Fréttatíminn - 13.12.2013, Blaðsíða 114
Verkalýðurinn skapar samfélag
Það var verkalýðurinn sem skapaði Þríhrossin;
vinnufólk sem flúði í sjávarþorpin undan ánauðarkerfi
bændanna, kerfi sem var aðeins skör yfir þrælahaldi
(þrælahald lagðist af á Íslandi án átaka vegna þess
að ánauðarkerfið var hagkvæmara fyrir bændurna).
Í fyrstu var vinnufólkið frelsinu fegið; fegið að geta
stofnað fjölskyldu og reynt að skrimta í verstöðvum af
daglaunum eða aflahlut. En fljótlega myndaði verka-
lýðurinn samtök og gerði kröfur um að samfélagið
yrði aðlagað að þeirra þörfum; að laun yrðu hækkuð,
hvíldartími tryggður og vinnutími styttur en líka að
heilsugæsla og skólaganga yrði almenn og að fjölskyld-
um yrði tryggt öruggt húsnæði; sem sagt hefðbundnar
kröfur lágstéttar um samhjálparkerfi sem byggt er upp
af skattlagningu tekna; en ekki síður eigna.
Yfirstéttin þurfti ekki slíkt kerfi. Hún gat tryggt
sér öruggt húsnæði, veitt börnum sínum menntun og
byggt upp afkomu á efri árum með sparnaði af tekjum
sínum. Lágstéttin gat ekki staðið undir slíku af lágum
launum sínum. En hún var fjölmenn og með samtaka-
mætti gat hún þrýst á um að samfélagið
þjónaði ekki aðeins hinum ríku og vold-
ugu (lögga og dómstólar til að verja eign-
arrétt) heldur líka að þörfum alþýðufólks
(almenn velferð). Hver láglaunamaður
var fátækur og valdalaus en saman gat
alþýðan sótt sér næstum takmarkalaus
völd til að breyta samfélaginu. Hún varð
ekki rík af slíkri baráttu en samfélagið
varð mannúðlegra og sanngjarnara; á
endanum svo að það var hægt að lifa með
reisn þótt maður væri blankur.
Verkalýðsstéttin flutti með sér hug-
myndir úr sveitunum um hvernig gott
samfélag ætti að vera; hugmyndir sem
höfðu kviknað í sveitunum urðu stórar í
bænum: Lestrarfélög urðu að bókasöfn-
um, farandkennarar að skólum, yfirsetu-
konur að heilsugæslu. Og svo framvegis.
Verkalýðurinn stofnaði með sér samtök,
byggði upp sparisjóð og kaupfélag, gaf
út blað og bækur, hvatti fólk til mennta,
heilsueflingar, listiðkunar og útiveru; til
sjálfsköpunar. Á breyttum tímum var það
nauðsyn hvers manns og konu að breyt-
ast sjálf og styrkjast.
Þetta er goðsögnin um lágstéttirnar.
Hún var í fyrstu misnotuð en náði með
samtakamætti að þröngva yfirstéttunum
til að draga úr stéttamun með sann-
gjarnari launagreiðslum og samrekstri á
þeirri grundvallar velferðarþjónustu sem
allir þurfa á að halda; heilbrigði, menntun
og framfærslu til handa þeim sem geta
ekki vegna fötlunar, lasleika eða elli
brauðfætt sig og sína. Með þessu batnaði
líf alþýðunnar, stéttamunur minnkaði og
börn verkafólks gátu sótt sér menntun og
unnið sig þannig upp úr lágstéttinni.
Í þessu lá hins vegar fræ fyrirsjáan-
legra vonbrigða. Þótt verkalýðurinn
byggi við betri kjör og meiri reisn en
vinnufólkið á tímum ánauðar þá bjó í
hverri fjölskyldu draumurinn um að
næsta kynslóð yfirgæfi verkalýðsstétt-
ina; stigi upp um eitt þrep hið minnsta.
Og síðan myndi næsta kynslóð taka enn
annað skref upp á við.
Það getur náttúrlega hver séð að þetta
er ekki sjálfbært væntingakerfi. Það er innbyggt inn
í það einskonar verðbólga væntinganna. Ef allir ná að
klifra upp hlýtur fjöldinn að sunka niður. Það geta ekki
bara verið liðþjálfar í hernum.
