Fréttatíminn - 13.12.2013, Blaðsíða 118
H A N D S M Í Ð A Ð Á S T A Ð N U M
L a u g a v e g i 5 2 , s í m i 5 5 2 - 0 6 2 0 , R v í k .
Demantar
Ljúfmetisverslunin Búrið Nóatúni 17 hefur undanfarin ár slegið upp
tjaldi á bílaplaninu framan við verslunina og haldið þar jólamatar-
markað sem farinn er að skapa sér fastan sess í jólaundirbúningi
matgæðinga landsins. Markaðurinn hefur vaxið með hverju árinu
og nú er komið að því að færa hann í stærra húsnæði, Hörpu. „Þetta
verður stærsti markaðurinn hingað til. Það er sífelld aukning milli
ára og áhugi bæði framleiðenda og neytenda virðist bara aukast.
Þetta ber vott um áhuga allra á Beint frá býli hugmyndafræðinni.
Fólk verður sífellt meira meðvitað um framleiðsluaðferðir og upp-
runa varanna sem það neytir,“ segir Eirný, eigandi Búrsins og einn
skipuleggjenda markaðarins. Í fyrra tóku 43 framleiðendur þátt og
4000 gestir mættu í tjaldið. Nú um helgina taka yfir 50 framleið-
endur þátt og Eirný býst við fleiri gestum en í fyrra.
Það er þó ekki aðeins vegna fólksfjölgunar sem markaðurinn
færir sig niður að höfninni heldur er það eitt skref á leið Búrsins í ný
heimkynni, en verslunin mun flytja á hafnarsvæðið í janúar. Eirný
segist sjá fjöldann allan af tækifærum í hafnarsvæðinu og ekki bara
vegna nálægðar þess við miðbæinn. Hún sér fyrir sér að halda þar
götumarkaði í sumar og er bjartsýnin uppmáluð þegar hún segist
búast við stórgóðu sumri. „Þrátt fyrir að hafa ekkert á móti bílaplan-
inu hérna í Nóatúni þá hlakka ég mikið til að fylgjast með árstíðun-
um við höfnina.“ Ekki finnst henni heldur skemma fyrir að vera með
nágranna á Grandagarði eins og ísbúðina Valdísi og veitingastaðinn
Coocoo's Nest sem deila með henni matarástríðunni.
Þessi stærsti matarmarkaður Íslands verður haldinn í Hörpu
núna um helgina 14. til 15. desember og opið verður frá 11 til 17
báða dagana.
Halla Harðardóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
Eirný Jólamatarmarkaður Búrsins vErður í Hörpu í ár
Búrið flytur út á Granda
Eirný hlakkar mikið til að
halda götumarkaði við
höfnina næsta sumar.
Hafa safnað hálfri
milljón fyrir UNICEF
„Eftir að hafa séð fréttir af
hamförunum sem áttu sér stað
þann 8. nóvember á Fillipps-
eyjum ákváðum við að sameina
krafta okkar og leggja neyðar-
starfi UNICEF lið. Úr því varð
þessi uppskriftabæklingur. Upp-
skriftirnar eru allar án sykurs
og hveitis og henta þeim sem
eru sykursjúkir, eru á lágkol-
vegna mataræði og öðrum sem
vilja hollari útgáfu af bakstri,“
segir Hafdís Priscilla Magnús-
dóttir sem heldur
úti matarblogg-
inu Dísukökur.
Hún fékk
félaga sinn,
Ágúst Ævar
Guðbjörnsson
hjá 23 Auglýs-
ingastofa, til að hanna bókina en
í henni eru 14 uppskriftir sem
henta vel fyrir jólin. Þar er meðal
annars að finna uppskriftir af
kókostoppum, kryddköku, mar-
engskökum og jarðarberjaís,
en yfirskrift söfnunarinnar er:
„Látum gott af okkur leiða í
jólabakstrinum.“ Samkvæmt
sölutölum síðdegis á fimmtudag
höfðu safnast 520 þúsund krónur
til hjálparstarfsins.
Fellibylurinn sem skall á
Filippseyjum í nóvember olli
gríðarlegri eyðileggingu. Börnin
eru meðal látinna og særðra.
Þau hafa orðið viðskila við fjöl-
skyldur sínar og jafnvel misst
foreldra sína. Fyrir andvirði eins
bæklings er hægt að bólusetja
40 börn gegn mænusótt, kaupa 4
kíló af orkuríkum kexkökum sem
hjálpa börnum í neyð eða hreinsa
6 þúsund lítra af óhreinu vatni og
breyta í heilnæmt drykkjarvatn.
