Fréttatíminn - 13.12.2013, Blaðsíða 84
84 heklað Helgin 13.-15. desember 2013
Hekl Í bókinni eru einfaldar og skemmtilegar Hekluppskriftir
HIN FULLKOMNA
JÓLAGJÖF
Óskaskrín henta fullkomlega í harða pakka fyrir þá sem vilja upplifa
og njóta, þá sem velja sjálfir, þá sem eiga allt. Það er einfalt að velja
rétta gjöf – gefðu upplifun í öskju, gefðu Óskaskrín.
Opna – Velja – Njóta
sími 577 5600 info@oskaskrin.is www.oskaskrin.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
Ugla
sat á
kvisti
Heklaðar fígúrur
Marín Þórsdóttir hefur heklað frá því hún var unglingur en er einnig liðtæk með prjónana.
Hún var að gefa út sína fyrstu heklbók sem er tileinkuð smáfólkinu. Þar eru 32 uppskriftir
að hekluðum dýrum og öðru nýtilegu fyrir börn og foreldra.
É g lærði að hekla í grunnskólanum í Mosfellsbæ, Gaggó Mos. Það fyrsta sem ég heklaði mér var vesti sem mér fannst mjög töff en ég veit ekki hvort það myndi ganga í dag,“ segir Marín Þórsdóttir. sem
var að senda frá sér bókina „Heklað fyrir smáfólkið.“ Hún hefur alltaf
lagt stund á handavinnu og í raun prjónað meira en heklað í gegn um
tíðina. „En eftir að ég eignaðist strákinn minn, sem er núna fjögurra
ára, þá fórum við vinkonurnar að hekla lítil dýr eftir amerískum upp-
skriftum. Þetta þróaðist síðan út í að ég fór að hekla eftir mínum
eigin uppskriftum. Ég hef oft verið spurð hvort ég vilji selja hlutina
sem ég hef heklað en þar sem handavinna er svo lágt verðlögð lang-
aði mig aldrei að hekla til að selja. Frekar vil ég gefa handavinnuna
mína eða hjálpa öðrum að hekla sjálfir. Þá spratt upp sú hugmynd að gefa
út heklbók,“ segir hún.
Þetta er fyrsta bókin sem Marín gefur út ein en hún átti uppskriftir í
bæði Prjónaperlum og Fleiri prjónaperlum, en þeim bókum var ritstýrt
af Halldóru Skarphéðinsdóttur og Erlu S. Sigurðardóttur. Í bók-
inni „Heklað fyrir smáfólkið“ er að finna ýmiss konar fígúrur
en líka barnasmekki, húfur og teppi. „Allar fígúrurnar hafa
sín persónueinkenni. Innblástur að uglunni sótti ég til
lítils vinar míns sem segir ekki mikið en þegar hann
talar segir hann eitthvað mjög gáfulegt. Þessi litli
vinur minn sem uglan er tileinkuð heitir Bjartur
og hugmyndin að henni fæddist einn góðan
sumardag í bílnum á leiðinni frá Akureyri. Upp-
skriftin að uglunni er einföld og ef fólk getur
heklað hana þá ætti það að geta heklað allar
hinar uppskriftirnar í bókinni,“ segir Marín
en meðal annarra fígúra í bókinni eru fíllinn
Oddvar, Hanna kolkrabbi og nærsýn kisa með
gleraugu. Marín deilir uppskriftinni að uglunni
með lesendum Fréttatímans.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Uglan segir fátt
en þegar hún
segir eitthvað er
það afskaplega
gáfulegt. Ljósmynd/
Móa Hjartardóttir
Það sem þarf er:
Garn: Afgangar af
Mandarin Classic og
Mandarin Petit
Heklunál: 3 mm
Tróð
Uglan er um 15 cm á
lengd
Búkur
Heklið fram og til baka.
Heklið 21 LL.
1. umf.: Heklið 1 FL í aðra
L frá nál. Heklið 1 FL í
hverja L út umf. Endið
þessa umf. og allar
umf. hér eftir á 1 LL og
snúið við.
2.-64. umf.: Heklið 1 FL í
hverja L út umf. Endið
hverja umf. á 1 LL og
snúið við. Slítið frá
og gangið frá lausum
endum.
Auga
Heklið í hring. Heklið
2 LL.
1. umf.: Heklið 6 FL í
aðra L frá nál. Tengið
saman hringinn með
KL og heklið 1 LL.
2. umf.: Heklið 2 FL í
hverja L út umf., alls
12 FL. Tengið saman
í fyrstu L með KL og
heklið 1 LL.
3. umf.: *Heklið 2 FL
í fyrstu L og 1 FL í
næstu L. * Endurtakið
frá * til * út umf., alls
18 FL. Slítið frá og
gangið frá lausum
endum. Heklið hitt
augað eins. Saumið
augasteina í augun.
Vængir
Heklið í hring, skiptið um
lit í þriðju hverri umf.
Heklið 2 LL.
1. umf.: Heklið 6 FL í aðra
L frá nál. Ljúkið þess-
ari umf. og öllum umf.
hér eftir með því að
tengja saman hringinn
með KL í fyrstu L og
hekla 1 LL.
2. umf.: Heklið 2 FL í
hverja L, alls 12 FL.
Munið að tengja
saman í fyrstu L með
KL og heklið 1 LL.
3. umf.: *Heklið 2 FL
í fyrstu L og 1 FL í
næstu L.* Endurtakið
frá * til * út umf., alls
18 FL.
4. umf.: *Heklið 2 FL
í fyrstu L og 1 FL í
næstu 2 L.* Endur-
takið frá * til * út umf.,
alls 24 FL.
5. umf.: *Heklið 2 FL
í fyrstu L og 1 FL í
næstu 3 L.* Endur-
takið frá * til * út umf.,
alls 30 FL.
6. umf.: *Heklið 2 FL
í fyrstu L og 1 FL í
næstu 4 L.* Endur-
takið frá * til * út umf.,
alls 36 FL.
Uglurass
Heklið í hring. Heklið
2 LL.
1. umf.: Heklið 6 FL í aðra
L frá nál. Ljúkið þess-
ari umf. og öllum umf.
hér eftir með því að
tengja saman hringinn
með KL í fyrstu L og
hekla 1 LL.
2. umf.: Heklið 2 FL í
hverja L, alls 12 FL.
Munið að tengja
saman í fyrstu L með
KL og heklið 1 LL.
3. umf.: *Heklið 2 FL
í fyrstu L og 1 FL í
næstu L.* Endurtakið
frá * til * út umf., alls
18 FL.
4. umf.: *Heklið 2 FL
í fyrstu L og 1 FL í
næstu 2 L.* Endur-
takið frá * til * út umf.,
alls 24 FL.
5.-8. umf.: Haldið áfram
að auka út í um 6
FL í hverri umf. með
þessum hætti þar til
FL telja 48. Slítið frá
og gangið frá lausum
endum.
Saumið alla hlutana sam-
an og saumið gogginn í.
Fyllið með tróði áður en
saumað er fyrir búkinn
að fullu.
Marín Þórsdóttir hefur heklað frá því hún var unglingur og
byrjaði að hekla fígúrur eftir að sonur hennar fæddist.
Lj
ós
m
yn
d/
M
óa
H
ja
rt
ar
dó
tt
ir