Hrunin sjálfsmynd
Ef það tekur hálfa öld fyrir lágstéttirnar að komast
undan taumlausri misnotkun fyrstu kynslóða kap-
ítalista; þá tekur það líklega álíka langan tíma fyrir
samtök verkalýðsins að flytja áherslurnar frá uppbygg-
ingu sanngjarns samfélags sem hentar eignalausri
lágstétt yfir í kröfur um samfélag sem þjónar þörfum
og væntingum millistéttarinnar. Fyrir það fyrsta
tekur það skemmri tíma fyrir forystusveit verkalýðs-
ins að aðlagast millistéttarlífi og taka upp lífsviðhorf
millistéttarinnar. Forystan verður á skömmum tíma að
stjórnsýslustétt verkalýðsins. En megindriftin að baki
færslu samtaka verkalýðsins frá kröfum um almenna
velsæld og yfir í kröfur um að hver eigi rétt á tækifær-
um til að byggja upp sína eigin einkavelsæld liggur í
væntingaskekkjunni sem ég nefndi áðan.
Kúgaður hópur þarf að byggja upp og viðhalda
sterkri sjálfsmynd til að halda sig við þær kröfur sem
sannanlega þjóna best hagsmunum hans. Ef sjálfs-
myndin er veik upplifir hópurinn sig alltaf sem gallaða
útgáfu af kúgara sínum; konur sem veika karla, svartir
sem lélega hvíta, fatlaðir sem gallaða heilbrigða. Og
svo framvegis. Ef hópurinn sækir ekki stolt sitt í stöðu
sína, eiginleika og uppruna; veikjast og útvatnast kröf-
ur hans. Á endanum verða þær aðeins umsókn um að fá
að vera sem líkastur andstæðingnum; kúgaranum.
Kannski var íslenskur verkalýður aldrei ýkja stoltur.
Mér sýnist þó af þeim heimildum um baráttuna á fyrri
helmingi síðustu aldar sem ég hef séð að hann var þá
margfalt stoltari en í dag. Ég man hins vegar varla eftir
stoltum verkamönnum. Í barnsminni mínu eru aðeins
nokkrar myndir af ungkörlum með vinnuvettlinga upp
úr rassvasanum gasprandi hátt út í sjoppu yfir dag-
blöðunum; lemjandi í borðið eins og valdið væri þeirra.
Þegar ég fór að fylgjast með pólitík var Gvendur Jaki
hins vegar sestur að tafli með Albert Guðmundssyni.
Síðustu stóru átökin á almennum vinnumarkaði voru
1978. Hjá opinberum starfsmönnum 1984. Stéttaátök
voru að mestu aflögð á Íslandi fyrir 35 árum.
Hugsið um verkalýðsfélagið ykkar í dag ef þið efist
um að svo sé. Lokið augunum og sjái formanninn fyrir
ykkur á mynd. Hver er við hliðina á formanninum? Jú,
einmitt; formaður samtaka þeirra sem kaupa vinnuna
ykkar (sem vildu fyrst heita vinnuveitendur en síðan
atvinnulífið sjálft).
Milli:
Löngu áður en stéttarátök voru svæfð hafði verkalýðs-
hreyfingin tekið upp kröfur um að lágstéttirnar gætu
líka fetað leið millistéttarinnar að farsæld. Um miðja
síðustu öld gat millistéttarfólk keypt
eigið húsnæði og byggt upp ævisparnað
af launum sínum. Láglaunafólk gat það
hins vegar ekki. Þrek þess fólst í sam-
takamættinum. Á sjöunda og áttunda
áratugnum tók verkalýðshreyfingin hins
vegar upp leið millistéttarinnar; séreigna-
stefnu í húsnæðismálum og uppbyggingu
lífeyrissjóðs fyrir hvern launamann.
Þetta tvennt; lífeyrissjóður og sér-
eignarhúsnæði sem aðalbaráttuamál
launþega; átti ekki aðeins eftir að brjóta
niður og gelda verkalýðsbaráttuna og
stöðva þannig þróun almennrar velferðar
í þágu fjöldans; heldur varð þetta síðar
meir ásamt menntunarblekkingunni; að
rótarmeini hinnar útblásnu millistéttar.
Eftir að hafa með allskyns brellum reynt
að halda lífi í væntingum meginþorra
fólks byggðum á þessum stoðum; féllu
þær saman í Hruninu. Þá afhjúpaðist að
væntingar útblásinnar millistéttar um
góða afkomu og öryggi voru reistar á
sandi; þær höfðu verið innistæðulausar
áratugum saman. Trú meginþorrans á
þessa blekkingu hafði hins vegar opnað
tækifæri fyrir þá ríku og valdsmiklu til að
sópa til sín meiri auði en sést hafði síðan
á frumbýlisárum kapítalismans.
Það kom í ljós í Hruninu að millistéttin
getur ekki verið mótvægi við yfirstétt-
ina eða haldið aftur að henni. Hún er í
vitlausri stöðu á vellinum. Henni er eigin-
legt að vera samverkamaður og þjónn
yfirstéttarinnar. Millistéttin hefur engin
tæki til baráttunnar. Þegar verkalýðs-
stéttin beitir sínum eigin samtökum fyrir
vagninn leitar millistéttin til ríkisvalds-
ins. Ríkisvaldið er hins vegar ekki vald
fólksins og hefur aldrei verið. Ríkisvaldið
er alltaf í höndum þeirra ríku og voldugu.