Bæklinginn er hægt að kaupa í
gegnum vefsíðuna bokin.disukok-
ur.is á 990 krónur. Við það bætist
sendingarkostnaður upp á 135
krónur en allar 990 krónurnar
renna óskiptar til neyðarsöfnun-
arinnar.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
sElJa uppskriftaBók til að styðJa
við HJálparstarf á filippsEyJum
inga BJörg stökk sEint í JólaBókaflóðið
Inga Björg
Stefánsdóttir
segist hafa orðið
mjög feimin
þegar fyrsta
bókin hennar
kom út en hún sé
að læra að vera
stolt af verkum
sínum og heldur
því ótrauð
áfram.
Mynd/Hari
i nga Björg Stefánsdóttir, söngkona með meiru, sendi frá sér ævintýra-bókina Dimmuborgir 2010 og hefur
síðustu daga verið á fleygiferð að dreifa
framhaldinu, Undraborgir, í verslanir. Í
bókinni segir af frekari ævintýrum Flóka
og sérkennilegra vina hans sem hófust í
Dimmuborgum.
Flóki lét að vísu bíða lengi eftir sér
núna og á tímabili leit út fyrir að hann
yrði að sitja hjá þessi jól.
„Ohh. Guð minn almáttugur. Halelúja!
Stynur Inga þegar talið berst af siglingu
bókarinnar yfir hafið. „Átti að koma
um miðjan nóvember og í síðasta lagi 1.
desember en skipinu seinkaði svo mikið.
Ég stóð því frammi fyrir spurningunni
um hvort ég ætti að geyma bókina en
hugsaði að þetta væri bara týpísk ég. Ég
er alltaf á síðustu stundu og ákvað að láta
vaða og það var bara hlaupið af stað að
dreifa henni í búðir.“
Síðustu vikur hafa verið annasamar
enda mikið að gera í tónlistarlífinu og
kórastarfinu á aðventunni. „Ég er bara
búin að vera á fullu. Svo á ég líka fimm
börn í prófum og ég er búin að vera að
gleyma þeim út um allt. Hef farið með
þau í boð og keyrt heim án þess að fatta
að þau voru ekki með. Þetta er bara búið
að vera fyndið.“
Inga segir nemendur sína og jafnvel
tengdamóður vera fyrirmyndir sumra
persóna í bókinni en ævintýrið byrjaði
hjá börnunum hennar.
„Ég var að bulla sögur fyrir börnin
mín og þar var sama persónan farin að
koma ítrekað við sögu og ákvað bara
að prófa að skrifa þetta niður.“ Inga
segir ævintýrið síðan hafa undið upp
á sig smám saman og vinnan við það
varð í raun kærkomin hvíld. „Þetta er
orðin afslöppun. Það eru svo mikil læti í
vinnunni minni þar sem ég er endalaust
að kenna tónmennt eða söng og vinna
með kórum. Þannig að það er dásamlegt
að geta kúplað sig inn í annan heim.“
Þegar Inga var að taka kennslurétt-
indi við Listaháskólann kynntist hún
myndskreytinum Karli Jóhanni Jónssyni
og hún fékk hann til liðs við sig. Og þá
fór boltinn að rúlla. „Þegar persónurnar
fóru að taka á sig mynd hjá honum þá
varð þetta svo spennandi að það var ekki
annað hægt en halda áfram á fullri ferð.“
Inga segir ævintýrið vera þríleik og að
lokahnykkurinn, Veggjaborgir, sé næst-
ur á dagskrá. Hún kýs að gefa sér góðan
tíma og taka tvö ár í hverja bók þannig
að framhaldið ætti að vera tilbúið 2015.
„Ef ég ætlaði að gera bók á ári þyrfti
ég að hætta í einhverju öðru og þetta
verður ekki gaman lengur ef ég fer að
setja á mig tímapressu.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Hafdís Priscilla Magnúsdóttir.
Hún og Ágúst Ævar Guðbjörnsson
buðu starfsfólki UNICEF á Íslandi
upp á kökur bakaðar eftir upp-
skriftum úr bæklingnum.
Bullaði ævintýri
sem endaði í bók
Inga Björg Stefánsdóttir er lærð
óperusöngkona. Hún kennir
tónmennt í Mýrarhúsaskóla og
stýrir kórum á Seltjarnarnesi.
Hún á það til að flýja amstrið inn
í ævintýraheim sem hún bullaði
upp fyrir börnin sín en hann er
grunnur ævintýrabókarinnar
Undraborgir sem hún fékk með
síðasta skipi og kastaði í bóka-
flóðið á elleftu stundu.
Ég er
alltaf á
síðustu
stundu
og ákvað
að láta
vaða.
118 dægurmál Helgin 13.-15. desember 2013