrir
samningum með því að stöðva áformaðar
gjaldskrárhækkanir sínar en framlag ríkis-
stjórnarinnar valdi vonbrigðum og sé fólgið
í því að kynna aðgerðir í skuldamálum sem
stuðli að aukinni verðbólgu. Seðlabankinn
hafi hins vegar kynnt það mat á stöðunni að
þær tillögur sem bæði ASÍ og SA hafi lagt
fram samrýmist verðbólgumarkmiði Seðla-
bankans og að niðurstaða í anda þeirra til-
lagna þyrfti ekki að kalla á vaxtahækkun.
Stjórnendur stöðvi launaskriðið
Varðandi áhrif hækkunar lægstu launa á
launaskrið og hækkanir annarra starfsmanna
fyrirtækja segir Gylfi að ósanngjarnt sé að
krefjast að samningsbundin launahækkunin
sé minni svo að fyrirtækin hafi meira svigrúm
til að deila út launaskriði til hærra launaðra
starfsmanna. Leiðin til þess að stöðva launa-
skriðið sé sú að gera kröfur um aðhald til
stjórnenda fyrirtækjanna. Stjórnendur fyrir-
tækja beri ábyrgð á því að þær prósentuhækk-
anir sem samið er um fyrir fólk undir 230-
240.000 krónur gangi ekki óskertar til fólks
með 5-600.000 krónur á mánuði.
Pétur Gunnarsson
petur@frettatiminn.is
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands.
H éraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær fjóra forsvarsmenn Kaupþings banka í fangelsi fyrir aðild að Al
Thani-málinu.
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi
forstjóri Kaupþings banka, var dæmdur
í fimm og hálfs árs fangelsi, Sigurður
Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður
bankans, hlaut fimm ára dóm, Ólafur Ólafs-
son, einn aðaleigandi bankans, oft kenndur
við Samskip, var dæmdur í fangelsi í þrjú
og hálft ár en Magnús Guðmundsson, fyrr-
verandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg,
hlaut þriggja ára dóm. Allir dómarnir eru
óskilorðsbundnir.
Al Thani-málið snerist um viðskipti sem
gerð voru 22. september 2008, tveimur
vikum áður en Kaupþing banki komst í
þrot og var yfirtekinn af Fjármálaeftir-
litinu. Tilkynnt var að Sheikh Mohammed
Bin Khalifa Al Thani, milljarðamæringur
og náfrændi emírsins í Katar, hefði keypt
5,01% hlut í Kaupþingi og greitt fyrir hann
25,7 milljarða króna. Þetta var haft til
marks um styrka stöðu Kaupþings og þá
trú sem bankinn nyti meðal fjárfesta. Síðar
kom í ljós að Kaupþing hafði veitt Al Thani
lán fyrir kaupverðinu með veði í hlutabréf-
unum.
Hreiðar Már og Sigurður voru ákærðir
fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun en
Magnús og Ólafur fyrir hlutdeild í brotum
hinna tveggja. Saksóknari taldi að þarna
hafi verið um ræða málamyndaviðskipti
sem ætlað var að halda uppi verði hluta-
bréfa í Kaupþingi. Þá hafi lög verið brotin
með lánveitingum bankans til Al Thani.
Mennirnir neituðu allir sök og staðhæfðu
að þrotabú Kaupþings stæði betur en ella
vegna viðskiptanna en Al Thani greiddi
þrotabúinu 3,5 milljarða króna vegna upp-
gjörs viðskiptanna.
Sakborningarnir voru einnig dæmdir til
að greiða verjendum sínum málsvarnarlaun
á bilinu 13-33 milljónir króna. -pg
Dómur fjórir Kaupþingsmenn DæmDir í þriggja til fimm og Hálfs árs fangelsi
Þungir dómar í Al Thani málinu
Alma Rut Lindudóttir var kjörinn formaður Raddarinnar,
baráttusamtaka fyrir réttindum utangarðsfólks, á
stofnfundi samtakanna á miðvikudagskvöldið. „Ég er
stolt að vera partur af þessu og virkilega þakklát því
trausti sem mér var sýnt með því að vera kosin for-
maður. Ég mun gera allt sem ég get til að sinna
því með sóma Ég mun leggja allt mitt í þetta
málefni eins og ég hef gert í þau ár sem
ég hef komið að þessu,“ segir Alma. Hún
hefur unnið mikið að málefnum utan-
garðsfólks og kynnt sér vel þau úrræði
sem í boði eru en Loftur Gunnarsson,
útigangsmaður sem lést aðeins 32
ára í ársbyrjun 2012, var mikill vinur
hennar. Meðal annarra stjórnarmanna
eru Þorleifur Guðlaugsson, varaborgar-
fulltrúi Vinstri grænna, sem einnig hefur
látið málaflokkinn sig mikið varða. -eh
London vinsæl-
asti áfanga-
staðurinn
Fimmta hver vél eða 21
prósent fór til London af
þeim 700 áætlunarferðum
sem fóru frá Keflavíkur-
flugvelli í síðasta mánuði,
samkvæmt upplýsingum
af vefnum turisti.is. Easy
Jet, Icelandair og Wow
air fljúga öll til London
allt árið um kring og
hefur umferðin þangað
tvöfaldast á tveimur árum.
Í síðasta mánuði var næst
vinsælasti áfangastaðurinn
Kaupmannahöfn, eða 13%
og svo Osló, 10%. Flugsam-
göngur við aðrar borgir eru
mun minni. Í haust hóf Ice-
landair að fljúga til Newark
flugvallar í nágrenni við
New York borg. Þar með
hefur ferðum þangað
fjölgað því að félagið
heldur áfram að fljúga til
JFK flugvallar.
Spáir hærra
fasteignaverði
Greiningardeild
Arion banka spáir því
að íbúðarhúsnæði
muni hækka um 14%
næstu tvö árin sem
samsvarar 7 til 8
prósenta verðhækkun
á hvoru ári fyrir sig.
Samkvæmt spánni
munu aukin umsvif í
hagkerfinu samhliða
vaxandi kaupmætti
og fólksfjölgun þrýsta
á hækkun á verði
íbúðarhúsnæðis.
„Við teljum að fjölbýli
muni hækka meira
í verði en sérbýli
og reiknum með
að hverfisálag mið-
svæðis hækki lítillega
þar til leiguverð eða
markaðsverð skapa
ótvíræðan hvata til
nýbygginga,“ segir í
tilkynningu frá bank-
anum.
Hönnuðir og
arkítektar fá fé
Hönnunarsjóður úthlutaði
í fyrsta skipti ríflega 41
milljón króna til hönnuða
og arkítekta. Meira en
200 umsóknir bárust og í
heildina var sótt um 400
milljónir en 41 milljón var
til skiptanna. 29 verk-
efni hlutu styrki en auk
þess voru ferðastyrkir
veittir. Ungir og upprenn-
andi fatahönnuðir með
nýjar fatalínur voru meðal
þeirra sem hlutu styrki til
markaðssetningar erlendis.
Vöru- og húsgagnahönn-
uðir voru einnig á meðal
þeirra sem hlutu styrki
en mjög mikilvægt þykir
að fjárfesta í starfsemi
fjölmargra hönnuða og
fyrirtækja. Verkefni á
sviði grafískrar hönnunar,
arkítektúrs, leirkerahönn-
unar, skartgripahönnunar
og textílhönnunar hlutu
styrki.
2 fréttir Helgin 13.-15. desember 2013