Aðhaldið með því valdi getur aldrei verið
innan þess.
Millistéttin trúði sögusögnum um að
hún væri hjarta og nýru lýðræðiskerfisins
og þar með meginstoð ríkisvaldsins. Hún
lagði traust sitt á stofnanir þess; að þær
tryggðu öryggi, yki jöfnuð og sköpuðu
velferð og velsæld. Hrunið afhjúpaði þá
blekkingu. Þá kom ekki aðeins í ljós að þessar stofn-
anir voru ófærar um að veita aðhald heldur kom í ljós
að þær höfðu einmitt alla tíð þjónað sérstaklega hinum
ríki og voldugu. Það er í eðli þeirra. Ríkið þjónar hinum
voldugu. Ef ríkið á að þjóna lágstéttunum (og þar með
talinn meginþorri þess fólks sem heldur að það tilheyri
millistétt) þurfa lágstéttirnar að sækja sér aukið vald –
utan ríkisvaldsins.
Þetta er súpan sem við sitjum í. Samtök lágstétt-
anna eru ófær um að gæta hagsmuna launamanna eða
móta samfélagið að þörfum hinna valda- og eignalausu.
Draumur stærsta hluta millistéttarinnar um velsæld og
velferð byggðri á eigin getu til að byggja upp eignir og
sparnað er fallinn. Þessi draumur reyndist blekking;
enn nýtt tæki hinna ríku og valdamiklu til að mjólka
almúgann. Á leiðinni í súpuna höfum við týnt hæfninni
til að tala um samfélagið eins og það er. Það er víðtækt
almennt í samfélaginu um þá sýn að við séum á sam-
eiginlegu ferðalag í sama bátnum og þurfum öll að þola
sömu ágjafirnar. Reyndin er að við höfum siglt á þess-
um báti inn í meiri misskiptingu auðs, valda og öryggis
að við þurfum að rifja upp bernskuár kapítalismans til
að finna samjöfnuð.
Þetta gerðist á vakt millistéttarinnar, sem allir vildu
tilheyra og allir telja sig tilheyra; vöggu lýðræðis og
góðra siða. Ég ætla loks að koma mér að efninu í næstu
viku og fjalla þá um þetta fyrirbrigði; millistéttarblekk-
inguna; og hvernig hún hefur brotið niður samfélagið.
Gunnar Smári
Egilsson
gunnarsmari@frettatiminn.is
Núverandi
stjórnarflokkar
halda því til
dæmis fram
að það sé ekki
fiskurinn í
sjónum, sjó-
mennirnir sem
veiða hann eða
verkafólkið sem
vinnur fiskinn
sem séu undir-
stöður sjávar-
útvegs á Íslandi
heldur útgerðar-
fyrirtæki. Til að
efla sjávarútveg
þurfi fyrst að
efla útgerðar-
mennina! Þetta
er álíka speki
og bæta megi
lífsgæði þræla
með því að gefa
þrælahaldar-
anum vindil.
• 300W 32 bita magnari
• 1 hátalari og þráðlaust bassabox
• Bluetooth tengimöguleiki
Verð 79.990.-
• Full HD 1920 x1080 punktar
• 200 Hz X-Reality myndvinnslukerfi
• Nettengjanlegt og innbyggt WiFi
Tilboð 179.990.- Verð áður 199.990.-
Sony Center
Verslun Nýherja Borgartúni / 569 7700
Verslun Nýherja Kaupangi Akureyri / 569 7645
Smíðuð fyrir ævinTýrin
Sony ActionCam WIFI HDRAS30
• Full HD vatnsheld upptökuvél
• 1/2.3 baklýst Exmor myndflaga
• Carl Zeiss Tessar linsa f 2.8
Verð 59.990.-
Góð kaup á anDrOiD SnjallSíma
Sony Xperia E
• 3,5” TFT snertiskjár með HD upplausn
• 3.2 pixla myndavél
• Videoupptaka
Verð 25.990.-
fullkOmnar mynDir beinT í Símann þinn
DSCQX10
• Myndavél sem smellur á snjallsíma
• 18,2 pixla 1/2.3 Exmor myndflaga
• Full HD Video
Verð 39.990.-
frábært
verð!
framúrSkaranDi mynDGæði
42” Led sjónvarp KDL42W653
heimabíó m. þráðlauSum baSSaháTalara
HTCT260H
5 ára ábyrGð fylGir öllum Sjónvörpum
hátíðartilboð
179.990.-
har
ðir
pa
kka
r
eru
gó
ðir
pa
kka
r
www.sonycenter.is
114 samtíminn Helgin 13.-15. desember 2013